Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.
Súkkulaðibræðsla
Flestir hafa sjálfsagt heyrt það margsinnis að það það megi alls ekki að láta neinn vökva komast í súkkulaði sem er verið að bræða, þá hlaupi súkkulaðið í kekki og verði ónýtt. Það er hinsvegar í lagi ef vökvinn er settur í skálina sem notuð er til bræðslunnar um leið og súkkulaðið og hefur sama hitastig. Ef á t.d. að gera einfaldan súkkulaðibúðing er hægt að bragðbæta hann með líkjör og setja þá líkjörinn og súkkulaðið í skálina áður en hún er sett yfir vatnsbaðið. Súkkulaðið gæti orðið dálítið þykkara en ella en það er um að gera að hræra vel í því á meðan það er að bráðna.
Ef á að blanda saman bráðnu súkkulaði og óþeyttum rjóma er líka hægt að hita bara rjómann, brjóta súkkulaðið í bita og setja þá í skál, hella svo heitum rjómanum yfir súkkulaðið og hræra þar til það er bráðið.
Nanna

