Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

5 sep. 2005 9:38 : Þegar sett er í frysti Merkingar

Nú er sá árstími þegar frystikistur og frystiskápar eru óðum að fyllast af kjöti og sláturafurðum, grænmeti, berjum og öðrum jarðargróða, fiski úr sjó og vötnum og ýmsu öðru góðgæti. Og þá er eitt sem er rétt að hafa í huga:

Munið að merkja alla frystivöru rækilega. Þið haldið kannski að þess þurfi ekki en það getur verið erfitt að þekkja sundur mismunandi poka með frosinni matvöru ef þeir eru ómerktir. Ég hef lent í því að taka hrímaðan klump af nautasteik úr frysti en standa svo uppi með stórlúðubita í höndunum. Og frosin berjasaft sem ég ætlaði að nota í einhvern góðan eftirrétt reyndist vera afgangurinn af lambablóðinu frá sláturgerðinni þegar til átti að taka. Það var ekki gaman og síðan merki ég allt rækilega. Þegar ég man eftir því.

Skrifið líka dagsetninguna á miðann, þá vitið þið hvað maturinn hefur verið geymdur lengi.

Nanna



Varanleg slóð Skrifa athugasemd

5 sep. 2005 9:16 : The Cook's Companion - mjög gagnleg uppflettibók

The Cook's Companion eftir ástralska matarhöfundinn Stephanie Alexander er ótrúleg fróðleiksnáma fyrir alla sem hafa snefil af áhuga á mat og matargerð. Þetta er ný útgáfa, 1126 blaðsíður, stútfull af upplýsingum um hráefni, aðferðir, rétti, tæki og tól. Í bókinni er líka fjöldi uppskrifta og eru það bæði grunnuppskriftir og alls kyns sérhæfðari uppskriftir, hvaðanæva úr heiminum.

Þótt allmargar myndir séu í bókinni eru fæstar þeirra af tilbúnum réttum og ef þú ert í hópi þeirra sem vilja hafa mynd af réttinum sem þú ætlar að elda er þetta ekki bókin fyrir þig. En ef þú lest matreiðslubækur þér til fróðleiks og skemmtunar, ef þig vantar upplýsingar eða ef þú ert að leita að uppskriftum þar sem gulrófur, grasker, granatepli eða geitaostur koma við sögu, þá er líklegt að þessi bók verði í uppáhaldi.

Nanna

Varanleg slóð Skrifa athugasemd

5 sep. 2005 9:12 : Litlar en þarfar Kjötnálar

Kjötnálar úr málmi eru afar þörf tól þegar verið er t.d. að fylla kjúklinga eða aðra fugla, lambalæri og fleira, búa til ýmiss konar vefjur eða þegar þarf að sjá til þess að eitthvað haldist lokað eða samanvafið á meðan það er eldað.

Stundum er auðvitað hægt að komast af með tannstöngla en þegar á að grilla eða steikja við fremur háan hita er mun betra að nota litla prjóna eða nálar úr málmi, sem má svo kippa úr áður en rétturinn er borinn fram.

Hér má sjá tvær gerðir af kjötnálum. Nálarnar á vírklemmunni fást í Kokku og kosta 250 krónur (10 nálar), hinar fást í Pipar og salt og kosta 185 krónur (8 nálar).

Nanna



Varanleg slóð Skrifa athugasemd

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði