Matarspjall

Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.

4 sep. 2005 16:21 : Þegar sinnepið klárast - er samt eitthvað eftir

Þegar innihald dijonsinnepskrukkunnar er að klárast en það er enn dálítið sinnep eftir sem maður nær ekki með skeiðinni, þá er samt óþarfi að henda því. Það er t.d. hægt að setja svolitla ólífuolíu og hvítvíns- eða rauðvínsedik í krukkuna ásamt smátt söxuðum hvítlauk og e.t.v. kryddjurtum, pipar og salti. Loka svo krukkunni og hristu vel. Nú er maður kominn með fína sinnepssósu út á salatið – og hún geymist í krukkunni í nokkra daga.

Nanna



Varanleg slóð Lesa athugasemdir (244)

 

Innskráning



Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði