Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.
Fáein gagnleg eldhústól ...
Nokkur eldhústæki sem ég á ekki:
Mangóskeri.
Beyglufallöxi.
Orlydeigsþekjari.
Eggjaskurnflettari.
Hvítlauksflysjari (ég á reyndar svoleiðis en mun einfaldari gerð).
Rafknúinn sykurpúðagrillteinn.
Pylsuhitari.
Pylsuskeri sem sker pylsurnar í kolkrabbamynstur.
Kartöflustöppugerðarmaskína (sýður kartöflurnar líka).
Bananahlíf.
Sko til, það er ýmislegt hægt að gefa mér næst þegar ég á afmæli.
Nanna
Nokkur orð um ... leyndarmál og lifrarkæfu
John Thorne segir í bók sinni Simple Cooking, í kaflanum Truly Awful Recipes, að líklega sé ekki óalgengt að jafnvel hinir bestu kokkar lumi á einni eða tveimur uppskriftum sem þeir skammist sín fyrir og það með réttu en haldi samt áfram að nota öðru hverju (leyndarmál hans sjálfs er súkkulaðikaka gerð úr djöflatertu-pakkablöndu, súkkulaðibúðingi úr pakka, súkkulaðidropum, sýrðum rjóma og eggjum).
Ég á enga svona uppskrift, ekki svo ég muni að minnsta kosti, en það er kannski fyrst og fremst vegna þess að mér finnst svo gaman að elda að ég vil í flestum tilvikum helst gera það alveg frá grunni. En ég man eftir því einu sinni að kona sem fékk hjá mér uppskrift að kjúklingalifrarkæfu talaði um að hún hefði ekki verið nógu falleg á litinn hjá sér, mín hefði verið dekkri og fallegri - og þá áttaði ég mig á því að ég hafði meðvitað eða ómeðvitað sleppt einu atriði úr uppskriftinni - ég veit ekki hvort ég skammaðist mín beint fyrir það en að minnsta kosti fannst mér að ég hefði verið að brjóta einhver lögmál, gera eitthvað sem ekki var við hæfi, og best væri að þegja yfir því. Ég hef nefnilega lesið tugi ef ekki hundruð uppskrifta að kjúklingalifrarkæfu víða að úr heiminum. Mín er sú eina sem inniheldur sósulit.
Nanna
Ávaxtameitill?
Eina vandamálið sem tengist þessu handhæga eldhústóli er spurningin: Hvað á að kalla það á íslensku? Við lýstum eftir tillögum og fengum uppástungur eins og úrsnarari, safakremja, ávaxtabor og ávaxtakjötskremjari en best leist okkur á tillöguna ávaxtameitill.
Hvað sem því líður er þetta einstaklega þægilegt tól þegar þarf að pressa safa úr sítrónum og appelsínum, t.d. beint ofan í pottinn, í drykkinn eða yfir salatið. Það er til í mörgum útgáfum og úr ýmsum efnum, svo sem tré, málmi og postulíni.
Tólið á myndinni er eitt af þeim ódýrustu og fékkst í versluninni Pipar og salt.
Nanna
Innkaupalisti
Það er hægt að auðvelda sér innkaupin með því að skrifa lista yfir þær vörur sem maður kaupir oftast og ljósrita hann eða prenta út í mörgum eintökum. Þá er einfalt að taka eintak í hvert sinn sem farið er í búðir, merkja við það sem vantar og bæta öðru við.
Ég er viss um að þetta virkar vel fyrir fólk sem er vel skipulagt. Og ekki síður fyrir þá sem vilja skipulegja sig betur, kaupa oft það sama og veit hvað það ætlar að hafa í matinn áður en það fer út í búð. Það eru bara ekki allir svoleiðis ...
Nanna


