Hugleiðingar um alls kyns matar- og víntengd efni.
Lesendum gefst kostur á að segja skoðun sína við hverja færslu.
Vanilluextrakt - ekta vanilla
Þeir sem hafa lært að meta ekta vanillubragðefni hafa löngum saknað þess að fá ekki almennilegan vanilluextrakt eða essens hérlendis en nú er það breytt. Í sælkeraversluninni Yndisauka fæst úrvals vanilluextrakt frá Nielsen-Massey, unninn úr valinni blöndu af vanillustöngum.
Það skiptir ekki höfuðmáli hvort notað er ekta vanillubragðefni í kökur og þess háttar en þegar um er að ræða ís, búðing, krem og annað slíkt er munurinn ótvíræður. Prófið bara að lykta af ekta vanilluessens og vanilludropum og finna mismuninn.
Vanilluextraktinn fæst í 125 ml flöskum sem kosta 2300 kr. í Yndisauka. Ég reikna samt með að halda áfram að birgja mig upp þegar ég fer til London.
Nanna
Nokkur orð um ... þurrkaðar baunir Baunir í súpur og fleira
Mörgum finnst dálítið fyrirhafnarsamt að matreiða baunarétti af því að í mörgum tilvikum þarf að leggja baunirnar í bleyti í nokkrar klukkustundir eða yfir nótt. Ég er ekkert sérlega vel skipulögð og ef ég ætla að hafa baunarétt man ég sjaldan eftir að leggja baunir í bleyti. Þess vegna nota ég oft niðursoðnar baunir.
En hvernig væri að sjóða mikið magn af baunum í einu, skipta baununum svo í hæfilega stóra skammta, setja í poka eða plastbox, merkja vel og frysta? Þannig er hægt að ganga að baununum vísum í frystikistunni og baunaréttirnir verða miklu fljótlegri og einfaldari fyrir vikið. Baunirnar má frysta í allt að sex mánuði. Soðnar baunir má líka geyma í kæli í 2-3 daga.
Margir halda að þurrkaðar baunir geymist endalaust en sannleikurinn er sá að þær þorna enn meira með tímanum og á endanum er sama hve lengi þær eru soðnar, þær verða aldrei almennilega meyrar. Skrifið þess vegna dagsetningu á umbúðirnar þegar baunir eru keyptar og geymið þær helst ekki lengur en eitt ár.
Reikna má með að baunirnar tvö- eða þrefaldist að máli við suðuna, þ.e. að 1 bolli af þurrkuðum baunum svari til 2-3 bolla af soðnum. Ef eldað er eftir bandarískri uppskrift má reikna með að 1 bolli af þurrkuðum, ósoðnum baunum vegi um 225 g. 1 dós af niðursoðnum baunum svarar til 1 1/2-2 bolla af soðnum baunum.
Baunirnar eru lengur að sjóða og verða seigari ef salt eða eitthvað súrt (t.d. tómatar, sítrónsafi eða edik) er sett í pottinn áður en þær eru byrjaðar að meyrna. Suðutíminn lengist líka ef baunirnar eru gamlar og þá þarf oft að bæta við meira vatni. Gott er að setja 1 msk. af smjöri eða olíu í pottinn um leið og baunirnar, þá freyða þær minna og sjóða síður upp úr en ella. Látið baunarétti ekki bullsjóða, bara malla við vægan hita.
NannaFeast - Nigella Lawson Bók mánaðarins
Feast er nýjasta bók eldhúsgyðjunnar Nigellu Lawson, sem ekki bregst aðdáendum sínum fremur en fyrri daginn og birtir hér mikinn fjölda girnilegra uppskrifta. Eins og heiti bókarinnar bendir til eru þetta ekki hversdagsuppskriftir, heldur veisluréttir í víðum skilningi því að Nigella ferðast hér í gegnum árið og í gegnum viðburði í lífi mannsins – frá þakkargjörðarhátíð og jólum til barnaafmælis og að lokum erfidrykkju – og kemur með uppskriftir að viðeigandi veisluréttum.
Mikið af þessu eru hefðbundnir réttir með tilbrigðum og það má greina visst afturhvarf til gamaldags, hefðbundinnar matargerðar í bókinni eins og í fleiri nýjum matreiðslubókum. Þótt sumar hátíðirnar sem Nigella rekur séu lítt þekktar hér á landi og réttirnir sem þeim tilheyra sömuleiðis ætti enginn að setja það fyrir sig, það er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt og svo er nóg inn á milli af einstaklega girnilegum réttum sem ættu að höfða til flestra.
Skoðið líka vefsíðu Nigellu, hún er reyndar ekki sérlega efnismikil en þar er þó eitthvað af uppskriftum gyðjunnar og einnig geta lesendur sett inn sínar eigin uppskriftir.
NannaSteikarmælir - svo að steikin misheppnist ekki
Steikarmælir eða kjöthitamælir er óneitanlega þægilegt hjálpartæki í eldhúsinu, fyrst og fremst auðvitað þegar verið er að steikja stórar steikur, t.d. roastbeef, lambalæri eða heila fugla. Maður sleppur við allar ágiskanir og óvissu, getur tekið steikina úr ofninum nákvæmlega á réttum tímapunkti og verið viss um að hún sé hvorki of- né vansteikt. Svo má líka nota mælinn t.d. þegar verið er að sjóða kjöt eða baka brauð.
Þægilegustu mælarnir eru þeir sem eru með langri snúru þannig að sjálfur mælirinn er hafður utan við ofninn, oddinum er bara stungið í steikina og svo er hægt að fylgjast með hitastiginu án þess að opna ofninn. Mælirinn á myndinni er af þessari tegund. Það er hægt að stilla hann þannig að hann pípi þegar ákveðnu hitastigi er náð og svo er þetta einnig tímamælir sem talið getur bæði upp og niður. Hann sýnir bæði Celsius- og Fahrenheit-hitastig svo að ekki þarf að standa og reikna þegar verið er að fara eftir amerískum uppskriftum. Mælirinn fæst m.a. í Pipar og salt og kostar þar 1995 krónur.
Nanna
Kvöldverður - fjölskyldustund Borðað saman í ró og næði
Rannsóknir hafa sýnt að börn og unglingar úr fjölskyldum þar sem allir setjast saman við kvöldverðarborðið og borða matinn í ró og næði fá ekki bara hollari næringu en þau sem lifa á skyndibitum og mat sem borðaður er á hlaupum, heldur eru þau einnig síður líkleg til að lenda í félagslegum erfiðleikum eða nota áfengi og fíkniefni. Munið að það er mikilvægara að vera saman, tala saman og borða saman góðan og næringarríkan mat en að útbúa eitthvað flókið og fínt.
Best er ef allir taka þátt í matargerðinni og undirbúningi máltíðarinnar. Úthlutaðu börnunum verkefnum í takt við aldur þeirra, getu og áhugasvið. Þau þurfa að læra að undirbúningurinn á ekki allur að vera á verksviði einnar manneskju.
Kenndu börnunum að virða borðsiði og hafa í heiðri ákveðnar reglur við matarborðið. Fullorðna fólkið þarf líka að sýna gott fordæmi. Ef GSM-síminn hringir á meðan setið er að borðum, þá skaltu ekki sitja kyrr við bosegðu þá þeim sem hringdi að þú hringir aftur eftir smástund, eða færðu þig frá borðinu á meðan þú talar. Ekki hafa kveikt á sjónvarpinu á meðan fjölskyldan situr að borðum.


