Viðtöl

GE-0705-63-01_2

Franskur stjörnukokkur á Íslandi í 14. sinn

Blaðamaður hitti meistarakokkinn Philippe Girardon á Hótel Holti í febrúar síðastliðnum en hann var þá staddur hér á landi í 14. sinn og sennilega ekki það síðasta. Ástæðan fyrir veru hans hér að þessu sinni var árlegur hátíðarkvöldverður Fransk-íslenska verslunarráðsins þar sem hann sá um að laða fram ljúffenga rétti í hæsta klassa.

Lesa meira
 
GE-0704-69-05_2

Bergen - Björgvin ... vin milli fjalla

Við Íslendingar horfum gjarnan til fjarlægari staða og ímyndum okkur mörg að „næsta nágrenni“ hafi ekki neitt sérstaklega spennandi að bjóða. Þess vegna var ég eiginlega svolítið hissa á að Icelandair skyldi ætla að fara að bjóða upp á beint flug til Bergen; Bergen af öllum stöðum! Lesa meira
 
GE-0609-16-04_3

Lífið við Laxá

Á bökkum Laxár í Leirársveit stendur notalegt veiðihús sem eftir þónokkrar endurbætur undanfarin ár telst með þeim betri á landinu. Að þessu sinni brá ég mér á heimaslóðir og kíkti í veiðihúsið þar sem ég hef verið meira og minna viðloðandi í átta sumur. Það er gott til þess að vita að sumt breytist aldrei. Lesa meira
 
GE-0509-52-02_3

Í kaffi hjá Ingu í Laufási

„Þegar við fluttum í nýtt hús í Laufási eignaðist Minjasafnið Gamla prestshúsið og þá kom fram hugmyndin að kaffihúsi en áður var boðið upp á jólaköku og kleinur á hlaðinu í Laufási,“ segir prestsfrúin, Ingibjörg Siglaugsdóttir (alltaf kölluð Inga). Inga hefur rekið kaffihús fyrir hönd Minjasafnsins á Akureyri í Gamla prestshúsinu í Laufási, við hliðina á safninu, undanfarin fimm ár. Lesa meira
 
GE-0507-28-01_3

Frá Höfðaborg til Fáskrúðsfjarðar

Sennilega hefur alla einhvern tíma dreymt um að flakka um heiminn, kynnast ólíkri menningu þjóðanna og svala í leiðinni ævintýraþránni. Hluti af því að kynnast menningu annarra er einmitt að bragða þjóðlegan mat. Eftir nám í dýrahjúkrun lét Esther Brune slag standa og fór frá heimalandi sínu, Suður-Afríku, á vit ævintýranna. Lesa meira
 
GE-0408-02Sigurdur_Skolabru

Á réttri hillu

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Sigurður Helgason matreiðslumaður náð langt á sínu sviði. Hann ákvað að læra matreiðslu fyrir forvitni sakir og áður en hann vissi af fékk hann brennandi áhuga á faginu. Í dag heldur Sigurður um stjórnartaumana í eldhúsinu á Skólabrú og töfrar fram dýrindisrétti fyrir matargesti. Blaðamaður Gestgjafans hitti Sigurð yfir kaffibolla og fékk hann til að svara nokkrum spurningum. Lesa meira
 
GE-0504-21-01_3

Það hefur enginn verið drepinn í mínu eldhúsi

Hinn þekkti matreiðslumaður, rithöfundur og sjónvarpsmaður Anthony Bourdain heimsótti Ísland nýverið vegna sjónvarpsþáttar sem hann er að gera um íslenska matarmenningu. Hann hefur áður gert þáttaröðina Cook’s Tour, sem margir hafa séð, t.d. á BBC Food, og sent frá sér samnefnda bók byggða á efni þáttanna. Blaðamaður Gestgjafans hitti Bourdain á Hótel Nordica og spjallaði við hann nokkra stund. Lesa meira
 
GE-0503-14-04_3

Villibráð hjá prestshjónunum á Kolfreyjustað

Á Kolfreyjustað í Fáskrúðsfirði hefur verið prestssetur frá ómunatíð. Tilgáta er nú komin fram um að ef til vill nái saga þess allt aftur á 11. öld. Ef það er rétt þá er þetta nær jafngamall kirkjustaður og Skálholt. Það er gott að koma til prestshjónanna sr. Þóreyjar Guðmundsdóttur og Leif Myrdal. Þau eru mikið fyrir villibráð eins og sjá má á meðfylgjandi uppskriftum. Lesa meira
 
GE-0404-Harry

Í draumastarfinu

Haraldur Halldórsson vínþjónn hefur mikla þekkingu á vínum. Hann var lengi framkvæmdastjóri veitingastaðarins góðkunna Sommelier en hefur skipt um starfsvettvang og vinnur nú hjá Vífilfelli. Gestgjafanum lék forvitni á að vita hvað Haraldur væri að gera hjá stærsta gosframleiðanda landsins og hvers vegna hann hefði yfirgefið veitingageirann. Lesa meira
 
GE-0404-02Mareidslumadur

Eldað af ástríðu

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Lárus Gunnar Jónasson þegar skipað sér í hóp bestu matreiðslumanna landsins. Eftir harða keppni stóð hann uppi sem sigurvegari þegar Matreiðslumaður ársins 2004 var valinn á dögunum. Lárus er í landsliði matreiðslumanna, ásamt því að stjórna eldhúsinu í Sjávarkjallaranum með glæsibrag. Lesa meira
 
GE-0504-52-07_3

Loðnan er hreinasta lostæti

Við heimsóttum á dögunum fjöllistakonuna Kjuregej Alexöndru Argunovu frá Norðaustur-Síberíu, nánar tiltekið frá lýðveldinu Sacha sem er um 30 sinnum stærra en Ísland og var áður þekkt sem Jakútía USSR Lesa meira
 
GE-0505-41-01_3

Einfaldleikinn heillar mig mest

Það var neyðin sem fékk Þorvald Örlygsson, þjálfara meistaraflokks KA í knattspyrnu, til að reyna sig við matseldina. Hann heillaðist gjörsamlega og veit nú fátt skemmtilegra en að grúska í matreiðslubókum og hræra í pottum. Hann hefur kynnt sér ýmsar stefnur og strauma í matargerð en þegar upp er staðið er það einfaldleikinn sem hrífur hann mest. Lesa meira
 
GE-0505-62-03_3

Á álaveiðum í Aðaldalnum með Völla Snæ

Hann lærði til kokks í Perlunni á sínum tíma og lauk námi frá Hótel- og veitingaskólanum árið 1995. Hann kokkaði m.a. eftir það nokkur sumur í veiðihúsinu við Laxá í Aðaldal og leiddi vera hans þar til þess að hann var fenginn til að reka veitingahús á Grand Bahamas sem nú er eitt vinsælasta veitingahúsið á eyjunni og hefur fengið frábæra dóma í mörgum erlendum tímaritum. Lesa meira
 
GE-0403-Nordurmjolk

Skyrið er gæluverkefni

Fyrir fáeinum árum þótti það fremur gamaldags og það gat verið erfitt að fá unga fólkið til að borða skyr. Núna er skyr orðið ótrúlega vinsælt og notað í alls konar rétti, eftirrétti og ósæta rétti, sósur og drykki, og líkamsræktarfólk og einkaþjálfarar mæla óspart með því. Lesa meira
 
GE-0411-34-04_3

Uppáhaldskakan

Að venju fékk Gestgjafinn nokkra kökuvini til að draga fram uppskriftina að uppáhaldskökunni sinni fyrir kökublaðið og útkoman er vægast sagt girnileg. Lesa meira
 
GE-0407-Franska_konan

Franskur gestakokkur á Tveimur fiskum

Eitt af því skemmtilegasta sem Gwénaël Laroche gerir er að útbúa góðan mat og dreypa á ljúffengu hvítvíni. Hún er vel þekkt í heimalandi sínu, Frakklandi, en hún býr í Chablis sem er eitt frægasta hvítvínshérað landins. Fyrir skömmu lá leið Gwénaël til Íslands og fengu gestir veitingahússins Tveir fiskar að njóta hæfileika hennar í matargerð. Lesa meira
 
GE-0406-Ingvar_Argentinu

Uppáhaldsáhaldið - Ingvar á Argentínu

Ingvar Sigurðsson matreiðslumeistari er ekki óvanur því að handleika grilláhöld, enda veit hann fátt skemmtilegra en að grilla safaríkar steikur. Ingvar er einn af eigendum Argentínu steikhúss og er svo heppinn að geta sameinað atvinnu og áhugamál. Hann á gott úrval af grilláhöldum en gæti þó vart hugsað sér að sjá af tveimur þeirra. Lesa meira
 
GE-0405-01_Siggi_Gisla

Brennur af áhuga

Þótt Sigurður Friðrik Gíslason eigi erfitt með að fara eftir uppskriftum var hann ekki hár í loftinu þegar hann ákvað að verða matreiðslumaður. Hann hlakkar til að fara í vinnuna á hverjum morgni og vill gera betur í dag en í gær. Sigurður hefur unnið við fagið um víða veröld en kann best við sig heima á Íslandi. Lesa meira
 
GE-0405-Johanna_Kristjonsdottir

Uppáhaldsáhaldið - Jóhanna Kristjónsdóttir

Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamaður hefur dvalið langdvölum í Miðausturlöndum undanfarin ár og lagt stund á arabísku. Gestgjafanum lék forvitni á að vita hvort hún ætti skemmtilegt eldhúsáhald frá framandi slóðum sem hún gæti vart séð af. Lesa meira
 
GE-0404-Adalh_Kaffitar

Uppáhaldsáhaldið - Aðalheiður í Kaffitári

Aðalheiður Héðinsdóttir, eigandi og forstjóri Kaffitárs, fékk nýlega viðurkenningu frá Félagi kvenna í atvinnurekstri fyrir framúrskarandi árangur í viðskiptalífinu. Aðalheiður segist vera ákaflega þakklát fyrir þessa viðurkenningu, sem hafi komið sér verulega á óvart. ,,Þetta er mikil hvatning fyrir mig og fyrirtækið.” Lesa meira
 


 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Innrinet