Rauðará við Rauðarárstíg
Rauðará, við Rauðarárstíg, er staður sem átt hefur vinsældum að fagna undanfarin misseri. Staðurinn hefur verið við lýði í meira en áratug og staðsetning hans er skemmtileg og miðsvæðis uppundir Klambratúni.
Hamborgarar bæjarins
Hamborgarar eru þemað í rýninni að þessu sinni og ólíkt öðrum heimsóknum okkar fórum við saman á alla staðina. Við gerðum fyrst könnun á því hvaða staðir væru þeir vinsælustu þegar kemur að hamborgurum og var niðurstaðan; American Style, Búllan, Grillhúsið, Kringlukráin og Vitabar.
Ekki var farið á staði sem eru með hamborgara eftir erlendri fyrirmynd eða eru erlendar keðjur.
Á öllum stöðunum pöntuðum við vinsælasta hamborgara á hverjum stað. Sitt sýnist hverjum en þetta er okkar sameiginlega niðurstaða eftir þessar heimsóknir.
Lava í Bláa Lóninu
Enn og aftur höldum við áfram för okkar á veitingahús utan höfuðborgarsvæðisins. Nú er komið að því að heimsækja Reykjanesið og fyrir valinu varð Lava veitingahús í Bláa lóninu. Sumri er tekið að halla en sem fyrr þá skín blessuð sólin á leið okkar út Reykjanesið. Þegar komið var í Bláa lónið þá var þar fyrir fjöldi gesta og erlendir gestir í miklum meirihluta sem kemur ekki á óvart. Það er með ólíkindum það aðdráttarafl sem þessi staður hefur haft fyrir Ísland í gegnum árin og ekkert lát virðist vera á. Það er mjög við hæfi að gestir geti notið góðra veitinga eftir vel heppnaða ferð í lónið sjálft í þessu einstaka umhverfi í frábæru veðri.
Hótel Hamar
Eftir að hafa heimsótt veitingahús á Suðurlandi undanfarið var ákveðið að taka stefnuna á Vesturland. Að þessu sinni lá leiðin í Borgarfjörð. Eins og flestir landsmenn hafa komist í kynni við þá hefur veðurblíðan verið með ólíkindum undanfarið og svo var einnig seinnipart þeirrar viku í lok júlí sem ég heimsótti Borgarfjörð. Vesturlandið skartaði sínum fegurstu fjöllum og eins og segir var fjallasýnin óhjákvæmileg! Ég var með tilhlökkun í brjósti yfir því að heimsækja Hótel Hamar í fyrsta sinn en nokkra þekki ég sem koma þar við nokkuð reglulega og fá sér að borða og líkar vel. Við renndum fram hjá Borgarnesi og skömmu síðar vorum við komin í hlað á Hótel Hamri.
Menam á Selfossi
Hótel Rangá
Gullfoss
Gamla Eimskipafélagshúsið er gríðarlega fallegt hús. Ég minnist þess með hlýju þegar það hýsti starfsemi HF Eimskipafélags Íslands. Hver hefði trúað því að í dag væri rekið þar Hótel og veitingastarfsemi! Kannski ekki svo fjarlægt þegar allt kemur til alls því að útflutningur landsmanna var og er enn þá matvara, sjávarfang og þar hefur Eimskipafélagið spilað stórt hlutverk. Þema hins nýja staðar, Gullfoss, er spænskt. Spánn er og verður kannski það land sem er mikilvægast allra landa hvað útflutning varðar frá Íslandi. Veitingastaður á þessum stað, í þessu húsi, er mikið tækifæri og nafnið Gullfoss er virkilega viðeigandi án þess að farið verði nánar út í það. Guðvarður Gíslason er enginn nýgræðingur í bransanum heldur er hann einn af þeim mest framsæknu nú á dögum. Hver man ekki eftir Gauki á Stöng og Apótekinu, er ég að gleyma einhverju?
Orange
Það var óneitanlega spennandi þegar það fréttist að Þórarinn Eggertsson meistarakokkur hygðist opna nýjan veitingastað. Orange er orðinn að veruleika, Orange Seafood Grill eða Orange Lab, og kappkostar að bjóða upp á nýja upplifun í mat og drykk. Eins og segir á heimasíðu staðarins (www.orange.is) þá leika matreiðslumenn sér að helíumi, fljótandi köfnunarefni og fleiri efnum úr lotukerfinu til að framreiða mat á nýjan og spennandi hátt. Orðið Lab vísar til tilraunastofu og í þessu tilfelli til tilraunaeldhúss en Þórarinn er fyrir löngu orðinn mjög reyndur kokkur og getur nú gert tilraunir á nýjum matreiðsluaðferðum í sínu eigin eldhúsi. Þórarinn hefur ekki einungis aflað sér reynslu innanlands heldur vann hann um tíma á einu allra besta veitingahúsinu í Brussel í Belgíu, Sea Grill. Ég óska eigendum Orange innilega til hamingju með nýja staðinn.
- Kjartan
Austur - Indíafélagið
Austur-Indíafélagið hefur um alllanga hríð staðið við Hverfisgötuna matargestum til mikillar ánægju sem á annað borð eru hrifnir af indverskum mat. Staðurinn á sér marga fasta viðskiptavini og hefur staðið af sér allar tískusveiflur. Indversk matargerð hefur farið sigurför um hinn vestræna heim og trúlega eru enn þá sóknarfæri. London er dæmi um borg þar sem indverskan mat má finna á hverju götuhorni og hefur þar orðið mikil þróun í indverskri matreiðslu. Nokkur indversk veitingahús þar í borg hafa ratað inn í Michelin-guide með stjörnu eða stjörnur. Áherslan í indverskri matargerð hefur verið á kjöt, þá sérstaklega kjúkling og lamb og einnig grænmeti en lítið af fiski.
Þrír Frakkar
Þrír Frakkar hjá Úlfari hafa verið á Baldursgötunni í bráðum tuttugu ár eða síðan 1989. Óhætt er að fullyrða að líklega á enginn staður á Íslandi sér eins marga tryggðarkúnna og Þrír Frakkar, þá sérstaklega í hádeginu. Kemur þar margt til; ákaflega gott og þægilegt viðmót, einstaklega notalegur staður sem stendur fyrir sínu en fyrst og síðast er það maturinn hans Úlfars, sérstaklega fiskurinn. Ferskur og ekkert annað en ferskur og Úlfar Eysteinsson veit upp á hár hvað til þarf, enda hefur hann staðið vaktina lengi með sóma. Staðurinn er einnig mjög vinsæll meðal erlendra gesta og ótrúlega margir vita af staðnum og sækjast eftir að smakka á hinu rómaða, hráa hvalkjöti. Persónulega hefur rýnir átt ófáar gleðistundir á Þremur Frökkum og staðurinn er einn af þeim mest ómissandi í íslenskri veitingahúsaflóru. – Kjartan.
Gallery á Hótel Holti
Þrátt fyrir að hafa heimsótt Holtið haustið 2006 fannst okkur nú aftur kominn tími á heimsókn þó ekki væri langt um liðið. Ástæðan er sú að nú er uppi gjörbreytt staða á Holtinu. Hinn frábæri kokkur Friðgeir Ingi er orðinn yfirmatreiðslumeistari, kominn heim frá Frakklandi og hefur gjörbreytt öllu sem lýtur að matargerðinni svo ekki sé nú talað um eldhúsið. Því hefur verið umbylt og er þar allt glænýtt, hannað af Friðgeiri sjálfum. Gallery veitingahús, en áherslan er á það nafn sem er vel við hæfi, opnaði „nýjan“ veitingasal nú í janúar með nýjum, metnaðarfullum áherslum og það er alveg ljóst að reynsla Friðgeirs frá Frakklandi undir styrkri stjórn Philippe Girardon nýtis mjög vel.
b5
La Primavera
Veitingahúsið La Primavera hefur fyrir löngu slegið í gegn á Íslandi í þau 13-14 ár sem það hefur verið starfrækt og á þeim tíma hefur það vaxið og dafnað. Staðurinn á sér fjölda fastakúnna, kannski fleiri en gengur og gerist hér á landi sem segir sína sögu. La Primavera kennir sig við hina ítölsku matargerðarlist sem fræg er um allan heim og óhætt er að fullyrða að La Primavera er flaggskip ítalskrar matargerðar á Íslandi. Ítölsk matargerð gengur út á einfaldleikann þar sem ferskleiki hráefnisins er algjör útgangspunktur. Leifur Kolbeinsson stendur í brúnni en hann stofnsetti staðinn ásamt Ívari Bragasyni á sínum tíma. - Kjartan
Friðrik V
Siggi Hall á Óðinsvéum
Við Óðinstorg hefur aldrei verið í kot vísað. Í gegnum áratugina hefur þar verið rekið veitingahús og nú, í bráðum tíu ár, undir merkjum Sigga Hall, meistara Sigga Hall. Siggi er frumkvöðull og hefur aflað sér fágætrar reynslu og sótt hana víða um heim, allt frá Noregi suður til Spánar og vestur um haf. Hann er þjóðþekktur af því frábæra starfi að kynna íslendingum nútíma matreiðslu og jafnframt hefur hann kennt okkur að meta margt af því góða og einstaka hráefni sem við eigum. Undanfarin misseri hefur hann einnig lagt mikið af hendi við kynningu íslenskra afurða erlendis. Siggi Hall er klárlega einn af máttarstólpum íslenskrar matargerðarlistar. – Kjartan.
Argentína steikhús
Argentína steikhús er „steikhúsið“ á Íslandi, það leikur enginn vafi á því. Síðan 1989 hefur Argentína verið opin á Barónsstígnum unnendum góðra steika til mikillar ánægju. Staðurinn hefur notið mikilla vinsælda alla tíð og á sér marga trygga viðskiptavini. Nafnið Argentína er að sjálfsögðu ekki tilviljun heldur sótt til höfuðlands glóðarsteikingarinnar, Argentínu í Suður-Ameríku, en þar ku hvergi vera glóðarsteikt eins mikið af nautakjöti í heiminum. Argentína steikhús hefur ávallt gert mjög miklar kröfur til þess kjöts sem eldað er á staðnum og látið sérverka það fyrir sig. Argentína er rómantískur staður! - Kjartan
Fiskmarkaðurinn
Nýlega opnaði veitingastaður hér í borg er ber nafnið Fiskmarkaðurinn eða Fish Market í Aðalstræti 12. Þar ræður ríkjum Hrefna Rósa Sætran sem getið hefur sér gott orð fyrir eldamennsku sína. Það er alltaf ánægjuefni þegar nýir staðir opna sem sýnir glögglega kjark og þor íslenskra veitingamanna og er það sérstakt ánægjuefni að kvenmaður sé í brúnni í þessu tilfelli. Eins og Hrefna segir á heimasíðu staðarins er leitast við að koma fram með nýjungar í íslenskri matargerð og leitað austur á bóginn með bragð og stíl, opið eldhús. Staðurinn er opinn öll kvöld og einnig í hádeginu á virkum dögum sem hlýtur að vera spennandi kostur fyrir fólk sem starfar í miðbænum.
Einar Ben
Það eitt að hin stórbrotna íslenska þjóðhetja, Einar Benediktsson athafnamaður og skáld, hafi í þessu húsi rekið lögmannsstofu og hafið útgáfu fyrsta dagblaðsins á Íslandi, Dagskrá, er bara snilld. Þess vegna hefur Veitingahúsið Einar Ben svo sannarlega sál! Gamla húsið er fallegt og reisulegt, klætt bárujárni og allt í kring er athafnalíf sem á vel við hér í miðbænum svo ekki sé minnst á alla bankana. Áherslan í matargerð á Einari Ben er íslensk, „Hreint Ísland“ þar sem uppruni hráefnisins er rekjanlegur til sveita og bæja. Einar Ben er mjög íslenskur staður og Einar Ben var mjög íslenskur maður. - Kjartan
Sjávarkjallarinn
Kokkurinn og Kjartan heimsækja Hótel Búðir
Hótel Búðir rekur sögu sína aftur til ársins 1948 eins og fram kemur í máli og myndum á býsna góðri heimasíðu staðarins. Hótel Búðir er eitt af þekktari sveitahótelum landsins og þá ekki síst fyrir matargerð sína svo ekki sé nú talað um hið stórbrotna umhverfi undir jökli. Kaflaskipti urðu í sögu hótelsins þegar það brann árið 2001 en það var síðan endurbyggt í glæsilegum sveitastíl. Eins og fyrr sagði er umhverfið á Búðum stórbrotið og enginn má yfirgefa staðinn án þess að gefa sér tíma til þess að ganga um svæðið.


