Veitingahúsarýni

Raudara

Rauðará við Rauðarárstíg

Rauðará, við Rauðarárstíg, er staður sem átt hefur vinsældum að fagna undanfarin misseri. Staðurinn hefur verið við lýði í meira en áratug og staðsetning hans er skemmtileg og miðsvæðis uppundir Klambratúni.

Lesa meira

 
Hamborgari

Hamborgarar bæjarins

Hamborgarar eru þemað í rýninni að þessu sinni og ólíkt öðrum heimsóknum okkar fórum við saman á alla staðina. Við gerðum fyrst könnun á því hvaða staðir væru þeir vinsælustu þegar kemur að hamborgurum og var niðurstaðan; American Style, Búllan, Grillhúsið, Kringlukráin og Vitabar.

Ekki var farið á staði sem eru með hamborgara eftir erlendri fyrirmynd eða eru erlendar keðjur.

Á öllum stöðunum pöntuðum við vinsælasta hamborgara á hverjum stað. Sitt sýnist hverjum en þetta er okkar sameiginlega niðurstaða eftir þessar heimsóknir.

Lesa meira

 
Lava

Lava í Bláa Lóninu

Enn og aftur höldum við áfram för okkar á veitingahús utan höfuðborgarsvæðisins. Nú er komið að því að heimsækja Reykjanesið og fyrir valinu varð Lava veitingahús í Bláa lóninu. Sumri er tekið að halla en sem fyrr þá skín blessuð sólin á leið okkar út Reykjanesið. Þegar komið var í Bláa lónið þá var þar fyrir fjöldi gesta og erlendir gestir í miklum meirihluta sem kemur ekki á óvart. Það er með ólíkindum það aðdráttarafl sem þessi staður hefur haft fyrir Ísland í gegnum árin og ekkert lát virðist vera á. Það er mjög við hæfi að gestir geti notið góðra veitinga eftir vel heppnaða ferð í lónið sjálft í þessu einstaka umhverfi í frábæru veðri.

Lesa meira

 

Hótel Hamar

Eftir að hafa heimsótt veitingahús á Suðurlandi undanfarið var ákveðið að taka stefnuna á Vesturland. Að þessu sinni lá leiðin í Borgarfjörð. Eins og flestir landsmenn hafa komist í kynni við þá hefur veðurblíðan verið með ólíkindum undanfarið og svo var einnig seinnipart þeirrar viku í lok júlí sem ég heimsótti Borgarfjörð. Vesturlandið skartaði sínum fegurstu fjöllum og eins og segir var fjallasýnin óhjákvæmileg! Ég var með tilhlökkun í brjósti yfir því að heimsækja Hótel Hamar í fyrsta sinn en nokkra þekki ég sem koma þar við nokkuð reglulega og fá sér að borða og líkar vel. Við renndum fram hjá Borgarnesi og skömmu síðar vorum við komin í hlað á Hótel Hamri.

Lesa meira

 
Menam

Menam á Selfossi

Aftur tökum við félagarnir fyrir veitingahús á Suðurlandi og nú er það tælenska veitingahúsið Menam á bökkum Ölfusár sem státar af þeim árangri að hafa verið opið í 12 ár sem telst bærilegur árangur nú til dags. Eins og lesa má á mjög svo vandaðri heimasíðu staðarins www.menam.is á húsið sem hýsir staðinn sér langa og merkilega sögu án þess að farið verði nánar út í hana hér. Það er ekki á hverjum degi sem hægt er að heimsækja jafn sérhæfðan veitingastað og Menam utan stórhöfuðborgarsvæðisins. Á Menam, sem þýðir „Við fljótið“, er lögð áhersla á tælenska og/eða alþjóðlega matargerð og alúðlega þjónustu og er veitingastofan í tælenskum stíl. Lesa meira
 
Hotel_Ranga

Hótel Rangá

Suðurlandið skartaði sínu fegursta á leiðinni austur á Hótel Rangá, skínandi kvöldsól og fjallasýnin óhjákvæmileg: Hekla, Eyjafjallajökull og Vestmannaeyjar þegar nær dró. Hestar og sauðfé í haga með afkvæmi sín. Þvílík fegurð. Það er ekki laust við að listin aukist og tilhlökkunin verði enn þá meiri við slíkar aðstæður. Þegar rennt var í hlað þá var ljóst að hér eru menn ekki með hendur í skauti því við blasa framkvæmdir hvað varðar stækkun hótelsins og ekki síst matsalarins sem snýr út að Rangánni sjálfri og munu gestir hafa enn betra útsýni í austurátt í nýjum sal. Lesa meira
 
gullfoss

Gullfoss

 

Gamla Eimskipafélagshúsið er gríðarlega fallegt hús. Ég minnist þess með hlýju þegar það hýsti starfsemi HF Eimskipafélags Íslands. Hver hefði trúað því að í dag væri rekið þar Hótel og veitingastarfsemi! Kannski ekki svo fjarlægt þegar allt kemur til alls því að útflutningur landsmanna var og er enn þá matvara, sjávarfang og þar hefur Eimskipafélagið spilað stórt hlutverk. Þema hins nýja staðar, Gullfoss, er spænskt. Spánn er og verður kannski það land sem er mikilvægast allra landa hvað útflutning varðar frá Íslandi. Veitingastaður á þessum stað, í þessu húsi, er mikið tækifæri og nafnið Gullfoss er virkilega viðeigandi án þess að farið verði nánar út í það. Guðvarður Gíslason er enginn nýgræðingur í bransanum heldur er hann einn af þeim mest framsæknu nú á dögum. Hver man ekki eftir Gauki á Stöng og Apótekinu, er ég að gleyma einhverju?

Lesa meira

 
orange

Orange

 

Það var óneitanlega spennandi þegar það fréttist að Þórarinn Eggertsson meistarakokkur hygðist opna nýjan veitingastað. Orange er orðinn að veruleika, Orange Seafood Grill eða Orange Lab, og kappkostar að bjóða upp á nýja upplifun í mat og drykk. Eins og segir á heimasíðu staðarins (www.orange.is) þá leika matreiðslumenn sér að helíumi, fljótandi köfnunarefni og fleiri efnum úr lotukerfinu til að framreiða mat á nýjan og spennandi hátt. Orðið Lab vísar til tilraunastofu og í þessu tilfelli til tilraunaeldhúss en Þórarinn er fyrir löngu orðinn mjög reyndur kokkur og getur nú gert tilraunir á nýjum matreiðsluaðferðum í sínu eigin eldhúsi. Þórarinn hefur ekki einungis aflað sér reynslu innanlands heldur vann hann um tíma á einu allra besta veitingahúsinu í Brussel í Belgíu, Sea Grill. Ég óska eigendum Orange innilega til hamingju með nýja staðinn.

- Kjartan

Lesa meira

 
austur_india

Austur - Indíafélagið

 

Austur-Indíafélagið hefur um alllanga hríð staðið við Hverfisgötuna matargestum til mikillar ánægju sem á annað borð eru hrifnir af indverskum mat. Staðurinn á sér marga fasta viðskiptavini og hefur staðið af sér allar tískusveiflur. Indversk matargerð hefur farið sigurför um hinn vestræna heim og trúlega eru enn þá sóknarfæri. London er dæmi um borg þar sem indverskan mat má finna á hverju götuhorni og hefur þar orðið mikil þróun í indverskri matreiðslu. Nokkur indversk veitingahús þar í borg hafa ratað inn í Michelin-guide með stjörnu eða stjörnur. Áherslan í indverskri matargerð hefur verið á kjöt, þá sérstaklega kjúkling og lamb og einnig grænmeti en lítið af fiski.

Lesa meira

 
Frakkar

Þrír Frakkar

 

Þrír Frakkar hjá Úlfari hafa verið á Baldursgötunni í bráðum tuttugu ár eða síðan 1989. Óhætt er að fullyrða að líklega á enginn staður á Íslandi sér eins marga tryggðarkúnna og Þrír Frakkar, þá sérstaklega í hádeginu. Kemur þar margt til; ákaflega gott og þægilegt viðmót, einstaklega notalegur staður sem stendur fyrir sínu en fyrst og síðast er það maturinn hans Úlfars, sérstaklega fiskurinn. Ferskur og ekkert annað en ferskur og Úlfar Eysteinsson veit upp á hár hvað til þarf, enda hefur hann staðið vaktina lengi með sóma. Staðurinn er einnig mjög vinsæll meðal erlendra gesta og ótrúlega margir vita af staðnum og sækjast eftir að smakka á hinu rómaða, hráa hvalkjöti. Persónulega hefur rýnir átt ófáar gleðistundir á Þremur Frökkum og staðurinn er einn af þeim mest ómissandi í íslenskri veitingahúsaflóru. – Kjartan.

Lesa meira

 
hotel_holt

Gallery á Hótel Holti

 

Þrátt fyrir að hafa heimsótt Holtið haustið 2006 fannst okkur nú aftur kominn tími á heimsókn þó ekki væri langt um liðið. Ástæðan er sú að nú er uppi gjörbreytt staða á Holtinu. Hinn frábæri kokkur Friðgeir Ingi er orðinn yfirmatreiðslumeistari, kominn heim frá Frakklandi og hefur gjörbreytt öllu sem lýtur að matargerðinni svo ekki sé nú talað um eldhúsið. Því hefur verið umbylt og er þar allt glænýtt, hannað af Friðgeiri sjálfum. Gallery veitingahús, en áherslan er á það nafn sem er vel við hæfi, opnaði „nýjan“ veitingasal nú í janúar með nýjum, metnaðarfullum áherslum og það er alveg ljóst að reynsla Friðgeirs frá Frakklandi undir styrkri stjórn Philippe Girardon nýtis mjög vel.

Lesa meira

 
b5

b5

b5 (í Bankastræti 5) er í senn veitingahús, kaffihús, bar og skemmtistaður með diskóteki, allt eftir því á hvaða tíma dagsins fólk heimsækir staðinn. Í fyrstu, þegar staðurinn opnaði, var kannski megináherslan á bistró-veitingahús þar sem hægt er að fá góðan og tiltölulega fjölbreyttan og vel útlátinn mat á fremur hagstæðu verði. Staðsetning b5 er að sönnu góð, í húsi sem áður hýsti meðal annars Verslunarbanka Íslands og ummerki þess að þarna hafi áður verið banki má glögglega sjá í kjallara staðarins þar sem gömlu peningageymslurnar eru enn til staðar en nú sem tveir salir sem opnir eru eftir miðnætti um helgar; B-lounge og White wisky room! Lesa meira
 
primavera

La Primavera

 

Veitingahúsið La Primavera hefur fyrir löngu slegið í gegn á Íslandi í þau 13-14 ár sem það hefur verið starfrækt og á þeim tíma hefur það vaxið og dafnað. Staðurinn á sér fjölda fastakúnna, kannski fleiri en gengur og gerist hér á landi sem segir sína sögu. La Primavera kennir sig við hina ítölsku matargerðarlist sem fræg er um allan heim og óhætt er að fullyrða að La Primavera er flaggskip ítalskrar matargerðar á Íslandi. Ítölsk matargerð gengur út á einfaldleikann þar sem ferskleiki hráefnisins er algjör útgangspunktur. Leifur Kolbeinsson stendur í brúnni en hann stofnsetti staðinn ásamt Ívari Bragasyni á sínum tíma. - Kjartan

Lesa meira

 
Fridrik_V

Friðrik V

Friðrik V hefur flutt á nýjan stað á Akureyri, upp í Gilið í „Gömlu bögglageymsluna“ sem mun hafa verið reist sem sláturhús árið 1907 og er því hundrað ára á árinu og á sér mikla sögu. Það er vel við hæfi á hundrað ára afmæli hússins að Brasserie Friðrik V, flaggskip Norðlendinga, skuli flytja í það hús. Áherslan er sem fyrr á hráefni úr Eyjafirði og af Norðurlandi en nú er ekki eingöngu veitingarekstur í gangi heldur er líka rekin sælkeraverslun á jarðhæð þar sem einnig er lögð áhersla á allt sem norðlenskt er. Fallegur bar er á tveimur hæðum á Friðrik V auk þess sem nú er fundaraðstaða á staðnum þar sem minni fyrirtæki eða hópar geta í næði notið glæsilegra húsakynna og veitinga. Friðrik V hefur stækkað svo um munar. Lesa meira
 
Siggi_hall

Siggi Hall á Óðinsvéum

 

Við Óðinstorg hefur aldrei verið í kot vísað. Í gegnum áratugina hefur þar verið rekið veitingahús og nú, í bráðum tíu ár, undir merkjum Sigga Hall, meistara Sigga Hall. Siggi er frumkvöðull og hefur aflað sér fágætrar reynslu og sótt hana víða um heim, allt frá Noregi suður til Spánar og vestur um haf. Hann er þjóðþekktur af því frábæra starfi að kynna íslendingum nútíma matreiðslu og jafnframt hefur hann kennt okkur að meta margt af því góða og einstaka hráefni sem við eigum. Undanfarin misseri hefur hann einnig lagt mikið af hendi við kynningu íslenskra afurða erlendis. Siggi Hall er klárlega einn af máttarstólpum íslenskrar matargerðarlistar. – Kjartan.

Lesa meira

 
argentina

Argentína steikhús

 

Argentína steikhús er „steikhúsið“ á Íslandi, það leikur enginn vafi á því. Síðan 1989 hefur Argentína verið opin á Barónsstígnum unnendum góðra steika til mikillar ánægju. Staðurinn hefur notið mikilla vinsælda alla tíð og á sér marga trygga viðskiptavini. Nafnið Argentína er að sjálfsögðu ekki tilviljun heldur sótt til höfuðlands glóðarsteikingarinnar, Argentínu í Suður-Ameríku, en þar ku hvergi vera glóðarsteikt eins mikið af nautakjöti í heiminum. Argentína steikhús hefur ávallt gert mjög miklar kröfur til þess kjöts sem eldað er á staðnum og látið sérverka það fyrir sig. Argentína er rómantískur staður! - Kjartan

 

Lesa meira

 
Fiskmarkadurinn

Fiskmarkaðurinn

 

Nýlega opnaði veitingastaður hér í borg er ber nafnið Fiskmarkaðurinn eða Fish Market í Aðalstræti 12. Þar ræður ríkjum Hrefna Rósa Sætran sem getið hefur sér gott orð fyrir eldamennsku sína. Það er alltaf ánægjuefni þegar nýir staðir opna sem sýnir glögglega kjark og þor íslenskra veitingamanna og er það sérstakt ánægjuefni að kvenmaður sé í brúnni í þessu tilfelli. Eins og Hrefna segir á heimasíðu staðarins er leitast við að koma fram með nýjungar í íslenskri matargerð og leitað austur á bóginn með bragð og stíl, opið eldhús. Staðurinn er opinn öll kvöld og einnig í hádeginu á virkum dögum sem hlýtur að vera spennandi kostur fyrir fólk sem starfar í miðbænum.

Lesa meira

 
Einar_ben

Einar Ben

 

Það eitt að hin stórbrotna íslenska þjóðhetja, Einar Benediktsson athafnamaður og skáld, hafi í þessu húsi rekið lögmannsstofu og hafið útgáfu fyrsta dagblaðsins á Íslandi, Dagskrá, er bara snilld. Þess vegna hefur Veitingahúsið Einar Ben svo sannarlega sál! Gamla húsið er fallegt og reisulegt, klætt bárujárni og allt í kring er athafnalíf sem á vel við hér í miðbænum svo ekki sé minnst á alla bankana. Áherslan í matargerð á Einari Ben er íslensk, „Hreint Ísland“ þar sem uppruni hráefnisins er rekjanlegur til sveita og bæja. Einar Ben er mjög íslenskur staður og Einar Ben var mjög íslenskur maður. - Kjartan

Lesa meira

 
Sjavar

Sjávarkjallarinn

Í þau fimm ár sem Sjávarkjallarinn hefur verið opinn má með sanni segja að staðurinn hafi slegið í gegn. Bæði fyrir nútímalega, djarfa, íslensk-asíska eldamennsku og ekki síður fyrir hönnun og frábæra staðsetningu. Ég hef verið reglulegur gestur staðarins frá upphafi og ávallt notið vel þó ekki hafi allt fallið í kramið en það er eðlilegt þegar jafn djarft er teflt í matreiðslunni. Staðurinn hefur ratað á síður erlendra fagtímarita og fengið þar góða dóma og hann er á lista yfir áhugaverða staði í heiminum! Lesa meira
 
hotel_budir

Kokkurinn og Kjartan heimsækja Hótel Búðir

Hótel Búðir rekur sögu sína aftur til ársins 1948 eins og fram kemur í máli og myndum á býsna góðri heimasíðu staðarins. Hótel Búðir er eitt af þekktari sveitahótelum landsins og þá ekki síst fyrir matargerð sína svo ekki sé nú talað um hið stórbrotna umhverfi undir jökli. Kaflaskipti urðu í sögu hótelsins þegar það brann árið 2001 en það var síðan endurbyggt í glæsilegum sveitastíl. Eins og fyrr sagði er umhverfið á Búðum stórbrotið og enginn má yfirgefa staðinn án þess að gefa sér tíma til þess að ganga um svæðið.

Lesa meira

 


 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Innranet