Í grænni lautu
Það er merkilegt hvað allur matur bragðast miklu betur úti undir berum himni. Að sitja í grænni lautu með kaffi á brúsa og gott nesti, umkringdur náttúru og fuglasöng ... þá er sumarið komið!
Lesa meira
Flottir og fljótlegir fiskréttir
Fiskur hefur marga kosti – fyrir utan það hvað hann getur verið góður á bragðið – og einn þeirra er sá að hann er yfirleitt fljóteldaður. Einfaldast er náttúrlega að sjóða hann í potti eða steikja hann á pönnu og bera hann síðan fram með kartöflum, hrísgrjónum, góðu grænmeti eða öðru meðlæti, en það er líka hægt að gera svo ótrúlega margt annað og það þarf ekki að taka margar mínútur að töfra fram frábæra fiskrétti, hversdagslega jafnt sem sparilega.
Lesa meira
Góðgæti á svipstundu
Auðvitað er alltaf best að hafa rúman tíma til að undirbúa veislur, hvort sem þær eru litlar eða stórar. En þess er ekki alltaf kostur. Stundum birtist tilefnið skyndilega og öllum að óvörum – einhver gleðilegur viðburður í fjölskyldunni eða vinahópnum, óvæntur gestur sem mann langar til að fagna í góðra vina hópi, vinningur í lottóinu eða lífshappdrættinu.
Lesa meira
Hversdagskræsingar
Við erum alltaf að leita að einhverju einföldu, fljótlegu, tiltölulega ódýru – einhverju sem allri fjölskyldunni fellur í geð, einhverju sem ekki inniheldur hráefni sem þarf að þeytast bæinn á enda til að kaupa, einhverju sem er frekar hollt – já, og auðvitað þarf rétturinn líka að vera gómsætur. Þó það nú væri.
|nl|
Lesa meira
Þegar ekki á að grilla ...
Það er ekki alltaf sól og gott veður á íslensku sumri og fólk getur orðið leitt á grillmatnum en langað samt í eitthvað saðsamt og staðgott sem þó krefst ekki mikillar fyrirhafnar.
Lesa meira
Borgarar og bollur á grillið
Það er hægt að gera fleiri grillrétti en einfalda hamborgara úr hakki án þess að það taki mikið lengri tíma. Og kosturinn er að ekki þarf að óttast að kjötið verði seigt. Það er heldur ekki þörf á að kaupa dýrt hráefni eða marínera það lengi til að fá meyra og safaríka borgara.
Lesa meira
Grænmeti í haustlitunum
Það er engin ástæða til að örvænta þótt sumarið sé að renna sitt skeið á enda og kannski ekki lengur stemmning fyrir svalandi og frísklegum salötum og öðrum léttum grænmetisréttum þar sem mest ber á hárauðum og fagurgrænum litum. Nei, nú er tími haustgrænmetisins runninn upp og aðrir litir hafa náð yfirhöndinni. Rófur, gulrætur, kartöflur, kál ...
Lesa meira
Grænt, gott og fljótlegt
Nú er gróðurinn alls staðar í blóma, heyannir standa sem hæst og íslenska grænmetið streymir á markaðinn. Og hvað liggur þá beinna við en að bera fram einfalda og góða grænmetisrétti fyrir fjölskylduna? Rétti sem ekki tekur langan tíma að útbúa en eru hollir, léttir og umfram allt bragðgóðir?
Lesa meira
Sælkerasúpur
Á köldum vetrardegi er gott að bjóða upp á matarmikla, heita og nærandi súpu, gjarna vel kryddaða og bragðmikla. Það þarf alls ekki að vera tímafrekt eða fyrirhafnarsamt að útbúa sannkallaða sælkerasúpu sem öll fjölskyldan kann að meta og það er hægt að stytta sér leið á ýmsa vegu, t.d. með því að nota niðursoðnar baunir, tómatmauk úr dós og fleira.
Lesa meira
Pasta í ýmsum myndum
Einn kosturinn við pastarétti er líka sá að flestum þeirra er svo auðvelt að breyta. Ef ykkur líkar ekki við eitthvert tiltekið grænmeti er oftast lítið mál að nota eitthvað annað í staðinn. Ef þið viljið gera pastarétt sem inniheldur kjöt eða fisk að grænmetisrétti er iðulega hægt að sleppa hráefninu sem þið viljið ekki nota. Ef þið viljið aftur á móti meira kjöt – nú, þá er minnsta mál í heimi að bæta því við.
Lesa meira
Smjördeig bjargar kvöldinu
Frosið smjördeig er sannkallaður bjargvættur þegar maður stendur úti í búð eftir vinnu, á von á stelpunum í saumaklúbb um kvöldið og ekkert er tilbúið. Já, og reyndar einnig við fjöldamörg önnur tækifæri. Það er næstum tilbúið til notkunar – maður tekur bara plöturnar úr pakkanum ...
Lesa meira
Fylltar pönnukökur
Það er auðvelt að útbúa fljótlegan og góðan kvöldverð úr pönnukökum, líka þótt komið sé seint heim, enda er fyllingin sjaldnast eitthvað sem krefst mikillar eldamennsku. Að vísu er mikill kostur ef unnt er að láta deigið bíða áður en það er notað, þá er steikingin auðveldari og pönnukökurnar betri, en það má alveg útbúa það að morgni dags og láta það standa í ísskápnum til kvölds.
Lesa meira
Veisluréttir úr kartöfluafgöngum
Líklega er fátt sem við eigum jafnoft afgang af og kartöflur. „Æi, ég er alltaf í vandræðum með kartöfluafganga,“ segir fólk stundum við mig. „Mér finnst þær svo óspennandi ef þær eru bara hitaðar í vatni eða örbylgjuofni og það er ekki alltaf hægt að búa til biximat eða annað slíkt. Hvað er eiginlega hægt að gera við þær?“
|nl|
|nl|
Lesa meira
Komdu og skoðaðu í frystikistuna mína
Á mörgum heimilum þarf auðvitað ekkert að velta fyrir sér hvað eigi að gera við afgangana, þeir eru bara borðaðir um hátíðarnar. Stundum hverfur maturinn einfaldlega úr ísskápnum að næturlagi ?
Lesa meira
Seðjandi salöt
Salat getur verið svo ótalmargt. Það er ekki ýkja langt síðan það fyrsta sem flestum datt í hug þegar salat var nefnt var annaðhvort hrásalat, oftast úr smátt skornu hvítkáli og kannski með rifnum gulrótum, söxuðum eplum og ananasbitum, blandað majónesi, eða þá majónesídýfur af ýmsu tagi, t.d. rækjusalat.
Lesa meira
Núðlur með meiru
Það var mikil blessun fyrir sísvanga námsmenn og aðra blanka eldhúsviðvaninga þegar skyndinúðlur komu á markað hér á landi. „Matreiðslan“ er svo ótrúlega einföld, margir þessara rétta eru furðu góðir, og svo eru þeir býsna seðjandi og mjög ódýrir. Tilvalinn hádegismatur í skólanum eða á vinnustaðnum, enda þarf ekki annað til en sjóðheitt vatn og skál eða stóran bolla. Núðlurnar eru settar í bollann ásamt meðfylgjandi kryddi, heitu vatni hellt yfir og látið standa í örfáar mínútur.
Lesa meira
Kjúklingaveisla á svipstundu
Það er bæði auðvelt og fljótlegt að búa til alls kyns góðgæti úr kjúklingi, ekki síst beinlausum kjúklingabringum. Einfaldast af öllu er auðvitað að nota tilbúna sósu úr krukku og það er vissulega hægt að fá margar góðar sósur sem gera kjúklinginn að sannkölluðum veislumat.
Lesa meira
Ég bý bara til eggjaköku
Eggjakaka – er yfirleitt til nokkuð fljótlegra ef tíminn er naumur og mann langar í eitthvað létt og einfalt? Og eggjakökur – einfaldur matur gerður úr einföldu hráefni – geta líka verið einstaklega góðar og girnilegar.
Lesa meira


