Innlit

27

FRÖNSK SUMARVEISLA

Dagana 10. - 13. júní verður frönsk sumarveisla á Gallery Restaurant og nú er einstakt tækifæri fyrir aðdáendur franskrar matargerðarlistar að njóta unaðar í mat og víni. Í boði er fimm rétta franskur sælkeraseðill ásamt úrvalsvínum frá Gruaud-Larose.

Lesa meira
 

Biblíumatur í Neskirkju á fimmtudögum

Neskirkja stendur fyrir spennandi uppákomu í hádeginu næstu fimmtudaga en þá verður eldaður biblíumatur í eldhúsi kirkjunnar. Jesús var veislumaður en hvers konar mat borðaði hann og hverjar eru matarhefðirnar í Biblíunni? Sr. Sigurður Árni Þórðarson og Ólafía Björnsdóttir elda matinn og var fyrsta máltíðin 16. október sl. þar sem boðið var upp á kjúklingarétt Maríu í Nasaret Lesa meira
 
Hakon-Mar

Hákon Már er mættur á svæðið

Hákon Már Örvarsson er mættur til leiks eftir  smá hlé og ævintýramennsku í útlöndum. Nú er hann kominn að rekstri veitingahúss og fer sínar leiðir. Það er veitingastaðurinn Gló við Engjateig þar sem Yogasetrið er til húsa. Þar hefur Guðni Gunnarsson og Guðlaug Pétursdóttir rekið veitingahús þar sem áhersla hefur verið lögð á heilsusamlega matseld og Hákon mun taka þá hugmynd enn lengra Lesa meira
 
santamaria.jpg

Santa Maria

Nýverið opnaði veitingastaðurinn Santa Maria við Laugaveg 22a. Þar er reiddur fram Mexíkóskur heimilismatur að sögn eigenda. Þeir hafa fengið mexíkóska matreiðslumenn í heimsókn og að sögn eru Mexíkóættaðir hér á landi afar kátir yfir þessari viðbót í annars góða veitingahúsaflóru Reykvíkinga Lesa meira
 
GE-0508-15-05_3

Textílhönnuður og tónlistarmaður

Ungu hjónin Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir og Daníel Þorsteinsson hafa, ásamt börnunum sínum, Þorsteini Huga, 1 1/2 árs, og Iðunni, 5 ára, komið sér vel fyrir á fallegri hæð í Hlíðunum í Reykjavík. Lesa meira
 
GE-0504-14-08_3

Eins og að koma inn í amerískan ?diner?

Það er eins og að ganga inn í 7. áratuginn að ganga inn í eldhúsið hjá þeim hjónum Ingólfi Arnarsyni og Erlu Sigurðardóttur og þremur börnum þeirra, Erni, 16 ára, Aðalheiði, 9 ára og Halldóri, 22 mánaða. Fjölskyldan býr í tveggja hæða íbúð á fallegum útsýnisstað í gamla bænum í Hafnarfirði. Lesa meira
 
GE-0505-69-01_3

Allt í stíl

Það er hlýlegt viðmót sem mætir viðskiptavinum snyrtistofunnar Jöru við Hafnarstrætið á Akureyri, enda leggur eigandinn, Björk Traustadóttir, áherslu á að vel sé tekið á móti þeim sem þangað koma. Þó að þeir séu eðlilega færri sem leggja leið sína heim til hennar virðist það samt vera á margra vitorði að sami hlýleiki einkenni heimilið hennar og að þar, sem á snyrtistofunni, fari ekkert á milli mála að Björk er fagurkeri fram í fingurgóma. Lesa meira
 
GE-0405-04Innlit_i_eldhus

Látlaust og fallegt eldhús

Guðrún Guðmundsdóttir og Jón Ragnarsson festu kaup á raðhúsi, í nýju hverfi í Garðabænum, fyrir þremur árum. Húsið var tilbúið undir tréverk og því var að mörgu að huga áður en þau fluttu inn ásamt þremur börnum sínum. Þar á meðal var að kaupa fallega eldhúsinnréttingu og góð eldhústæki. Innréttinguna fengu þau í IKEA og eldhústækin í Eirvík. Lesa meira
 
GE-0411-14-02_3

Falleg íbúð í Vesturbænum

Í fallegu húsi í gamla Vesturbænum búa Hildur S. Aðalsteinsdóttir og Björn Hjaltested ásamt þriggja ára gamalli dóttur sinni. Þau keyptu hæð í þessu húsi í maí 2003 og fluttu inn í júlí sama ár eftir miklar breytingar. Við hjá Gestgjafanum fórum í heimsókn til þeirra og fengum að skoða eldhúsið í íbúðinni sem þau breyttu svo um munaði. Lesa meira
 
GE-0410-10-06_3

Eldhús með sál

Leikmyndahönnuðurinn Systa Björnsdóttir býr í tæplega 100 fermetra íbúð í hjarta Mílanóborgar ásamt sambýlismanni sínum Gino Menozzi. Henni finnst fátt skemmtilegra en að elda góðan mat og þótt hún komi ekki heim úr vinnunni fyrr en um tíuleytið eldar hún samt sem áður. Systa var ekki mikil matarkona áður en hún flutti til Ítalíu en segir matreiðsluna vera orðna ástríðu og rándýrar uppskriftabækur fylla bókahillurnar. Lesa meira
 
GE-0412-61-09_3

Praktískt eldhús fyrir barnmarga fjölskyldu

Inga Lind Karlsdóttir og Árni Hauksson búa í glæsilegu húsi á Arnarnesi en þangað fluttu þau í febrúar sl. eftir að hafa gert töluverðar endurbætur og endurskipulagt innanhúss. Þau eru alsæl á nesinu og sömuleiðis börnin þeirra fjögur, enda er Arnarnesið eitt af þeim hverfum sem er að ,,yngjast upp.” Lesa meira
 
GE-0502-51-09_3

Með Miklubrautina á eldhúsborðinu

Margrét Guðnadóttir, körfugerðarkona og ein af listakonunum tíu sem eiga og reka Kirsuberjatréð á Vesturgötu 4, réðst í það fyrripart vetrar ásamt eiginmanni sínum, Ugga Agnarssyni, að stækka og endurgera eldhúsið. Þar voru engin vettlingatök viðhöfð og enduðu þau með sjálfa Miklubrautina inni á borði. Lesa meira
 
GE-0407-8E4B3974

Opið, bjart og stílhreint eldhús í Garðabænum

Að þessu sinni fengum við að skoða nýuppgert eldhús í fallegu húsi í Garðabænum. Fjölskyldan flutti þangað fyrir sjö árum og hafði lengi ráðgert að endurnýja eldhúsið. Ívar Örn arkitekt var fenginn til að gera frumdrög að innréttingunni en smiðshöggið rak Ella Stefánsdóttir innanhússarkitekt hjá Trésmiðjunni Borg. Opið, stílhreint og vinnuvænt eldhús var haft að leiðarljósi við hönnunina en það var völundurinn og byggingatæknifræðingurinn Hjörtur Kolsoe sem sá um smiðsverk, pípulagnir og rafmagn. Lesa meira
 
GE-0403-03Bryndis_Schram

Sendiherraeldhús í Helsinki

Við hjá Gestgjafanum heimsóttum Helsinki nú fyrr í vetur og fengum þá m.a. tækifæri til þess að heimsækja sendiherrafrúna okkar þar í borg, Bryndísi Schram. Sendiherrabústaðurinn í Helsinki er í fallegu fjölbýlishúsi við Pohjoisranta sem liggur meðfram sjónum og smábátahöfninni skammt frá miðbænum. Lesa meira
 
GE-0401-07Innlit

Lítið eldhús en gott

Eldhúsið hjá mér er rosalega lítið en ykkur er samt velkomið að líta inn,” segir Helena Ólafsdóttir, þjálfari kvennalandsliðsins í fótbolta, þegar blaðamaður Gestgjafans hefur samband við hana og falast eftir innliti í eldhús. Hún hefur komið sér vel fyrir í skemmtilegri íbúð í Grafarvoginum, ásamt Ólafi Daða, sjö ára syni sínum, og hefur fáu breytt frá því að þau fluttu inn. Lesa meira
 
GE-0408-03_Trollaborgir

Eldhús með útsýni

Þegar Hjördís Arnardóttir og Frosti Gunnarsson fluttu í nýtt hús í Grafarvoginum, ásamt sonum sínum, Sindra og Styrmi, voru þau einu íbúar götunnar. Síðan eru liðin sjö ár og í dag iðar gatan þeirra af lífi og fjöri. Til að byrja með var sett upp bráðabirgðainnrétting í eldhúsinu hjá þeim en í dag skartar það fallegri innréttingu sem auðvelt er að vinna í. Lesa meira
 
GE-0402-08Innlit_Lilja

Eldhúsið endurnýjað

Eldhúsinnréttingin hjá Lilju Ólafsdóttur og Gunnari Sigurðssyni var að hruni komin þegar þau létu hendur standa fram úr ermum og fjárfestu í nýrri. Aðeins liðu tvær vikur á milli þess sem gamla innréttingin var tekin niður og þar til þau hjónakorn voru byrjuð að raða inn í skápana í nýju eldhúsi, sem þau eru alsæl með. Lesa meira
 
GE-0409-12-01_3

Matur er minning

Guðjón Steinsson og Vala Albertsdóttir fluttu úr 300 m2 húsi í Seljahverfi, þegar húsið var orðið of stórt fyrir þau tvö að þeirra mati, í 130 m2 íbúð í Garðabæ. Það þarf útsjónarsemi og gott skipulag til að koma sér þægilega fyrir í minna húsnæði og er eldhúsið þar engin undantekning, sérstaklega ef heimilisfaðirinn er lærður matreiðslumeistari og ástríðukokkur. Við fengum að kíkja inn í eldhús þeirra hjóna og sjá hvernig þau hafa komið sér fyrir. Lesa meira
 


 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefhönnun