Heimboð

GE-0705-63-01_2

Franskur stjörnukokkur á Íslandi í 14. sinn

Blaðamaður hitti meistarakokkinn Philippe Girardon á Hótel Holti í febrúar síðastliðnum en hann var þá staddur hér á landi í 14. sinn og sennilega ekki það síðasta. Ástæðan fyrir veru hans hér að þessu sinni var árlegur hátíðarkvöldverður Fransk-íslenska verslunarráðsins þar sem hann sá um að laða fram ljúffenga rétti í hæsta klassa.

Lesa meira
 
GE-0509-51-03_3

Undir skólans menntamerki ...

... mætast vinir enn í dag,“ segir í skólasöng Menntaskólans á Akureyri. Fimmtán 15 ára samstúdentar frá MA komu saman á dögunum í sjö rétta sælkeraveislu þar sem ekkert var til sparað. Hugmyndin að sælkeraveislunni varð til í þröngum hópi MA-inga sem höfðu samfylgd suður um heiðar eftir að hafa fagnað 15 ára stúdentsafmæli sínu í höfuðstað Norðurlands. Lesa meira
 
GE-0508-54-07_3

Vænt og vel grænt

Það lýsir viljasterkum manni að ákveða tvítugur að aldri, í byrjun áttunda áratugar síðustu aldar, að hætta að borða kjöt og fisk og neyta einungis grænmetis. Ágúst Pétursson, grunnskólakennari og höfuðbeina- og spjaldhryggjarnuddari, segir að ákveðin heimspeki hafi verið fólgin í því að borða ekki dýrin. Lesa meira
 
GE-0506-75-19_3

Austurlensk garðveisla í sumarbyrjun

Til að fagna sumarkomu buðu Bjarni Óskarsson og Hrafnhildur Ingimarsdóttir, eigendur Sælkerabúðarinnar og Nings veitingahúsa og veisluþjónustu, til grillveislu, engri annarri líkri, á heimili sínu. Sjálfur er Bjarni listakokkur og sást það glögglega á veisluborðunum sem svignuðu undan girnilegu góðgæti. Lesa meira
 
GE-0503-04-04_3

Kornflexpakkinn kveikti hugmyndina

Kornflexpakki á morgunverðarborði varð til þess að Auður Ögn Árnadóttir fékk þá snilldarhugmynd að bjóða vinkonum sínum í ,,brunch” og láta um leið gott af sér leiða. Þetta var enginn venjulegur ,,brunch” heldur var hann haldinn til styrktar Félagi einstakra barna. Lesa meira
 
GE-0505-44-03_3

Saltfiskur í kryddvatni

Eins og við urðum svo skemmtilega vör við á ferð okkar um Akureyri og nágrenni eru það ekki bara þeir sem starfa við matargerð eða matvælaframleiðslu fyrir norðan sem eru meðvitaðir um verðmæti hráefnisins og matarsögunnar sem Norðlendingar eiga, heldur er þar fjöldinn allur af áhugafólki um matargerð sem gerir sitt til að halda í hefðirnar. Friðrik Adolfsson, deildarstjóri leiguflugsdeildar Flugfélags Íslands, er einn þeirra. Lesa meira
 
GE-0412-31-25_3

Grísku gyðjurnar í Garðabænum

Þórunn og Ingibjörg Lárusdætur buðu til áramótaveislu á heimili Ingibjargar í Garðabænum í tilefni af útgáfu jólaplötu systranna þriggja. Dísella, sem er yngst, er við söngnám í New Jersey og var því fjarri góðu gamni þetta kvöldið. Eins og tónlistin sem rennur um æðar þeirra er mataráhuginn þeim einnig sameiginlegur en þó á mismunandi hátt. Lesa meira
 
GE-0411-06-12_3

Vinkvennakaffi Alberts

Undanfarin ár hef ég boðið nokkrum vinkonum mínum í kaffi á haustin. Þetta hafa alltaf verið hinar skemmtilegustu samkomur og kjörinn vettvangur til að prófa nýjar tertur og brauðrétti. Þegar stórum og ólíkum hópi er boðið heim þarf að huga að mörgu. Gott skipulag skilar sér í skemmtilegri stemmningu. Lesa meira
 
GE-0412-06-06_3

Jólaboð á Fáskrúðsfirði

„Við kölluðum það „að sækja jólin“ að fara til messu á aðfangadagskvöld. Jólasteikin var mjög mismunandi; kalkúni, rjúpur, gæs – engin regla á því. Alltaf var borðaður jólagrautur með möndlu og henni fylgdi möndlugjöf. Eftir að búið var að opna pakkana voru gjafirnar skoðaðar og svo var lesið og lesið langt fram á nótt. Jólaboðin hjá okkur voru líka alltaf vinaboð þar sem flestir ættingjar okkar bjuggu víðs fjarri.“ Lesa meira
 
GE-0410-15-06_3

Eyjapeyinn býður í mat!

Síðastliðin fjögur ár hefur Óli Boggi boðið vinkonum heim til sín í árlegan fagnað. Hópurinn samanstendur af átta stelpum, auk Óla Bogga, en öll koma þau frá Vestmannaeyjum nema ein skvísan. Lesa meira
 
GE-0410-06-02_3

Flugfreyjusaumaklúbbur

Þessi bráðskemmtilegi saumaklúbbur er sama marki brenndur og ýmsir aðrir; þar er ekki mikið saumað en þeim mun meira hlegið og talað! Þó kemur fram að á þeim tíu árum sem flugfreyjurnar hafa haldið hópinn hefur ein þeirra heklað sjal ... Lesa meira
 
GE-0502-35-05_3

Dúndurfjör í fyrsta kotinu

Eftir nokkurra mánaða spartl- og málningarvinnu, pípu- og raflagnavinnu, lökkun og parketlagningu er stóra stundin runnin upp. Fyrstu gestirnir ganga í bæinn og gestgjafarnir taka montnir á móti þeim. Maður flytur ekki í fyrstu íbúð á hverjum degi en þegar að stóru stundinni kemur eru væntingarnar miklar, sérstaklega í eldhúsinu. Lesa meira
 
GE-0501-12-02_3

Veisla fyrir lítið

En veislur þurfa ekki að vera dýrar, heldur ekki þótt vel sé veitt af mat og drykk. Það er hægt að útbúa veglegar veitingar með litlum tilkostnaði, það fengum við að sjá þegar Hvarf, félag efna- og lífefnafræðinema við Háskóla Íslands, hélt Októberfest í haust. Októberfest er árlegur viðburður hjá Hvarfsfélögum og nú langaði stjórn félagsins til að gera meira úr samkomunni en áður og vera með mat fyrir alla og þá eitthvað meira en bara pylsur. Lesa meira
 
GE-0503-30-08_3

Úr læknastörfum í eldhúsið

Það er engum ofsögum sagt að matarástríða Ítala sé smitandi. Læknirinn Ása Eiríksdóttir, sem starfar á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, hefur sinnt allnokkrum erfiðum tegundum af smiti í starfi sínu en óhætt er að segja að þetta smit, sem hún ræður ekkert við, sé af afskaplega ánægjulegum toga. Lesa meira
 
GE-0412-12-15_3

Hið ljúfa líf

Síðastliðið vor snæddu 19 skólasystur saman galakvöldverð í tilefni af því að þá voru liðin 45 ár frá því að þær útskrifuðust úr Verslunarskólanum en þær hafa allar götur síðan haldið hópinn. Lesa meira
 
GE-0410-07-08_3

Diskódansandi Sólarsystur

Þær hafa hist í hverjum mánuði, gegnum tíðina, og gott betur. Á sumrin taka þær sér frí frá reglubundnum saumaklúbbum en sitja þó ekki auðum höndum því þær fara í útilegur eða leigja sér gistiheimili og fara þá ásamt mökum og börnum Lesa meira
 
GE-0409-02-07_3

Tíu kátar konur

Við fallega götu í Vesturbæ Reykjavíkur leynist Litlibær, rúmlega aldargamalt hús. Á sólríkum sumardegi bauð húsmóðirin, Elín Sigrún Jónsdóttir, níu kátum konum í bæinn en þær tilheyra heilsuklúbbi sem þær stofnuðu fyrir sex árum. Lesa meira
 
GE-0503-56-10_3

Ástríðukokkurinn Kjartan

Hjónin Kjartan Ólafsson og Karitas H. Gunnarsdóttir buðu góðum vinum heim fyrir skömmu en öll tengjast þau hestamennsku á einn eða annan hátt. Kjartan er vel þekktur fyrir færni sína í matargerð. Lesa meira
 
GE-0406-0105_Grillgaurar

Skál, enn og aftur ...

Greifarnir er félagsskapur ungra manna úr Hafnarfirðinum sem hafa það fyrir sið að koma saman nokkrum sinnum á ári og efna þá til veislu sem ekki er af lakara taginu! Þeir leggja höfuðáherslu á að réttirnir séu lagaðir úr eðalhráefni og að njóta hvers réttar með góðum, vel völdum vínum. Lesa meira
 
GE-0407-01_Finnslet

Finnskt í Firðinum

Gullsmiðirnir Sigga og Timo, sem rekið hafa gullsmíðaverkstæði og skartgripaverslun í Hafnarfirði um árabil, eru undir skandinavískum áhrifum í hönnun sinni, ekki síst finnskum þar sem þau eru bæði menntuð í gullsmíði í Finnlandi. Lesa meira
 


 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Heimasíður