Grænt og gómsætt
Grænmeti er að mínu mati eitt skemmtilegasta og auðveldasta hráefni sem völ er á og nú, þegar sumri tekur að halla, er ekki úr vegi að nota tækifærið og elda úr uppskerunni. Enn er hægt að fá ferska íslenska uppskeru og svo sjást víða um þessar mundir rjóðir og frískir krakkar rogast heim með uppskeruna úr skólagörðum landsins og úr henni er nú gaman að elda. Það er ótrúlegt hvað börn borða vel það sem þau hafa ræktað sjálf og það er hrein unun að horfa á þau kyngja sínu eigin grænmeti full af stolti og dugnaði.
Lesa meira
Smáréttaveisla
Það er alveg hægt að halda flottar veislur án þess að veisluborðið svigni undan óhollum brauðtertum, löðrandi í majónesi, og dísætum hnallþórum, enda fer þannig veislum fækkandi þar sem svo margt annað gott og hollt er í boði.
Lesa meira
Vetrarmatur
Það er fátt notalegra en að koma inn úr kuldanum í skammdeginu loppinn og með kaldar tær eftir skauta-, skíða- eða gönguferð og finna ilminn af nýbökuðu brauði og heimalagaðri súpu. Það er eiginlega þess virði að fara sérstaklega út í kápu, með múffu og eyrnaskjól, og láta sér verða svolítið kalt til að upplifa þessa tilfinningu.
Lesa meira
Gómsætt án sykurs - létt og gott
Margir halda að sykursjúkir þurfi að vera á einhverju sérstöku fæði en í rauninni er það bara hollt, vel samsett og fjölbreytt fæði eins og við ættum að sjálfsögðu öll að venja okkur á. Það sem skiptir miklu máli fyrir sykursjúka, og reyndar alla sem vilja borða hollan mat, er að velja hann úr öllum fæðuflokkum, borða góð kolvetni, svo sem gróft brauð, pasta og hrísgrjón, neyta mikils af trefjaríkri fæðu, t.d. ávöxtum og grænmeti, og takmarka fituneyslu, sérstaklega hörðu fituna.
Lesa meira
Einfalt og létt
Mikið úrval af nýju og fersku hráefni er að finna um þessar mundir í verslunum landsins og oft er hægt að kaupa glænýja grænmetisuppskeru beint frá bóndanum. Fiskur er hollt, einfalt og gott hráefni sem tekur lítinn tíma að matreiða og ekki spillir fyrir ef við veiðum hann sjálf. Já, ég held meira að segja að það geti stundum verið fljótlegra að renna fyrir fisk sjálfur en að keyra alla Austfirðina í leit að ferskum fiski eins og ég gerði í fyrrasumar.
Lesa meira
Gott á grillið
Nú er loksins komið að því að landsmenn geti farið að upplifa hina skemmtilegu og bragðgóðu grillvertíð. Tilhlökkun einkennir oft andrúmsloftið þegar fyrsta grillmáltíðin er borin á borð því að það er einfaldlega merki um að nú sé sumarið loksins komið. Ilmurinn af grillmatnum er svo ómótstæðilegur og seiðandi og hann kveikir í okkur einhverjar notalegar og frumstæðar kenndir.
Lesa meira
Sveitaferð!
Hvort sem ferðinni er heitið upp í Heiðmörk eða Borgarfjörð er nokkuð víst að við þurfum á hressingu að halda og oft er nestið mesta tilhlökkunarefni ferðarinnar, sérstaklega hjá börnunum og auðvitað líka sumum fullorðnum. Þegar farið er í svona rómantískar sveita- eða lautarferðir kemur að sjálfsögðu ekki til greina neitt sjoppufæði sem er því miður allt of einsleitt á Íslandi, hamborgarar, pylsur, majónesfylltar samlokur, kók, kleinur og kökur.
Lesa meira
Þegar dag tekur að lengja
Í mismunandi matarmenningarheimum er að finna bæði hollt og óhollt fæði. Flestir vita að djúpsteikt, saltað, sykrað og feitt er óhollt. Þess vegna er gott að reyna að sneiða hjá þannig matargerð að mestu leyti og velja sér frekar framandi rétti með hollustuna að leiðarljósi, velja frekar rétti sem eru eldaðir upp úr ólífuolíu og hafa að geyma mikið af grænmeti, ávöxtum, baunum og hnetum.
Lesa meira
Gómsætt án sykurs - Með góðum fyrirvara
Það er alltaf gaman að fara í saumaklúbb, hitta vinkonurnar og borða góðan mat. Oft er það nú þannig að maður gleymir sér yfir spjallinu og borðar meira en góðu hófi gegnir og er svo að velta því fyrir sér hvernig í veröldinni maður eigi nú að toppa þessar veitingar í næsta klúbbi.
Lesa meira


