Fróðleikur

domin

Vínskólinn

Starfssemi Vínskólans hefst aftur þann 15. september nk. og mörg spennandi námskeið verða í boði. Lesa meira
 

Fiskidagurinn mikli á Dalvík 11. ágúst

Fiskidagurinn mikli er haldinn hátíðlegur í Dalvíkurbyggð ár hvert, fyrsta laugardag eftir verslunarmannahelgina. Fiskverkendur og fleiri aðilar í byggðarlaginu, ásamt góðum styrktaraðilum, bjóða landsmönnum og gestum landsins í margréttaða fiskiveislu milli kl 11:00 og 17:00 Lesa meira
 
Birkir-Armannsson

Kartöflurnar komnar!

Kartöfluuppskera fyrsta dagsins er ekki stór og reynsla undanfarinna ára sýnir að ekki fá allir sem vilja á fyrsta uppskerudegi. Því er bent á að kartöflur verða teknar upp daglega  næstu vikurnar og þær sendar í verslanir jafn óðum. Ættu því allir að geta gætt sér á nýjum íslenskum kartöflum í sumar.  

Lesa meira
 

Leiðrétting mistök í Jólablaðinu

Við viljum taka fram að þau leiðu mistök urðu í jólablaðinu okkar að í uppskrift að innbökuðum kartöflum, á bls. 120, datt út d í uppsetningu þannig að í stað dl stendur einungis l. Þar á sem sagt að standa 2 ½ dl rjómi. Lesa meira
 
GE-0613-62-01

Vinningshafi

Hrönn Þormóðsdóttir hefur verið áskrifandi Gestgjafans  í átta ár. Hún hafði heppnina með sér þega nafn hennar var dregið úr nöfnum áskrifenda og er nú hamingjusamur eigandi Sensai Premier andlistkremsins sem að sögn vinnur með góðum árangri gegn öldrun húðarinnar. Lesa meira
 
GE-vin_5

Leiðrétting

Svo virðist sem að jólapúki hafi læðst í vinnslu Jólablaðsins og birt ranga mynd af víni mánaðarins í vínbixinu. Í stað þess að birta mynd af Torreon de Paredes Reserva Merlot 2005 birtist mynd af dýrara víni frá sama framleiðanda, Torreon de Paredes Reserva Privada Merlot 2005. Við biðjumst af sjálfsögðu velvirðingar á þessu og vonum að þetta hafi ekki kostað of mikil vandræði. Lesa meira
 

Vanilla

Vanilla er merkilegt fyrirbæri og af mörgum talin allra meina bót. Hún er eitt alvinsælasta bragðefnið í eftirrétti, kökur og drykki og er víða notuð í annars konar matargerð Lesa meira
 
GE-0611-95-05_3

Nokkur hollráð við baksturinn

1. Góðir bakarar nota gjarnan fleiri en eitt ráð til að athuga hvort kakan er bökuð. Þeir athuga t.d. hvernig hún lítur út, hvernig hún lyktar, hvað hún „segir“ og hvernig hún er viðkomu. Ofnar eru misjafnir og því ekki óhætt að fylgja í blindni bökunartímanum sem gefinn er í uppskriftum. Athugið hvernig baksturinn gengur Lesa meira
 
GE-0609-22-12_3

Íslenskt eldhús

„Íslenskt eldhús“ er eitt af þessum hugtökum sem maður fer allt í einu að heyra úr ýmsum áttum en kemst fljótt að því að fólk á ekkert endilega við sama hlutinn þegar það talar um íslenskt eldhús. Þar með er ég alls ekki að segja að þetta sé innantómt hugtak, langt frá því. Lesa meira
 
GE-0609-24-01

Matur og drykkur

Helga Sigurðardóttir er vafalaust sú sem mest hefur mótað hefðbundna íslenska matargerð 20. aldar, að öðrum ólöstuðum. Hún var ekki nema hálfþrítug þegar fyrsta matreiðslubókin hennar, Bökun í heimahúsum, kom út árið 1930. Lesa meira
 
GE-0609-24-04

Súkkulaði ? það besta frá Nóa

Allir þekkja bæklingana sem Nói-Síríus hefur gefið út fyrir hver jól mörg undanfarin ár og hafa ætíð haft að geyma fjölda girnilegra uppskrifta. Í fyrra var ákveðið að gera þessum uppskriftum rækileg skil og Marentza Poulsen var fengin til að velja bestu uppskriftirnar úr bæklingunum Lesa meira
 
GE-0609-24-03

Mortél

Sennilega eru mortél í einhverri mynd eitthvert allra elsta hjálpartækið í eldhúsinu. Steinaldarmenn notuðu íhvolfa steina til að mylja korn og annað og fundist hafa ævaforn mortél við fornleifauppgröft. Lesa meira
 
GE-0609-24-02

Spergilblómkál

Spergilblómkál Spergilblómkál eða romanesco-blómkál er oft talið vera kynblendingur spergilkáls (brokkólís) og blómkáls, sem eru náskyldar tegundir, en reyndar er það blómkálsafbrigði, upprunnið í Hollandi. Kálið er reyndar mun líkara blómkáli en spergilkáli í útliti, nema hvað varðar límónugrænan litinn og nokkuð reglulega toppana sem það myndar. Lesa meira
 

Leiðrétting á uppskrift í Klúbbablaði

Þau leiðinlegu mistök áttu sér stað í uppskrift á bls. 58 í klúbbablaðinu að ein línan datt út en hún á að hljóða svo: 300 g grísakjöt. Setningin á að vera fremst í uppskriftinni Lesa meira
 
GE-0609-23-05_3

Matarsetur á Mikjálsmessu

Eins og við höfum áður sagt frá í Gestgjafanum var í vetur stofnað félag áhugafólks um matararfleifð okkar og íslenska matarmenningu. Félagið hlaut heitið Matur-saga-menning og eru stofnfélagar þess um 130 talsins. Laufey Steingrímsdóttir næringarfræðingur var kjörin formaður. Félagið hefur fengið aðstöðu í húsakynnum Sjóminjasafns Reykjavíkur að Grandagarði 8 og þar er nú verið að undirbúa stofnun Matarseturs, miðstöðvar matar og matarmenningar.

Lesa meira
 
GE-0506-20-10_3

Matvinnsluvélar

Matvinnsluvélin er eitt af þessum tækjum þar sem eigendurnir skiptast í tvo hópa: Annars vegar eru þeir sem finnst hún ómissandi, hins vegar þeir sem geyma hana inni í skáp og nota hana næstum aldrei af því að það er svo mikil fyrirhöfn að ná í hana og setja hana saman, af því að það er svo erfitt að þrífa hana, af því að það er svo fátt hægt að gera með henni ? Lesa meira
 
GE-0508-09-02_3

Spurt og svarað um brauðgerð

Það er í rauninni enginn vandi að baka afbragðsgóð brauð en margar spurningar geta vaknað. Hér á eftir fara svör við nokkrum algengum spurningum sem fólk spyr gjarna þegar það fer að fást við brauðgerð. Lesa meira
 
GE-0407-02_Grasagardurinn

Kryddjurtir á veröndina

Hvað er það sem fær nútímakonu með allt of lítinn tíma til að eyða heilum sunnudagseftirmiðdegi í að setja niður frækorn í mold á svölunum í þriggja stiga hita? Það er nefnilega það. Létt geðveiki kannski, en líka löngunin til að sjá eitthvað vaxa og vita að það mun verða notadrjúgt í veislum sumarsins. Lesa meira
 
GE-0411-75-01_3

Silíkonbyltingin

Þegar minnst er á silíkon kann að vera að brjóstastækkanir séu það fyrsta sem í hugann kemur en það er vissulega hægt að nota þetta efni í margt annað og á síðustu árum hefur notkun þess í eldhúsinu farið ört vaxandi. Lesa meira
 
GE-0508-17-02_3

Heimatilbúin jógúrt

Jógúrt er notuð í alls kyns mat og er afskaplega holl og góð. Margar bragðtegundir fást í verslunum en þær innihalda flestar sykur í nokkru magni. Heimatilbúin jógúrt er svo kostur sem vert er að prófa. Það er auðvelt og ódýrt að búa til jógúrt og gaman að prófa sig áfram með alls konar samsetningar. Eina vandamálið við jógúrtgerðina er að mjólkin er fljót að sjóða upp úr svo að standa þarf yfir pottinum á meðan hún er hituð. Notið stóran, teflonhúðaðan pott og hrærið ekki í á meðan mjólkin er hituð. Lesa meira
 


 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði