Heimatilbúin jógúrt
Jógúrt er notuð í alls kyns mat og er afskaplega holl og góð. Margar bragðtegundir fást í verslunum en þær innihalda flestar sykur í nokkru magni. Heimatilbúin jógúrt er svo kostur sem vert er að prófa. Það er auðvelt og ódýrt að búa til jógúrt og gaman að prófa sig áfram með alls konar samsetningar. Eina vandamálið við jógúrtgerðina er að mjólkin er fljót að sjóða upp úr svo að standa þarf yfir pottinum á meðan hún er hituð. Notið stóran, teflonhúðaðan pott og hrærið ekki í á meðan mjólkin er hituð.
Lesa meira
Eigin uppskera bragðast betur
Vorverkin í garðinum eru að komast á fullt skrið. Að mörgu er að hyggja og þeir sem þurfa fræðslu um garðyrkjustörf, trjáklippingar, skiptingu garðblóma og gróðursetningu gætu hugleitt heimsókn í Grasagarðinn í Laugardal aðra helgina í maí en þá fer þar fram alhliða fræðsla sem kemur að góðum notum.
Lesa meira
Ólífuolía
Ólífutré uxu í Litlu-Asíu og fyrir botni Miðjarðarhafs fyrir 6000 árum. Sennilega hafa ólífutré verið ræktuð lengur en nokkur önnur tré. Þau voru ræktuð á Krít 3000 árum f. Krist og Fönikíumenn fluttu þau með sér til Miðjarðarhafsstranda Afríku og til suðurhluta Evrópu. Grikkir og Rómverjar ræktuðu ólífur og Rómverjarnir fluttu ólífutré með sér eftir því sem ríki þeirra þandist út.
Lesa meira
Vegið og mælt
Flestir vilja fá góðar upplýsingar þegar kemur að uppskriftum en í raun er fremur stutt síðan nákvæmar mælieiningar komu til sögunnar í matargerð. Margir studdust við brjóstvitið, notuðu smávegis af þessu og handfylli af hinu og elduðu þar til maturinn var tilbúinn. Sennilega
Lesa meira
Punktar um potta
Pottar hafa fylgt manninum frá örófi alda. Þeir eru slíkt þarfaþing að matreiðsla án potta er óhugsandi. En pottar eru til í mörgum stærðum og gerðum, hafa margskonar lögun og eru gerðir úr mismunandi efni. Því getur verið þrautin þyngri að finna rétta pottinn. Gestgjafinn brá undir sig betri fætinum og kynnti sér hvað er gott að hafa í huga þegar velja á nýjan pott.
Lesa meira
Stál og hnífur
Góður eldhúshnífur er mikið þarfaþing sem fæstir geta verið án. En hvernig á að velja rétta hnífinn? Hvað þarf að eiga margar gerðir af hnífum? Hvernig er best að geyma hnífa? Til að svara þessum spurningum fór GESTGJAFINN á stúfana og kannaði hnífamarkaðinn.
Lesa meira
Lífrænt?
Lífrænt vottaðar afurðir eru framleiddar samkvæmt alþjóðlegum reglum um lífræna búskaparhætti sem taka tillit til umhverfis- og búfjárverndar. Þetta þýðir meðal annars að í stað tilbúins áburðar, sem inniheldur fá áburðarefni í miklu magni, er notaður lífrænn áburður eins og búfjáráburður og molta sem eru náttúrulegir áburðargjafar og innihalda fjölda næringarefna.
Lesa meira
Silíkonbyltingin
Þegar minnst er á silíkon kann að vera að brjóstastækkanir séu það fyrsta sem í hugann kemur en það er vissulega hægt að nota þetta efni í margt annað og á síðustu árum hefur notkun þess í eldhúsinu farið ört vaxandi.
Lesa meira


