Greinasafn

Raudara

Rauðará við Rauðarárstíg

Rauðará, við Rauðarárstíg, er staður sem átt hefur vinsældum að fagna undanfarin misseri. Staðurinn hefur verið við lýði í meira en áratug og staðsetning hans er skemmtileg og miðsvæðis uppundir Klambratúni. Húsið sem hýsir Rauðará á sér býsna merka sögu en þar hóf Hólmjárn nokkur öl og gosdrykkjaframleiðslu árið 1928 (rétt fyrir síðustu efnahagskreppu) undir nafninu Þór. Árið 1967 tók Ölgerð Egils Skallagrímssonar við og þarna var brugghús allt til ársins 1985. Ýmis ummerki á staðnum sýna svo ekki verður um villst að þarna var áður drykkjarframleiðsla. Rauðará er ekki eina veitingahúsið sem starfrækt hefur verið í húsinu en áður var rekinn þarna líbanskur staður.

Lesa meira

 
Hamborgari

Hamborgarar bæjarins

Hamborgarar eru þemað í rýninni að þessu sinni og ólíkt öðrum heimsóknum okkar fórum við saman á alla staðina. Við gerðum fyrst könnun á því hvaða staðir væru þeir vinsælustu þegar kemur að hamborgurum og var niðurstaðan; American Style, Búllan, Grillhúsið, Kringlukráin og Vitabar.

Ekki var farið á staði sem eru með hamborgara eftir erlendri fyrirmynd eða eru erlendar keðjur.

Á öllum stöðunum pöntuðum við vinsælasta hamborgara á hverjum stað. Sitt sýnist hverjum en þetta er okkar sameiginlega niðurstaða eftir þessar heimsóknir.

Lesa meira

 
Lava

Lava í Bláa Lóninu

Enn og aftur höldum við áfram för okkar á veitingahús utan höfuðborgarsvæðisins. Nú er komið að því að heimsækja Reykjanesið og fyrir valinu varð Lava veitingahús í Bláa lóninu. Sumri er tekið að halla en sem fyrr þá skín blessuð sólin á leið okkar út Reykjanesið. Þegar komið var í Bláa lónið þá var þar fyrir fjöldi gesta og erlendir gestir í miklum meirihluta sem kemur ekki á óvart. Það er með ólíkindum það aðdráttarafl sem þessi staður hefur haft fyrir Ísland í gegnum árin og ekkert lát virðist vera á. Það er mjög við hæfi að gestir geti notið góðra veitinga eftir vel heppnaða ferð í lónið sjálft í þessu einstaka umhverfi í frábæru veðri.

Lesa meira

 

Hótel Hamar

Eftir að hafa heimsótt veitingahús á Suðurlandi undanfarið var ákveðið að taka stefnuna á Vesturland. Að þessu sinni lá leiðin í Borgarfjörð. Eins og flestir landsmenn hafa komist í kynni við þá hefur veðurblíðan verið með ólíkindum undanfarið og svo var einnig seinnipart þeirrar viku í lok júlí sem ég heimsótti Borgarfjörð. Vesturlandið skartaði sínum fegurstu fjöllum og eins og segir var fjallasýnin óhjákvæmileg! Ég var með tilhlökkun í brjósti yfir því að heimsækja Hótel Hamar í fyrsta sinn en nokkra þekki ég sem koma þar við nokkuð reglulega og fá sér að borða og líkar vel. Við renndum fram hjá Borgarnesi og skömmu síðar vorum við komin í hlað á Hótel Hamri.

Lesa meira

 
Menam

Menam á Selfossi

Aftur tökum við félagarnir fyrir veitingahús á Suðurlandi og nú er það tælenska veitingahúsið Menam á bökkum Ölfusár sem státar af þeim árangri að hafa verið opið í 12 ár sem telst bærilegur árangur nú til dags. Eins og lesa má á mjög svo vandaðri heimasíðu staðarins www.menam.is á húsið sem hýsir staðinn sér langa og merkilega sögu án þess að farið verði nánar út í hana hér. Það er ekki á hverjum degi sem hægt er að heimsækja jafn sérhæfðan veitingastað og Menam utan stórhöfuðborgarsvæðisins. Á Menam, sem þýðir „Við fljótið“, er lögð áhersla á tælenska og/eða alþjóðlega matargerð og alúðlega þjónustu og er veitingastofan í tælenskum stíl. Lesa meira
 
Hotel_Ranga

Hótel Rangá

Suðurlandið skartaði sínu fegursta á leiðinni austur á Hótel Rangá, skínandi kvöldsól og fjallasýnin óhjákvæmileg: Hekla, Eyjafjallajökull og Vestmannaeyjar þegar nær dró. Hestar og sauðfé í haga með afkvæmi sín. Þvílík fegurð. Það er ekki laust við að listin aukist og tilhlökkunin verði enn þá meiri við slíkar aðstæður. Þegar rennt var í hlað þá var ljóst að hér eru menn ekki með hendur í skauti því við blasa framkvæmdir hvað varðar stækkun hótelsins og ekki síst matsalarins sem snýr út að Rangánni sjálfri og munu gestir hafa enn betra útsýni í austurátt í nýjum sal. Lesa meira
 
GE-0908-62-5

Smágrís frá Ormsstöðum

Við meðhöndlun á bragðgóðum grís gildir það sama og með nautakjötið að best er að krydda það sem minnst.  Þar sem smágrísinn er svo meir er ekki  nauðsynlegt að láta hann liggja í olíunni, annars er sama aðferð notuð og við nautið.  Lesa meira
 
27

FRÖNSK SUMARVEISLA

Dagana 10. - 13. júní verður frönsk sumarveisla á Gallery Restaurant og nú er einstakt tækifæri fyrir aðdáendur franskrar matargerðarlistar að njóta unaðar í mat og víni. Í boði er fimm rétta franskur sælkeraseðill ásamt úrvalsvínum frá Gruaud-Larose.

Lesa meira
 

Vinningshafi í áskrifendahappdrætti!

Vinningshafi í happdrættinu um námskeið fyrir allt að 10 manns í versluninni Súkkulaði og rósir er: Vignir Arnarson og vitað er að hann ætlar að færa eiginkonunni fréttirnar en hann segir að hún sé algjör snillingur í allri matargerð og súkkulaðifíkill af bestu gerð.

Lesa meira
 
gullfoss

Gullfoss

 

Gamla Eimskipafélagshúsið er gríðarlega fallegt hús. Ég minnist þess með hlýju þegar það hýsti starfsemi HF Eimskipafélags Íslands. Hver hefði trúað því að í dag væri rekið þar Hótel og veitingastarfsemi! Kannski ekki svo fjarlægt þegar allt kemur til alls því að útflutningur landsmanna var og er enn þá matvara, sjávarfang og þar hefur Eimskipafélagið spilað stórt hlutverk. Þema hins nýja staðar, Gullfoss, er spænskt. Spánn er og verður kannski það land sem er mikilvægast allra landa hvað útflutning varðar frá Íslandi. Veitingastaður á þessum stað, í þessu húsi, er mikið tækifæri og nafnið Gullfoss er virkilega viðeigandi án þess að farið verði nánar út í það. Guðvarður Gíslason er enginn nýgræðingur í bransanum heldur er hann einn af þeim mest framsæknu nú á dögum. Hver man ekki eftir Gauki á Stöng og Apótekinu, er ég að gleyma einhverju?

Lesa meira

 
hnetur

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Svo eiga þær það til að gleyma hvar birgðirnar liggja og hneturnar spíra og verða að trjám, 3-4 eða fleiri eftir því hvað músin var stórtæk. Íkornar, mýs og fleiri dýr safna hnetum að hausti því þær geymast sérstaklega vel í skelinni sinni – og við gerum það sama. Hnetur og sveppir, sérstaklega trufflur, kantarellur og kóngssveppir, mandarínur og fyrstu appelsínurnar sem koma frá Norður-Afríku, Sikiley eða Suður-Spáni koma á markaðinn um þessar mundir og það er farið að ilma af jólum. En það liggur margt á bak við einfaldar hnetur sem við kaupum hér eins og bland í poka – þær fást nefnilega líka ferskar og eru hnossgæti. Lesa meira
 

Vinningshafi í netáskrifendahappdrætti Gestgjafans

Í síðasta mánuði fórum við af stað með sérstakt net-happdrætti fyrir áskrifendur Gestgjafans. Vinningurinn var einkar glæsilegur; matreiðslunámskeið á Hótel Holti fyrir allt að 9 manns undir stjórn yfirmatreiðslumannsins Friðgeirs Inga Eiríkssonar sem mun kenna þeim meistarataktana og aðstoða við eldamennskuna Lesa meira
 
plomur

Plómur og sveskjur

Plómutréð kemur upprunalega frá Mið-Asíu og er af sömu ætt (Prunus) og ferskjur, kirsuber o.fl. en Rómverjar og Egyptar hafa mjög snemma farið að rækta það og kunnu þeir þegar að þurrka plómur til geymslu eins og vínber og fleiri ávexti. Plóman fann kjörlendi á Sýrlandi og til vitnis um það höfðu Krossfararnir mörg máltæki þar sem plóman kom við sögu, m.a. þegar þeir þurftu að fara langar leiðir eftir þeim og gripu í tómt. Lesa meira
 
lamb2

Hægeldaður lambaframpartur

Þetta er ekkert grín, framparturinn er eldaður í 24 klst. en hentar samt vel fyrir önnum kafið fólk. Skellið frampartinum í ofninn að kvöldi (um það leyti sem þið viljið borða kvöldmatinn daginn eftir) og njótið þess að kvöldmaturinn hefur séð um sig sjálfur á meðan allir voru í vinnunni eða skólanum. Frábær sunnudagssteik fyrir alla daga vikunnar og ekki spillir að stinga hvítlauksgeirunum inn í kjötið til að fá meira bragð. Lesa meira
 
GE-0814-43-0_3

Osushi opnar nýjan stað í Borgartúni

Borgarbúar hafa fengið sannkallaða matarást á veitingastaðnum Oshushi í Iðuhúsinu við Lækjargötu sem býður upp á ljúffenga og litríka sushi-bita á færibandi. Nú hafa eigendurnir, systkinin Anna Þorsteinsdóttir og Kristján Þorsteinsson, fært út kvíarnar og opnað nýjan og glæsilegan Osushi-stað í Borgartúni 29 Lesa meira
 
GE-0814-43-0_6

Matreiðslumaður ársins 2008

Þann 7. október var keppnin um matreiðslumann ársins 2008 haldin í Menntaskólanum í Kópavogi. Keppendur höfðu 5 klst. til að útbúa þriggja rétta máltíð fyrir 10 manns. Keppnin var geysihörð og fá stig skildu keppendur að. Í fyrsta sæti var Jóhann Steinn Jóhannesson frá veitingahúsinu Silfur Lesa meira
 

Biblíumatur í Neskirkju á fimmtudögum

Neskirkja stendur fyrir spennandi uppákomu í hádeginu næstu fimmtudaga en þá verður eldaður biblíumatur í eldhúsi kirkjunnar. Jesús var veislumaður en hvers konar mat borðaði hann og hverjar eru matarhefðirnar í Biblíunni? Sr. Sigurður Árni Þórðarson og Ólafía Björnsdóttir elda matinn og var fyrsta máltíðin 16. október sl. þar sem boðið var upp á kjúklingarétt Maríu í Nasaret Lesa meira
 
eggaldin

Eggaldin

Nafnið eggaldin kemur frá enskumælandi löndum. Það var lengi skrautjurt því menn þorðu ekki að borða ávöxtinn sem var þó girnilegur og ein tegund var sértaklega vinsæl í stofu aðals í Bretlandi. Bláu blómin einstaklega falleg og ávextirnir litlir og með lögun eggja. Þar með var nafnið komið. Lesa meira
 
orange

Orange

 

Það var óneitanlega spennandi þegar það fréttist að Þórarinn Eggertsson meistarakokkur hygðist opna nýjan veitingastað. Orange er orðinn að veruleika, Orange Seafood Grill eða Orange Lab, og kappkostar að bjóða upp á nýja upplifun í mat og drykk. Eins og segir á heimasíðu staðarins (www.orange.is) þá leika matreiðslumenn sér að helíumi, fljótandi köfnunarefni og fleiri efnum úr lotukerfinu til að framreiða mat á nýjan og spennandi hátt. Orðið Lab vísar til tilraunastofu og í þessu tilfelli til tilraunaeldhúss en Þórarinn er fyrir löngu orðinn mjög reyndur kokkur og getur nú gert tilraunir á nýjum matreiðsluaðferðum í sínu eigin eldhúsi. Þórarinn hefur ekki einungis aflað sér reynslu innanlands heldur vann hann um tíma á einu allra besta veitingahúsinu í Brussel í Belgíu, Sea Grill. Ég óska eigendum Orange innilega til hamingju með nýja staðinn.

- Kjartan

Lesa meira

 
austur_india

Austur - Indíafélagið

 

Austur-Indíafélagið hefur um alllanga hríð staðið við Hverfisgötuna matargestum til mikillar ánægju sem á annað borð eru hrifnir af indverskum mat. Staðurinn á sér marga fasta viðskiptavini og hefur staðið af sér allar tískusveiflur. Indversk matargerð hefur farið sigurför um hinn vestræna heim og trúlega eru enn þá sóknarfæri. London er dæmi um borg þar sem indverskan mat má finna á hverju götuhorni og hefur þar orðið mikil þróun í indverskri matreiðslu. Nokkur indversk veitingahús þar í borg hafa ratað inn í Michelin-guide með stjörnu eða stjörnur. Áherslan í indverskri matargerð hefur verið á kjöt, þá sérstaklega kjúkling og lamb og einnig grænmeti en lítið af fiski.

Lesa meira

 

 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Svo eiga þær það til að gleyma hvar birgðirnar liggja og hneturnar spíra og verða að trjám, 3-4 eða fleiri eftir því hvað músin var stórtæk. Íkornar, mýs og fleiri dýr safna hnetum að hausti því þær geymast sérstaklega vel í skelinni sinni – og við gerum það sama. Hnetur og sveppir, sérstaklega trufflur, kantarellur og kóngssveppir, mandarínur og fyrstu appelsínurnar sem koma frá Norður-Afríku, Sikiley eða Suður-Spáni koma á markaðinn um þessar mundir og það er farið að ilma af jólum. En það liggur margt á bak við einfaldar hnetur sem við kaupum hér eins og bland í poka – þær fást nefnilega líka ferskar og eru hnossgæti. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu. Þetta Château er í stærra lagi, 30ha, og vínið er blanda af merlot (90%) á móti cabernet sauvignon (10%).

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefur