Áhöfn Gestgjafans

GE-0707-15-01_2

Guðrún Vaka Helgadóttir

Hlutverk á Gestgjafanum:

Prófarkalesari og blaðamaður 

Starfstími:

Byrjaði 10. maí 2007.

Fyrri störf:

Hef aðallega unnið með námi, t.d. sem kjötkaupmaður eða kassadama.

Uppáhaldsmatur:

Nauta rib-eye með sultuðum lauk, smjörsteiktum sveppum og estragon-smjöri.

Uppáhaldshráefni í matargerð:

Laukur, balsam-edik og allt sem gefur mikið bragð.

Uppáhaldskryddjurt eða krydd:

Hvítlaukur, rósmarín og tímían.

Gagnlegasta eldhúsáhaldið:

Stór og beittur Lion hnífur (og uppþvottavélin).

Hvað borðarðu alls ekki?

Brauðsúpu og súrmat

Hvað eldarðu helst þegar þig langar í ,,notalegheitamat” (comfort food)?

Þegar ég nenni ekki að elda „venjulegan“ mat þá útbý ég mér beikonsalat eða hveitikíms-pizzu.

Matargerð hvaða lands/landa heldur þú mest upp á?

Frakklands og Ítalíu.

Hver var fyrsta matreiðslubókin sem þú eignaðist?

Man ekki hvað hún heitir en það var einhver bók eftir Nigellu.

Hver er uppáhaldsmatreiðslubókin þín?

Eina bókin sem ég opna reglulega í tengslum við mat er Matarást.

 

 

Um Gestgjafann


Innskráning



Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

Hráefni mánaðarins

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - CMS