Tb forsíða
Notalegheit
Notalegur Gestgjafi er kominn úr prentun og mættur í verslanir og heim til áskrifenda. Meðal efnis er heimilislegur matur eins og mamma gerði, pottréttir sem eru eldaðir í langan tíma (þá er hægt að gera eitthvað annað skemmtilegt á meðan) og unaðslega sætur karamelluþáttur sem setur munnvatnskirtlana í ofurgír.
Við fjöllum um glæsilegan hátíðakvöldverð Klúbbs matreiðslumeistara, skoðum sögu kleinunnar og birtum myndir frá því þegar rússneski kokkurinn Pavel Ovchinnikov heimsótti okkur og eldaði nokkra hefðbundna rússneska rétti.
Pottþétt vatnsdeigsbolluuppskrift fyrir bolludaginn er á sínum stað ásamt fleiri gómsætum uppskriftum og skemmtilegum fróðleik.


