Tb forsíða

ge0112

Hollt og gott

Fyrsta tölublað ársins er komið í verslanir og til áskrifenda. Í þessu tölublaði bjóðum við upp á súpur sem ylja, dúndurrétti með D-vítamíni, hráfæði í barnaafmæli, grænmetisrétti af ýmsum gerðum og sýnum nokkrar aðferðir til að bragðbæta vatn.

Við litum í heimsókn á veitingastaðinn Krúsku og fengum þar nokkrar hollar og bragðgóðar uppskriftir og heilsukokkurinn Auður Ingibjörg Konráðsdóttir (heilsukokkur.is) heimsótti okkur og lagaði flotta grænmetisrétti. Sirrý bakaði nokkrar hollar og næringarríkar kökur og Ólöf Jakobína lagði á borð fyrir þorrann.

Eitthvað fyrir alla í nýjasta tölublaði Gestgjafans.

Skoða áskriftartilboð

 

 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Innranet