Tb forsíða

fors-0109

Notalegt heima!

40 frábærir heimilisréttir // Súpuveisla á hagkvæmum nótum // hrökkbrauðsbakstur er spennandi nýjung // 15 hollir drykkir beint í æð // hakkréttir úr villibráð // veitingahúsarýni // vínsíðurnar // gómsætt án sykurs // sunnudagskakan // allrahanda

Árstíðir á markaðnum
Dominique fjallar um epli.

Matur fyrir fólk!
Úlli lagaði nokkra vinsæla þjóðarrétti sem hann vill kalla alvörumat. Þar má nefna fiskibollur, kjöt í káli, togarasteik og lambafrikkasse.

Lyfjabúr móður náttúru
Gerður gefur hér uppskriftir að hollum og næringaríkum drykkjum sem eiga það allir sameiginlegt að vera holl næring beint í æð!

Íslenska lambakjötið

Hakkréttir úr villibráð
Úlli gefur hér hugmyndir að réttum sem laga má úr t.d. hreindýrahakki sem margir eiga til í frystikistunni.

Gómsætt án sykurs
Hrökkbrauð og flatbrauð Það er auðveldara en margir halda að baka hrökkbrauð. Sirrý kennir okkur það og gefur nokkrar uppskriftir að girnilegu hrökkbrauði.

Súpur á hagkvæmum nótum
Ódýr og auðveld leið til að hittast er að bjóða heim í súpu. Sirrý lagaði nokkrar súpur sem kosta ekki mikinn pening.

Grænmetisrétturinn
Karjalanpiirakat er finnskur grænmetisréttur og alveg ótrúlega góður!

Sunnudagskakan
Sirrý rifjar upp uppskriftina að ástarpungum sem voru mjög vinsælir hér áður fyrr.

Búðaráp
Gerður fann fullt af flottri smávöru á hagstæðu verði.

Eitt vín - einn réttur
Dominique hitti Sæmund sem kenndur er við Á næstu grösum, fjallaði um lífræn vín og fékk uppskrift að grænmetis-lasagna.

SKOÐA ÁSKRIFTARTILBOÐ

 

 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Innranet