Tb forsíða
Borgarar og bollur á grillið
Korter í kvöldmat
Grillréttir eru margir hverjir fljótlegir, það vantar ekki. Eldun við háan og beinan hita er hröð og einföld og yfirleitt er lítið um nostur við réttina, svo að tíminn sem í matreiðsluna fer er ekki langur. Fátt er fljótlegra eða einfaldara að grilla en hamborgara – það þarf bara að krydda þá, henda þeim á grillið, bíða í nokkrar mínútur, snúa þeim, bíða aftur örskamma stund – og þá er matur sem líklegt er að öll fjölskyldan kunni að meta nánast tilbúinn.
En það er hægt að gera fleiri grillrétti en einfalda hamborgara úr hakki án þess að það taki mikið lengri tíma. Og kosturinn er að ekki þarf að óttast að kjötið verði seigt. Það er heldur ekki þörf á að kaupa dýrt hráefni eða marínera það lengi til að fá meyra og safaríka borgara. Kaupið heldur hakk sem er ekki of magurt (það er safaríkara og bragðbetra en fitulítið hakk) og grillið borgarana hæfilega lengi – þeir eiga auðvitað að vera grillaðir í gegn en ekki meira en það.
Munið svo að þegar unnið er með hakk er sérlega mikilvægt að gæta hreinlætis, forðast krossmengun og kæla hakkið ef það þarf að bíða.
Nanna Rögnvaldardóttir


