Tb forsíða
Miðjarðarhafsblað Gestgjafans
Þá er Miðjarðarhafsblaðið okkar komið í hús og - eins og nafnið gefur sterklega til kynna - er það að töluverðu leyti helgað Miðjarðarhafinu. Þarna er m.a. hægt að finna uppskriftir að rauðvínssilungi frá Korsíku, fiskisúpu frá Sardiníu, tapenade, pissaladiere og kúrbítsgratíni frá Provence, fylltum tómötum og paprikum frá Spáni, spanakopita frá Grikklandi, panna cotta frá Piedmont, torta della nonna frá Toskana, kjötbollum frá Krít, fiskrétti frá Majorka, rækjurétti frá Kýpur og þannig mætti áfram telja.
Í blaðinu er líka sagt frá kræklingaferð í Hvalfjörð, sælkeraferð til Emilia-Romagna, undirbúningi fyrir Afríkuferð, espressógerð í kaffiskóla og fleira spennandi. Við lítum inn hjá Jónsa í Svörtum fötum og Rósu konu hans, skoðum nýja eldhúsið þeirra og fáum uppskrift, fræðumst um ýmis dæmigerð Miðjarðarhafshráefni og fáum okkar skammt af hollustu. Þorri skrifar um vín og veitingahús og ræðir um umhellingu á vínum.
Matur frá Miðjarðarhafslöndum er sívinsæll og þar er Ítalía auðvitað efst á blaði. Ítalía er líka áberandi í Miðjarðarhafsblaðinu okkar en þar er einnig fjallað um önnur lönd sem eiga sér ekki síður áhugaverða matarhefð og spennandi uppskriftir og því ættu allir að geta fundið eitthvað fyrir sinn smekk í blaðinu. Látið okkur endilega vita hvað ykkur finnst!
Nanna Rögnvaldardóttir


