Tb forsíða

ge0212

Notalegheit

Notalegur Gestgjafi er kominn úr prentun og mættur í verslanir og heim til áskrifenda. Meðal efnis er heimilislegur matur eins og mamma gerði, pottréttir sem eru eldaðir í langan tíma (þá er hægt að gera eitthvað annað skemmtilegt á meðan) og unaðslega sætur karamelluþáttur Lesa meira
 
ge0112

Hollt og gott

Fyrsta tölublað ársins er komið í verslanir og til áskrifenda. Í þessu tölublaði bjóðum við upp á súpur sem ylja, dúndurrétti með D-vítamíni, hráfæði í barnaafmæli, grænmetisrétti af ýmsum gerðum og sýnum nokkrar aðferðir til að bragðbæta vatn Lesa meira
 
ge1611

Jólablaðið

Stærsta tölublað Gestgjafans á þessu ári er komið út, Jólablaðið. Allt sem þarf fyrir jólin á einum stað; forréttirnir, eftirréttirnir, aðalréttirnir, meðlætið, sælgætið, skrautið og vínið. Bakari ársins 2011 kennir okkur að baka Stollen, við lítum inn í nýársboð hjá flottum vinkvennahóp, lögum alla vinsælustu jólaeftirréttina og bökum búðinga að enskum sið Lesa meira
 
ge1511

Kökublaðið

Nýja kökublað Gestgjafans er glæsilegt að vanda og inniheldur fjölbreytt úrval af kökum, tertum og smákökum. Nokkrir rómaðir áhugabakarar baka uppáhaldskökurnar sínar og deila uppskriftinni með lesendum og við sýnum hvernig á að útbúa einfalt kökuskraut. Í blaðinu má einnig finna ótrúlega fagurt teboð, kökupinna (cake pops) og whoopie pies sem eru nýjasta æðið í sætindaheiminum Lesa meira
 
ge1411

Ódýrt, einfalt og hollt!

Nýjasta tölublað Gestgjafans er tileinkað þeim sem vilja minna vesen í eldhúsinu. Hér er einblínt á fljótlega og einfalda rétti án þess þó að tapa sjónum á hollustu og bragði. Við gefum góðar leiðbeiningar að því hvernig á að taka slátur og laga lambakæfu. Það er sannarlega hægt að elda bragðgóða og fallega rétti fyrir lítinn pening og við hvetjum alla til að prófa. Lesa meira
 
ge1311

Klúbbablaðið

Klúbbablað Gestgjafans 2011 er komið í verslanir og til áskrifenda. Fjölbreyttir og nýstárlegir heitir brauðréttir prýða blaðið og við bjóðum einnig upp á öðruvísi panini sem kemur á óvart og flotta blaðdeigsrétti sem smellpassa fyrir alla klúbba. Stílistinn okkar gefur fallegar og einfaldar hugmyndir að borðskreytingum fyrir klúbbakvöldið Lesa meira
 
ge0711

Ferðalög og garðveislur

Út er komið 7. tbl. Gestgjafans sem fjallar um ferðalög og garðveislur. Í því er að finna tilvaldar uppskriftir að mat sem gott er að hafa í ferðalaginu og aðrar sem eiga einstaklega vel heima í garðveislunni. Glæsileg grein um appelsínur og hollustu þeirra varð okkur að yrkisefni en í blaðinu eru líka greinar um ferðalög erlendis og má þar nefna skemmtilega og fræðandi ferðagrein um París og aðra um Róm. Gestgjafanum fylgir að þessu sinni sérstök Útileguhandbók

Lesa meira
 
ge0611

Grilltíðin er hafin

Grillblaðið er eitt bjartsýnasta tölublað Gestgjafans því það segir okkur að sumarið sé á næsta leiti. Við drögum fram grillgræjurnar og setjum okkur í sumarlegar stellingar, spáum í kryddlegi, kjötbita, hvað á að vera í eftirmat, meðlæti og sósur. Þetta allt er að finna í nýjasta tölublaði Gestgjafans Lesa meira
 
ge0511

Páska/veislublað

Í nýútkomnu tölublaði Gestgjafans eru skemmtileg ráð og hugmyndir fyrir veislurnar, af hvaða toga sem þær eru. Nú er tími ferminga, brúðkaupa og páska að ganga í garð og nýtt tölublað er stútfullt af hugmyndum og ráðum sem gott er að styðjast við þegar úbúa á stórar eða smáar veislur. Þetta eru ráð varðandi uppskriftir, upplýsingar um magn veitinga, litirnir í veislunni, gjafahugmyndir auk frábærra þátta Lesa meira
 
ge0411

Allt fyrir ferminguna og barnaafmælið

Nýr, litríkur og ferskur Gestgjafi er nú kominn út og er tileinkaður fermingarveislum og barnaafmælum. Í blaðinu er að finna alls konar ráð og hugmyndir varðandi ferminguna, hvernig er best að skipuleggja sig og hvernig á að undirbúa stresslausa fermingarveislu. Við komum með tillögur að réttum á fermingarborðið svo sem pottrétti, tertur og brauðrétti Lesa meira
 
ge0311

Léttir kjúklinga- og fiskréttir

Í nýjasta tölublaði Gestgjafans er aðaláherslan á létta fisk- og kjúklingarétti. Fiskréttir með spennandi kryddi, klassískar og matarmiklar fiskisúpur og við sýnum hvernig á að gera fisk- og kjúklingasoð frá grunni. Við fengum tíu matreiðslubókahöfunda, m.a. þau Hrefnu Sætran, Úlfar Eysteinsson, Jóa Fel, Nönnu Rögnvaldar og Rikku til að elda einn rétt hver eftir sínu höfði Lesa meira
 
ge0211

Kósýheit!

Kaldir og dimmir vetrarmánuðir kalla á heitan og heimilislegan mat sem yljar ekki bara líkamanum heldur heimilinu öllu. Brauð og súpur eru vel til þess fallin að færa yl og „kósýheit“ inn í skammdegið, súpurnar sjá um að ylja okkur og yndislegur brauðilmurinn yljar heimilinu. Ekki spillir að þessi matur er ódýr og fljótlegur og fullur af næringarefnum Lesa meira
 
ge0111

Ofurfæði

Í þessu tölublaði einbeitum við okkur að hollustu matarins og skoðum þær fæðutegundir sem eiga að gera líkama okkar gott. Þetta eru fæðutegundir sem veita okkur orku og efla ónæmiskerfið. Sérstakur þáttur þar sem spergikál og spínat er í aðalhlutverki er m.a. að finna í blaðinu en allt sem er grænt er talið okkur sérstaklega hollt

Lesa meira
 
gg1016

JÓLABLAÐIÐ

Jólablað Gestgjafans er komið út, stútfullt af skemmtilegum hugmyndum og uppskriftum sem tengjast jólum og áramótum. Við gefum hugmyndir að því hvernig er hægt að skreyta jólaborðið á einfaldan hátt, veglegur þáttur með heimatilbúnum jólagjöfum er í blaðinu og hugmyndir að bakstri fyrir börnin er meðal efnis. Hefðbundinn jólamatur er að sjálfsögðu tekinn fyrir en þar má nefna kalkúna, hamborgarhrygg og lambakjöt. Nautakjöt og fiskur í hátíðabúningi fær sitt pláss

Lesa meira
 
ge1015

Kökublaðið

Kökublað Gestgjafans hefur um árabil verið eitt vinsælasta tölublað ársins, ef ekki það vinsælasta. Nýútkomið kökublað ærir lesendur með uppskriftum og myndum á heimsmælikvarða. Hver einasta er meistaraverk í sjálfri sér. Að þessu sinni er hefðbundinn þáttur með uppáhaldskökum nokkurra sælkera, svakalegur súkkulaðiþáttur, ostakökuþáttur, skúffukökuþáttur, smákökuþáttur og konfektgerð

Lesa meira
 
ge1014

Skynsemisblaðið

Áður en hátíðirnar bresta á erum við með hugann við hollustuna og budduna og þess vegna er nýjasta tölublað Gestgjafans uppfullt af hollustuefni og ódýrum réttum. Það gerum við til þess að geta farið með betri samvisku inn í hátíðatímabilið sem við vitum að einkennist í mörgum tilfellum af miklum málsverðum með tilheyrandi stemningu. Við köllum nýjustu afurðina "SKYNSEMISBLAÐIÐ".

Lesa meira
 
ge1013

Stóra Klúbbablaðið er komið

Klúbbarnir lifa góðu lífi á Íslandi sem aldrei fyrr og nú er stóra klúbbablaðið komið út með girnilegum klúbbaréttum í alls konar myndum. Að venju fengum við uppáhaldsklúbbarétti nokkurra sælkera. Svo fórum við í forvitnilega heimsókn í "Detox klúbb" þar sem maturinn var mjög góður en um leið hollur og hreinsandi. Oft stendur valið um brauðrétti og kökur eða kannski súpu þegar klúbbarnir koma saman og við sýnum hugmyndir að öllu þessu en líka bara hugmyndir að fyrirhafnarlausu klúbbakvöldi Lesa meira
 
ge1012

Villibráðin freistar

Villibráðartíminn er nú runninn upp og við tileinkum nýútkomið tölublað þeirri dásemdartíð. Við hittum fyrir hóp í fyrra sem veiðir og eldar í gríð og erg og safnar fyrir jólahátíðina.Við mynduðum öll ósköpin og sýnum hér með uppskifum. Úlfar sýnir að vanda glæsilega aðferð við að nýta landið okkar og villibráðina auk þess sem spennandi þættir eins og heimsókn til Vestmannaeyja og í pylsugerð í Kópavogi eru á síðum blaðsins. Það eru sælkerar úti um allt! Lesa meira
 
ge1011

Græna blaðið komið!

Allt nýupptekna grænmetið lenti í gómsætum réttum í nýjasta tölublaði Gestgjafans og þar eru nýjar íslenskar kartöflur í hávegum. Við höldum líka áfram að fylgja berjasprettunni eftir og kennum saftgerð. Nokkrir valinkunnir sælkerar gáfu okkur uppskriftina að uppáhaldsgrænmetisréttinum Lesa meira
 
ge1010

Ber og ávextir

Nú er árstíminn þegar náttúran gefur okkur hvað ríkulegustu gjafirnar í formi grænmetis, berja og lúxushráefnis á borð við lax og silung sem margir veiða sjálfir í ám og vötnum eða fá ferskt í verslunum. Þeir sem hafa ekki aðstöðu til ræktunar grænmetis heimavið geta nú farið á markaði sem hafa verið stofnsettir víða um land eða fengið hráefnið brakandi ferskt í næstu verslun.

Lesa meira
 
ge1008

BBQ og sumarbústaðir

Við svöruðum spurningunni hver munurinn væri á BBQ- og grilleldamennsku í síðasta tölublaði en nú tökum við fyrir BBQ-uppskriftir. Okkur langaði í hæga eldamensku. Maturinn bragðast einfaldlega öðruvísi. Nú borðum við matinn úti ef kostur er og eyðum góðum tíma í eldamennskuna með ólíkum aðferðum. Nú er tíminn!

Lesa meira
 
ge1007

Ferðablaðið

Ferðablað Gestgjafans er komið út með geysilega nytsömum upplýsingum um nestið fyrir ferðalagið auk þess sem við tókum saman upplýsingar um skemmtilega viðburði á Íslandi í sumar. Svo fórum við um allt Reykjanesið og fundum fáfarnar leiðir og leynistaði sem óviðjafanlegt er að heimsækja. Sumarsalötin og svalandi sumardrykkir eru á máli og myndum á mörgum síðum Lesa meira
 
ge1006

Grillblaðið

Við gefum góð ráð í þessu tölublaði auk þess sem nýjar hugmyndir að góðum grillréttum eru á síðum blaðsins í löngum bunum. Við höfum alltaf í huga að uppskriftirnar séu einfaldar og auðveldar af því að lesendur eru mjög duglegir að láta okkur vita af óskum um slíkt Lesa meira
 
ge1005

Létta fæðið

Nú er það létta fæðið sem við fjöllum um. Kjúklingur í mörgum myndum, kalkúnakjötið meinholla, gómsæt bleikjuflök á fimm vegu og dýrindis veisla frá Líbanon. Þá kíkjum við á spennandi matreiðslunámskeið og hvernig hægt er að gera kryddjurtaræktun á ódýran máta.

Ljúffengar hvolfkökur með mismunandi fyllingum eru alveg þess virði að prófa

Lesa meira
 
ge1004

Veislublaðið

Nú er tími ferminga, brúðakaupa og útskrifta framundan og allt eru þetta tilefni til að gleðjast, svo eru páskarnir þarna á milli. Fæst okkar halda stórar veislur oft um ævina og við erum þess vegna passlega búin að gleyma hvernig það er gert þegar kemur að næstu stórveislu. Tilgangurinn er samt alltaf að gleðjast Lesa meira
 
ge1003

Fermingar og barnaafmæli

Að þessu sinni er þemað barnaafmæli og fermingar. Farið er yfir skreytingar og veitingar fyrir veisluna ásamt hollari veitingum. Þá er sýnd eggja- og mjólkurlaus afmæliskaka. Kransakakan, fermingarkakan, súkkulaðikakan, afmæliskakan eru allar með efnis ásamt pylsupartíinu. Þá er sýnt þrep fyrir þrep hvernig elda á Carbonara Lesa meira
 
ge1002

Notalegheit

Notalegheit er yfirskriftin á nýjasta tölubaði okkar. Það er þýðing okkar á hugtakinu "comfort food". Við tókum fyrir súpur, brauð og pottrétti auk þess sem skemmtilegir þættir eins og heimsókn í bakaríið í Grímsbæ, farið á jökul og veitt í gegnum ís prýða blaðið. Óhætt er að segja að þetta  tölublað sé bæði fallegt og hlýtt. Lesa meira
 
ge1001

Ofurfæði

Við sýnum ykkur í þessu tölublaði hvernig hægt er að taka inn í daglega fæðu sumt af því sem forfeður okkar fundu út að gerir líkamanum gott. Sumt hefur núna verið vísindalega sannað að er rétt. Annað tökum við trúanlegt af því að gengnar kynslóðir þrifust vel á þessu fæði.

Lesa meira
 
ge0917

Bestu uppskriftirnar 2009

 

Út er komið 17. tbl. Gestgjafans sem hefur að geyma „bestu“ uppskriftir ársins 2009. Síðan völdum við „bestu uppskriftina“ í hverjum flokki. Við gerðum okkur að leik að gefa uppskriftunum einkunn eftir bragði, útliti og tíma sem það tekur að útbúa þær. Víð tókum líka út bestu veitingastaðina. Þetta er mjög forvitnileg úttekt og þess virði að skoða.

Lesa meira
 
ge0916

Jólablaðið

Jólablað Gestgjafans er komið út með yfir 160 uppskriftum og hugmyndum fyrir jólin. Sniðugar hugmyndar að matarjólagjöfum sem við getum búið til heima. Jólaperur í eftirrétt, hátíðarhumarinn og vínið um jól og ármót. Má bjóða þér lamb, svín, naut eða kalkúnn um hátíðirnar? Girnilegustu uppskriftirnar finnur þú í Jólablaðinu. Þá eru einnig sósurnar, fyllingarnar og grænmetisrétturinn í jólafötum. Ómissandi jólabrauð og fiskurinn settur í hátíðarbúning Lesa meira
 
ge0915

KÖKUBLAÐIÐ!

KÖKUBLAÐ Gestgjafans er komið út með yfir 80 uppskriftum að ljúfum kökum og sniðugum hugmyndum. Heimagerður aðventukrans, uppáhaldskakan og kryddið dýrmæta, kanill. Formkakan endurnýjuð, heimsókn í Hrekkjarvökupartí og börnin baka smákökur. Hvítar kökur eru á boðstólnum í KÖKUBLAÐINU.

 

Lesa meira
 
ge0914

VILLIBRÁÐARBLAÐIÐ!

Villibráðarblaðið er komið út en þar tökum við fyrir alla innlenda villibráð sem okkur býðst eins og hreindýr, gæs, rjúpu, endur o.s.frv. og útbúum sælkerafæði úr hráefninu. Nokkrir þekktir veiðisnillingar gáfu okkur uppskriftir að uppáhaldsvillibráðarréttinum auk þess sem föstu þættirnir eru með villibráðarþema.

Lesa meira
 
ge0913

KLÚBBABLAÐIÐ!

Yfir 60 spennandi og flottar uppskriftir prýða síður Klúbbablaðs Gestgjafans!

Enginn neitar því að þetta séríslenska fyrirbæri sem á rætur að rekja til gamla „saumaklúbbsins“ gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu. Tíska kemur við sögu í klúbbaveitingum eins og í öðru. Svokallaðir brauðréttir hafa löngum verið hvað vinsælastir en margs konar súpur og salöt hafa orðið vinsælir klúbbaréttir í seinni tíð.

Lesa meira
 
ge0912

60+ einfaldar og flottar uppskriftir

Nú er uppskeran í hámarki og þeir sem voru forsjálir nýttu sumarið til að láta jörðina fóstra fræ og útsæði og skila svo dásamlegum verðmætum til að nýta í dýrindis rétti. Þetta nýttum við okkur hér á Gestgjafanum, settum saman uppskriftir og sjá má afraksturinn hér á síðunum. Í hillum verslana má núna fá allt þetta ferska hráefni og um að gera að nota það á meðan hægt er.

Lesa meira
 
ge0911

100 hugmyndir, uppskriftir og ráð

Yfir 100 hugmyndir, uppskriftir og ráð finnur þú í Græna blaðinu! 5 sælkerar gefa sínar uppáhaldsuppskriftir að grænmetisréttum. Við undirbúum vetrarforðann með súrsuðu grænmeti og  skoðum margskyns berjauppskriftir að kökum, ís, bökum og sultum. Æðislegar pönnukökur, lummur, skonsur og vöfflur prýða Græna blaðið ásamt mörgu öðru sem vert er að skoða Lesa meira
 
ge0910

Sumarfjör og sæla

Í þessu tölublaði höldum við áfram að nýta okkur sumarið og náttúruna við matargerðina. Við notum t.d. hundasúrur í uppskriftirnar! Ódýrara gerist það ekki. Við fórum í fjöruferð með nokkrum hressum krökkum þar sem eldað og borðað var undir berum himni í yndislegu veðri. Einnig má nefna veglegan þátt með samlokum og grillbrauði sem einfalt er að útbúa hvar sem er og við höldum áfram að láta ykkur vita af skemmtilegum og áhugaverðum stöðum sem gaman er að heimsækja í sumar!

Lesa meira
 
ge0908

60+ hugmyndir í garðveisluna

Girnilegar uppskriftir að grilluðum pinnamat og svalandi drykkjum, villtar borðskreytingar og ódýru sumarvínin er meðal þess sem við skoðum. Þá héldu listanemar og listakokkar frábæra veislu á pallinum og Gestgjafinn kíkti í heimsókn. Svellkaldur sumarís er vel viðeigandi þessa dagana í íslensku sumarblíðunni og að sjálfsögðu sýnum við nokkrar ljúffengar útgáfur. Lesa meira
 
ge0907

Ferðast um Ísland

30 frábærar nestishugmyndir finnur þú í skemmtilegu og sumarlegu tölublað er komið í verslanir! Góðar hugmyndir að sumarlegum og matarmiklum salötum, grillkolakönnun og upprennandi kokkar í Hólabrekkuskóla eru meðal efnis. Þá eru heimsins bestu samlokur og gómsætar súpur.

Lesa meira
 
GE0906

GRILLBLAÐIÐ!

Grilltíminn er nú runninn upp með stútfullu Gestgjafablaði af hugmyndum. Edda Heiðrún Backman listakona og -kokkur bauð til glæsilegrar veislu og við fengum að fylgjast með henni og lesendur fá að sjá hvað hún bauð nokkrum leikkonum og sælkerum upp á.

Við sýnum í máli og myndum hvernig heitreyking á grilli fer fram, grillum alls konar fisk sem hefur legið í mismunandi kryddlegi, gefum uppskriftir að meðlæti, sósum, ávaxtasalötum, brauði sem bakað er á grilli og að stórsteikum

Lesa meira
 
ge0905

60+ uppskriftir fyrir fisk og kjúkling!

Út er komið 5. tölublað Gestgjafans þar sem við tökum fyrir bæði kjúkling og fisk. Kokkarnir okkar fóru á heimshornaflakk með kjúklinginn og fiskurinn var settur í ýmsan búning, allt frá hefðbundnum og venjulegum réttum til hugmyndaríkra og skemmtilegra afbrigða við það sem við þekkjum. Ýmsar útgáfur af ýsuréttum og humarsúpugerð í máli og myndum Lesa meira
 
GE-0904-32-1

VEISLUBLAÐIÐ!

Útskriftin, Brúðkaupið, Fermingin, Páskarnir, yfir 130 uppskriftir og hugmyndir í veisluna!

Við tökum fyrir veislur af ýmsum gerðum, hvort sem tilefnið er stórt eða smátt og komum með fjölda hugmynda að veisluföngum, skreytingum og undirbúningi.

Við kíktum í óvenjulega og spennandi brúðkaupsveislu í Gróttu. Þá sýnum við einnig hvernig gera má 3 máltíðir úr einu lambalæri, páskamaturinn fær sinn sess og föstu þættirnir eru á veislunótum

Lesa meira

 
ge0903

Barnaafmæli og fermingar!

Sneisafullt tölublað um allt sem tengist fermingum og barnaafmælum .Við skoðum hugmyndir, ráð, afmæliskökuna og ævintýralegar skreytingar. Þá eru pottréttir, salöt, veislutertur, skreytingar fyrir fermingarveisluna og þrep fyrir þrep að frábærri kransaköku. Ásamt þessu öllu skoðum við uppáhaldsrétti barnanna, hinn fullkomna grjónagraut og margt fleira.

Lesa meira
 
GE-0902-48-0_5

Sælkerakvöldverður Gestgjafans í Þjóðleikhúskjallaranum

Gestgjafinn mun í samstarfi við matreiðslumeistarann Sigga Hall standa fyrir glæsilegum sælkerakvöldverði í Þjóðleikhúskjallaranum laugardaginn 7. mars nk. Boðið verður upp á 5 rétta máltíð að hætti Úlfars Finnbjörnssonar og Sigríðar Bjarkar Bragadóttur, meistarakokka Gestgjafans. Lesa meira
 
fors-0109

Notalegt heima!

40 frábærir heimilisréttir // Súpuveisla á hagkvæmum nótum // hrökkbrauðsbakstur er spennandi nýjung // 15 hollir drykkir beint í æð // hakkréttir úr villibráð // veitingahúsarýni // vínsíðurnar // gómsætt án sykurs // sunnudagskakan // allrahanda Lesa meira
 

140 bestu uppskriftirnar 2008!

Við höfum valið 140 bestu uppskriftirnar fyrir árið 2008. Þær eru girnilegar, gómsætar og ómótstæðilegar! Bestu forréttirnir 2008 / Bestu aðalréttirnir / Meðlæti / Kökur og eftirréttir / Súpur og brauð / Gómsætt án sykurs / Besti grænmetisrétturinn

Lesa meira
 
GE-0816-44-0

Maturinn og dýrðin

Jólablað Gestgjafans er kemur út á morgun með 150 hugmyndum að hátíðamat, skreytingum og jólagjöfum. Hangikjötið á nýjan hátt, ilmandi jólaepli í eftirrétt og fiskur í forrétt á meðal efnis. Við skoðum hátíðarvínin og athugum hvað fer með hverju, útbúum framandi áramótaveislu og gefum þér uppskriftina að hinum eina sanna jólaís.

Lesa meira
 
ge0815

KÖKUBLAÐIÐ!

Nú fer að líða að jólum og þá er kominn tími á Kökublað Gestgjafans. Súkkulaðikökur og eftirréttir eru freistingar til að falla fyrir ásamt gömlu góðu tertunum og smákökunum. Uppáhaldskakan, “djúsí” rúllutertur, pönnukökutertur og brauðbakstur eru meðal gómsætra uppskrifta nýjasta tölublaði Gestgjafans.. Allt þetta og meira til í ljúffengu Kökublaði Gestgjafans! Lesa meira
 

Villibráðarblaðið!

Tími villibráðarmáltíðanna er runninn upp. Veiðimenn þeysast um holt og heiðar, bíða eftir bráðinni í skurðum, blautir og hraktir en láta sér fátt um finnast því ánægjan við að ná bráðinni er öllu öðru yfirsterkari. Þökk sé ævintýraþrá þeirra getum við hin notið þess að elda og snæða dýrðlegar villibráðarmáltíðir
Lesa meira
 

Klúbbablaðið!

Við erum með hugann við það í þessu tölublaði, t.d. hvernig við getum sparað í matarinnkaupum og hvernig er hægt að útbúa glæsilega og girnilega klúbbarétti án mikils tilkostnaðar. Við sýnum einnig leið til að baka ómótstæðilegt brauð á einfaldan hátt. Svo er núna tíðin til að taka slátur og eiga í frysti. Sláturgerðin, þrep fyrir þrep Lesa meira
 
090208_GE_Heima_45

Fjórir frábærir réttir fyrir 1000 krónur!

Fljótlegir og ódýrir réttir fyrir fjóra undir þúsund krónum og brúðkaup Arnars Gauta finnur þú í næsta Gestgjafa! Þá sýnir Gestgjafinn hvernig hægt er að halda upp á fimmtugsafmæli með stæl, en með litlum tilkostnaði og góðri skipulagningu.

Lesa meira
 
GE-berjarettir00002

Berjatíminn!

Í þessu tölublaði má meira að segja finna hugmyndir að því hvernig nota má hráefni úr eldhúsinu í snyrtivörurnar frekar en að kaupa þær dýrum dómum í verslunum. Og nú er árstíminn þegar náttúran hér á landi er gjöfulust. Þeir sem hafa verið duglegir við að rækta sjálfir fá nú ríkulega uppskeru eftir mjög gott sumar. Hinir geta keypt ferskt grænmeti og ávexti í verslunum og notað hugmyndirnar úr þessu tölublaði til að útbúa dásamlega og heilsusamlega rétti úr öllu þessu dýrlega hráefni.

Lesa meira
 

Ferskt og frumlegt!

Tölublað sem er troðfullt af fróðlegu, fersku og frumlegu efni. Nægir þar að nefna ómótstæðilegan súkkulaðiþátt, hugmyndir fyrir verslunarmannahelgina, risotto-veislu, nesti fyrir börnin, ferðagreinar og ýmislegt fleira. Lesa meira
 

Sumarlegir hamborgarar

Út er komið 9. tbl. Gestgjafans sem er eitt af sumarblöðunum, stútfullt af skemmtilegu efni  sem fjörgar matreiðsluáhugann og gerir sumardagana skemmtilegri með. Þar er að finna sumarlega rétti, seiðandi grillrétti, fiskrétti sem tilvalið er að snæða á árbakkanum, eftirrétti og svo fórum við í garðveislu í Frakklandi svo nokkuðu sé nefnt. Ómótstæðilegir og sumarlegir mjólkurhristingar Lesa meira
 

Spörum en eldum flott!

Við lögðumst undir feld til að finna út skemmtilega aðferð við að sameina sparnað, góða matargerð og skemmtilegt tímaritsefni. Við heimsóttum fangelsið að Litla Hrauni þar sem við buðum deild 2-A upp á kennslu í matreiðslu og það sýndi sig að alveg sama hversu ömurlegar aðstæðurnar eru: matargerðin er eitthvað sem við getum öll sameinast um. Uppskriftirnar sem fylgja þessum þáttum eiga erindi við alla, sérstaklega núna þegar margir vilja spara Lesa meira
 

GRILL - GRILL - GRILL

Grilltíminn er kominn! Í blaðinu er að finna uppskriftir að nauta-, lamba-, svína- og kjúklingakjöti á grillið fyrir utan fiskiuppskriftir og eftirréttahugmyndir, allt í grillpartýið. Góð tíð undanfarið gefur fyrirheit um gott sumar og ef sú tilfinning rætist er ekki seinna vænna en að rifja upp allt sem við kunnum í grilleldamennsku. Lesa meira
 

Ferðalög

Hvað á að borða í ferðalaginu? Við fórum á stúfana og skoðuðum veitingahús í Kaupmannahöfn, París, London, New York, Tenerife, Róm, Berlín, Marrakech, ásamt fleiri heillandi viðkomustöðum. Kíktum á matreiðslunámskeið í Frakklandi og á matreiðslukeppni grunnskólanna. Lesa meira
 
ge-feta_kynning_0035

Fiskur og kjúklingur

Gestgjafinn er að venju sneisafullur af girnilegum uppskriftum og að þessu sinni má finna yfir 50 uppskriftir í blaðinu. Þetta 5. tölublað ársins er tileinkað fiski og kjúklingi.

Þegar við hugsum um samsetningu á „léttum“ mat er fiskur og kjúklingur ofarlega á blaði. Rauða kjötið er tormeltara og oft talað um þungar steikur en ekki léttar. Með það í huga lögðumst við undir feld og útbjuggum nokkrar frábærar uppskriftir.

Lesa meira
 

Súkkulaði - Súkkulaði - Súkkulaði

Súkkulaði er þema þessa töublaðs. Súkkulaði er gott, hollt, frábært krydd í mat og fallegt. Hvað er hægt að biðja um meira? Allar þesar fullyrðingar passa við guðafæðuna súkkulaði. Þegar það er blandað sykri, eins og við þekkjum það oftast, verður til afurð sem er sannarlega ávanabindandi. En það þarf ekki að tengja súkkulaði eingöngu við sæta rétti Lesa meira
 

Veislublaðið

Nú gengur mikill veislutími í hönd og margir að setja sig í stellingar fyrir stórveislur. Hér er að finna hugmyndir og ýmis góð ráð til að nota í slíkum tilfellum. Í þessu tölublaði, sem við köllum veislublaðið, er að finna nýjungar sem gaman er að spreyta sig á þegar halda á veislu Lesa meira
 
GE-0802-37-01_2

BARNABLAÐIÐ!

Hugmyndir fyrir barna- og unglingaafmælin, auk föstu þáttanna sem eru fyrir allan aldur, eru nú á síðum Gestgjafans. Við veltum upp hugmyndum að veitingum fyrir börnin og svo veitingunum sem tilvalið er að hafa fyrir fullorðna fólkið sem fylgir börnunum. Við sóttum nokkra krakka heim sem sýnt hafa þessu skemmtilega áhugamáli, matargerðinni, mikinn áhuga Lesa meira
 
GE-0801-11-01_2

Nú er það rómó!

Gestgjafinn er á rómantísku nótunum og tengjum mat við lífsins lystisemdir á ýmsan máta. Við rannsökuðum leyndardóma indverskrar matargerðar sem óhætt er að segja að einkennist af skemmtilegum litum og hita í bragði. Heitir drykkir á kaldasta tímanum er lúxus sem við eigum að leyfa okkur þegar við slöppum af eftir vinnudaginn Lesa meira
 
GE-0716-14-05_2

Ljúffeng hollusta & bestu réttirnar

Þetta síðasta tölublað ársins er tileinkað léttum réttum, eftir þunga matinn sem tilheyrir hátíðunum er gott að slaka aðeins á og skipta yfir í hollustuna. Meðfylgjandi er svo aukablað sem inniheldur 60 bestu uppskriftirnar fyrir árið 2007

Lesa meira
 
GE-0715-27-04_2

Jólablað Gestgjafans er komið út!

Jólablaðsins hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu en það hefur verið eitt söluhæsta tölublað tímaritsins fá upphafi. Nú bregður svo við að jólablað Gestgjafans hefur aldrei verið stærra eða 196 blaðsíður. Þar er að finna jólalegt og áramótalegt efni, bæði skreytingar og uppskriftir Lesa meira
 
GE-0714-25-02_3

Hættulega girnilegt!

Út er komið villibráðarblað aldarinnar þar sem er að finna leiðbeiningar um matreiðslu á margskonar villibráð. Auk allrar innlendu villibráðarinnar eins og rjúpu, anda og gæsa fæst nú innflutt villibráð sem sum hver er framandi. Hráefnið er hins vegar geysilega gott og við leiðbeinum fólki hvernig það á að bera sig að við matreiðsluna Lesa meira
 
GE-0713-20-02_2

KÖKUBLAÐIÐ!

Margrómað KÖKUBLAÐ Gestgjafans er komið út. Ef ætlunin er að standast freistingar þessa dagana er ekki ráðlegt að kaupa þetta tölublað því þar er að finna ómótstæðilegar uppskriftir.

Þær er aftur á móti tilvalið að nota til að prófa staðfestu þeirra sem vilja sanna fyrir sjálfum sér og öðrum að þeir geti staðist slíkar freistingar.

Lesa meira
 
GE-0712-15-03_2

Klúbbablaðið

Hið vinsæla Klúbbablað Gestgjafans er loksins komið út! Lesendur Gestgjafans hafa beðið blaðsins með eftirvæntingu, enda verður blaðið glæsilegra með hverju árinu sem líður.

Súpuklúbburinn - Besta brauðið - Uppháhaldsklúbbarétturinn - Árstíðir á markaðnum - Eplaréttir

Lesa meira
 
GE-0711-15-09_2

Afmælisblaðið

Afmælishugmyndir í löngum bunum, bæði að veitingum og skreytingum í afmæli fyrir fólk á öllum aldri. Morgunverðarafmæli, smáréttaafmæli, kaffiafmæli með kökum og barnaafmæli. Látið ykkur dreyma og þið finnið svörin í 11. tbl. Gestgjafans.

Lesa meira
 
GE-0710-12-01_2

Grænt og vænt

10. tölublað Gestgjafans er komið út með umfjöllunum og uppskriftum sem sóttar eru til náttúrunnar sem nú skartar sínu fegursta og gjöfulasta.

Allt dásamlega grænmetið er nú fullþroskað eins og það verður best og fallegast og við lékum okkur með þetta frábæra hráefni í Gestgjafaeldhúsinu. Útkoman er á síðum nýjasta tölublaðsins í máli og myndum. Hollustan er ekki umdeild og bragðið er eins gott og það getur orðið ljúffengast.

Lesa meira
 
GE-0709-25-02_2

Ameríska BBQ blaðið er komið út

Nú er komið út tölublað sem við tileinkum vinum okkar í vestri.
Í Ameríku hrærist saman allt það nýjasta sem er að gerast í matarmenningu en eins og allir vita koma þar saman margir ólíkir menningarheimar og úr verður mikill suðupottur matarhefða. Við skoðuðum BBQ-rétti, settum kalkúna á grillið, kynntumst nokkrum viðmælendum sem búið hafa í Bandaríkjunum, útbjuggum pylsur og hamborgara á nýstárlegan hátt og gerðum úttekt á frægum amerískum kökum Lesa meira
 
GE-0708-33-12_2

Ferðablaðið komið!

Sumarfrí og ferðalög eru í hámarki núna en nú er á sölustöðum 8. tbl. Gestgjafans. Þetta tölublað er því tileinkað ferðalögum innan lands og utan, útilegum og hestaferðum og þar kemur matur og matargerð að sjálfsögðu við sögu á nýstárlegan máta.

Lesa meira
 
GE-0707-37-16_2

Úti að elda með Gestgjafanum! - Eldað á báli

Eldað úti í náttúrunni er meginþema nýjasta Gestgjafans. Þar er sýnt í máli og myndum hvernig við getum á afar auðveldan hátt matreitt undir berum himni án mikillar fyrirhafnar. Stemningin er ógleymanleg þegar eldað er yfir báli og hafa krakkarnir ekki síður gaman af að taka þátt í slíkri eldamennsku. Lesa meira
 
GE-0706-26-02_2

Létt og ljúft í fríinu

Öll þekkjum við það að vera hugmyndasnauð annað veifið er kemur að matreiðslunni, við veltum fyrir okkur hvað eigi að hafa í matinn en lítið er um hugmyndir. Gestgjafinn kemur þarna sterkur inn og er fullur af hugmyndum fyrir matreiðsluna. 60 frábærar uppskriftir prýða blaðið að þessu sinni og er þema blaðsins létt og ljúft í fríinu. Lesa meira
 
GE-0705-55-01_2

Grillblaðið er komið út - 120 uppskriftir!

Grillblað Gestgjafans er komið út stútfullt af hugmyndum fyrir komandi grilltíð. Meðal efnis í blaðinu er litrík matarveisla sem ljósmyndarinn og matgæðingurinn Áslaug Snorradóttir hélt við höfnina í Reykjavík þar sem m.a. var boðið upp á grillaðan saltfisk. Lesa meira
 
GE-0704-15-05_2

Minning um mat

Lesendur Gestgjafans hafa óskað eftir því að áhöfn Gestgjafans fjalli um „mömmumatinn“, þennan gamla og góða. Ákveðið var að verða við þessum óskum og að þessu sinni er það heimilismaturinn sem fyllir Gestgjafann, nýir og gamlir réttir í bland.

Lesa meira
 
GE-0703-41-01

Stóra veislublaðið

Þar er megináhersla lögð á veislur og veislumat, hvort sem tilefnið er stórt, svo sem ferming eða brúðkaup, eða bara matarboð fyrir vini og ættingja. Þar er að finna fjölda hugmynda að veisluföngum og borðskreytingum og því hvernig best er að haga undirbúningi á sem skynsamlegastan hátt.

Lesa meira
 
Untitled-1_copy

Maturinn eins og öllum finnst bestur!

Næst förum við í reisu um fjölbreyttar lendur matarmenningarinnar og höfum börnin með.  
Í blaðinu er að finna þátt með girnilegum kjúklingauppskriftum, annan með súpuuppskriftum, þátt með skemmtilegum og frumlegum hugmyndum í barnaafmælin. Lesa meira
 
GE-0701-10-09_3

Glæsilegur Gestgjafi

Gestgjafinn er að þessu sinni tileinkaður þemanu huggulegt heima og snýst efni blaðsins um hvernig maður getur notið þess til hins ýtrasta að hafa það kósí heima núna á þessum dimma og kalda árstíma.

Lesa meira
 
GG-Bestof-06-1

Glæsilegur Gestgjafi!

Nú eru blöðin tvö, blaðinu fylgir aukarit sem inniheldur bestu rétti ársins 2006. Þar er að finna uppskriftir að réttum, sætum sem ósætum, sem við höfum sannreynt að lesendum hefur líkað mjög vel. Aðalblaðið er að venju, svona eftir hátíðarnar, tileinkað léttum réttum og hugmyndum Lesa meira
 
pate

Jólablað Gestgjafans

Í jólablaði Gestgjafans er að finna flest það sem tilheyrir matargerð fyrir jólin. Veglegur þáttur um kalkúna, steikingu, fyllingar og sósur er meðal efnis í blaðinu. Í tilefni af 25 ára afmælinu rifjum við upp sögu Gestgjafans í máli og myndum Lesa meira
 
kaka

Kökublaðið er komið!

Kökublaðið er komið út stútfullt af girnilegum og gómsætum uppskriftum. Nú eru það kökurnar, smákökurnar og terturnar sem eru allsráðandi Lesa meira
 
GE-forsida_7_2

Klúbbablaðið komið!

Klúbbablaðið er loksins komið út eftir mikla bið dyggra lesenda Gestgjafans. Tveir mismunandi klúbbar voru heimsótti og lesendur fá að fylgjast með ólíkum kræsingum sem bornar voru á borð. Lesa meira
 
Guidos_076

Miðjarðarhafsblað Gestgjafans

Þá er Miðjarðarhafsblaðið okkar komið í hús og - eins og nafnið gefur sterklega til kynna - er það að töluverðu leyti helgað Miðjarðarhafinu. Þarna er m.a. hægt að finna uppskriftir að rauðvínssilungi frá Korsíku, fiskisúpu frá Sardiníu, tapenade, pissaladiere og kúrbítsgratíni frá Provence ... Lesa meira
 
GE-0402-Siggi_Hall

... og fleiri freistingar

Þá er matarhátíðin Food & Fun hafin og við á Gestgjafanum fórum á blaðamannafund á Vox Nordica í hádeginu á miðvikudaginn þar sem hátíðin var formlega sett. Þar voru flestir erlendu matreiðslumeistararnir sem ætla að sýna listir sínar mættir en aðrir voru rétt ókomnir til landsins. Lesa meira
 
GE-0503-36-06_3

Margt freistandi

Nú fer að líða að matarveislunni Food and fun, sem orðinn er árviss viðburður í veitingahúsalífi höfuðborgarinnar og er mörgum tilhlökkunarefni, enda er gaman að geta farið á milli veitingahúsa og fengið að smakka á góðgæti úr smiðju erlendra matreiðslusnillinga á hóflegu verði. Lesa meira
 
GE-0509-67-01_3

Vetrarmatur

Þá er vetrarblaðið okkar komið út, fullt af uppskriftum af alls kyns vetrarlegum kræsingum sem hafa yljað okkur hér á ritstjórninni að undanförnu og eiga vonandi eftir að falla ykkur vel í geð líka. Vetrarmatur er kannski dálítið illskilgreinanlegt hugtak og misjafnt hvað fólk setur í þann flokk en í huga okkar er þetta kannski fyrst og fremst „notalegheitamatur“. Lesa meira
 
toshiba

Vinningshafinn okkar

Eins og áskrifendur hafa kannski eftir lentu þeir sem skráðu sig sem notendur á Gestgjafavefinn fyrir 1. nóvember sl. í potti og áttu þess kost að vinna Toshiba-fartölvu frá Tæknivali. Fyrir nokkru var svo dregið úr nöfnum skráðra notenda Lesa meira
 
GE-0401-01Heimajogurt

Gleðilegt nýár!

Jæja, þá er nýtt ár gengið í garð, nýtt Gestgjafablað að koma út og nýjar áherslur komnar í matargerðinni ... Nú er það ekki lengur veislumaturinn og sætindin sem eru efst á blaði, heldur aðhald, hollusta, léttleiki og sparnaður - en fyrst og fremst á maturinn þó auðvitað að vera góður og spennandi. Lesa meira
 
GE-0412-99-02_3

Jólin nálgast

Jólin eru bara rétt að koma ... Sennilega eru flestir búnir að ákveða hvað á að vera í jólamatinn, jafnvel kaupa aðalhráefnið í hann. Kannski bíður jólaísinn tilbúinn í frysti, kökudósirnar standa í röðum í búrinu, búið að skipuleggja alla eldamennskuna frá upphafi til enda ... Lesa meira
 
GE-0512-67-01

Jólasteikin - ekki bara kjöt ...

Stórar steikur, alifuglar og annað kjötmeti er auðvitað það sem algengast er á jólaborðinu en þeim fjölgar þó stöðugt sem kjósa að sleppa kjötinu og velja sér fremur eitthvað annað, fisk eða gómsæta grænmetisrétti. Lesa meira
 
GE-0511-26-02

Bestu uppskriftirnar 2005?

Við erum byrjuð að velja uppskriftir sem birtast munu í aukablaðinu Bestu uppskriftirnar 2005. Það mun svo fylgja janúarblaðinu 2006. Þetta verður í fjórða skipti sem við veljum bestu uppskriftir ársins og viðtökurnar hafa jafnan verið góðar; svo góðar að eldri blöðin eru nú svo gott sem ófáanleg. Lesa meira
 
GE-0411-28-01_3

Veisla fyrir augu og maga

Þá er kökublað Gestgjafans 2005 komið út og óhætt að segja að viðbrögðin hafi verið góð. Við reynum alltaf að vera með hæfilegt sambland af nýju og gömlu, kunnuglegu og svolítið óvenjulegu, og vonandi hefur útkoman orðið góð í þetta skipti. Lesa meira
 
GE-0510-05-10_3

Á undan okkar samtíð

Starfsfólk tímarita er oft dálítið á undan sinni samtíð, ef svo má segja – þar sem efni í blöðin er unnið fyrirfram er tímatalið oft dálítið ruglað hjá okkur og þetta gildir ekki síst hér á Gestgjafanum. Lesa meira
 
GE-0510-10-02_3

Frábærar viðtökur

Í dag er vika síðan vefurinn okkar opnaði og það er óhætt að segja að móttökurnar hafi verið góðar. Mikill fjöldi áskrifenda hefur skráð sig inn á vefinn og þúsundir gesta hafa komið við og skoðað. Margir hafa haft samband og sagt álit sitt og það hefur allt verið mjög jákvætt þótt auðvitað hafi okkur verið bent á eitt og annað sem mætti bæta. Lesa meira
 
GE-0506-53-01_3

Borgarar og bollur á grillið

Það er hægt að gera fleiri grillrétti en einfalda hamborgara úr hakki án þess að það taki mikið lengri tíma. Og kosturinn er að ekki þarf að óttast að kjötið verði seigt. Það er heldur ekki þörf á að kaupa dýrt hráefni eða marínera það lengi til að fá meyra og safaríka borgara. Lesa meira
 
GE-0506-75-19_3

Austurlensk garðveisla í sumarbyrjun

Til að fagna sumarkomu buðu Bjarni Óskarsson og Hrafnhildur Ingimarsdóttir, eigendur Sælkerabúðarinnar og Nings veitingahúsa og veisluþjónustu, til grillveislu, engri annarri líkri, á heimili sínu. Sjálfur er Bjarni listakokkur og sást það glögglega á veisluborðunum sem svignuðu undan girnilegu góðgæti. Lesa meira
 

 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Innranet