Hráefni mánaðarins
Melónur
Skapaðar til að geymast
Melónan er sköpuð til að geymast: þykkt hýði og hátt vatnsinnihald (88-90%), við bestu skilyrði geymist hún vel yfir veturinn. Þær melónur sem við fáum hér heima koma frá Mið-Ameríku á veturna (Hondúras og Costa Rica aðallega) og hafa verið tíndar óþroskaðar – bragðið er til staðar en það vantar alla sólina og sætuna því hvaða ávöxtur getur þroskast eðlilega í kæli og myrkri? En nú getum við tekið gleði okkar að nýju því fyrstu melónurnar eru að koma frá Suður-Spáni og geymslutíminn miklu styttri og vegalengdin einnig. Margar tegundir af melónum fást í matvörubúðum og þó þær séu orðnar nokkuð vel þekktar er ekki úr vegi að rifja upp einkenni þeirra og gefa góð ráð um meðhöndlun.
Sagan og næring
Melónan er af Cucurbitacæ-ætt eins og kúrbítur og upprunalega frá Indlandi og líklega Afríku. Hún hefur alla tíð verið notuð í mat en með mjög mismunandi áherslum: lítil og ekki sæt var hún borðuð með salti og pipar hjá Grikkjum og Rómverjum en hún breyttist smám saman í sætu melónuna sem við þekkjum. Ítalskir munkar fengu melónufræ í Armeníu á 15. öld og sáðu við klaustrið sitt í Cantaloppe – ný tegund breiddist út í Evrópu með þessu nafni. Charentais-tegundin frá Frakklandi er sætust og safaríkust af cantaloupe-melónunum.
Melónan er rík af A- og C-vítamíni og kalíumi og inniheldur fáar kaloríur (48 kcal/100 gr) en töluvert af karotíni (því rauðari því meira karotín).
Að velja melónu og matreiða
Ilmurinn og léttur þrýstingur við stilkinn segir okkur allt um þroska melónunnar, þung melóna, góður og mikill ilmur og mjúkt hýði við stilkinn eru merki um að ávöxturinn sé tilbúinn – og hann mun þroskast áfram í sól í gluggakistunni. Best er melónan svöl en ekki ísköld úr ísskáp.
Nokkrar óhefðbundnar uppskriftir
* Cantaloupe (lítil og vel þroskuð) eða enn betra charentais skorin í tvennt, kjarnhreinsuð með ruby-portvíni í fræhólfinu er einfaldur og bragðmikill forréttur.
* Melónusúpa bragðbætt með basilíku- eða myntublöðum: Maukið eina cantaloupe-melónu með 2-3 jarðarberjum og kryddjurtum, berið fram vel kælt (má bæta dreitli af sætu víni yfir).
* Melónumauk með Muscat de Rivesaltes: Búið til melónukúlur og látið liggja í Muscat-víni, maukið eina cantaloupe- eða Galia-melónu (verður að vera bragðmikil) og kryddið með anísfræjum og vanillu (þurrkryddið) eða engiferi og setchwan-pipar, bætið kúlunum saman við og berið fram vel kælt.
* Í salati með krabbakjöti eða reyktum laxi, rækjum og skelfiski – að ótaldri parmaskinku.
* Melónusulta (12 krukkur): Þegar melónurnar eru bestar (í júlí), skerið 8 cantaloupe-melónur í grófa bita, setjið í stóran pott ásamt 50 g af sykri og 1 bréfi af sultuhleypi, sjóðið í 20 mín. þangað til bitarnir eru „bráðnaðir“. Hellið strax í krukkur og lokið þeim um leið. Má kryddbæta með anís eða engifer.
Cantaloupe
Appelsínugult kjöt, sæt, kemur frá Spáni, Ítalíu eða Frakklandi á sumrin.
Best: júní til ágúst.
Galia
Grænt kjöt, sæt, bragðmild, frá Spáni eða Ítalíu á sumrin.
Best: júní til ágúst.
Piel de Sapo („körtuhúð“)
Ílöng, ljóst, grænt kjöt, mjög sæt.
Best: frá Spáni frá lokum júní.
Gular melónur
Mjög ljóst kjöt, mjög misjöfn í bragði og sætu.
Best: frá Spáni yfir sumarið.
Charentais
Appelsínugult kjöt, dökkt, mjög sæt og bragðmikil. Frá Frakklandi.
Best: júní og júlí.
Vatnsmelóna
Með eða án steina, mjög jöfn – kemur frá Miðjarðarhafslöndunum.
Best: júní til október.


