Hráefni mánađarins

tomatar_i_hop

Tómatar

Rauđir, safaríkir og fullir af sól

 

Tómatur á ađ vera rauđur, fullur af sól, safaríkur, bragđmikill og leka ţegar mađur bítur í hann og ţađ er hann í dag. Nú kaupir mađur plómu-, kirsuberja- og lýkópen-tómata eđa ađrar nafngreindar tegundir – fyrir utan ţessa venjulega tómata sem flestir rćkta en eru mun betri ađ gćđum en voru. Mig langađi ađ fara og skođa hvađ er ađ gerast í gróđurhúsunum og taka bita af ţessum nýju, safaríku tómötum sem bođa vorkomuna.

Slow Food-hreyfingin hvetur menn til ađ nota sem mest ţau matvćli sem hérađiđ (eđa landiđ) hefur upp á ađ bjóđa, ţau eru nćringarríkust og svo uppfyllir mađur siđgćđisskyldu gagnvart sjálfum sér og umhverfi sínu: ţađ ţarf óneitanlega mikiđ minna af eldsneyti til ađ fćra okkur tómata frá Flúđum en frá Hollandi eđa Kanaríeyjum.

 

Hvađ er tómatur?

Tómatplantan er náskyld kartöflu-, papriku-, eggaldin- og tóbaksplöntunni og kemur frá Suđur-Ameríku, nánar tiltekiđ frá Perú (hann hét tumati á Azteka-máli) og viđ getum sem sagt ţakkađ landkönnuđunum á 16. öld fyrir ađ hafa flutt hann til Evrópu. Menn ţorđu samt ekki ađ borđa ávöxtinn lengi vel (talinn eitrađur) og var plantan notuđ sem moskítóvörn og skraut – ţađ var ekki fyrr en á 19. öld sem tómatplantan var notuđ sem matjurt.

 

Innihald miđađ viđ 100 g:

Prótín:       0,80 g

Kolvetni:   2,80 g

Fita:           0,10 g

Hitaeiningar:         15 kcal

 

Í dag eru til mörg afbrigđi af tómötum og engin undantekning á ţví hér heima. Ţađ er ein tegund sem er meira ađ segja orđin nánast séríslensk: lýkópen-tómaturinn.

Lýkópen er efniđ sem gefur tómötum rauđan lit og er í flokki karótenoíđa, karótínefni sem hefur ekki A-vítamínvirkni. Rannsóknir benda til ţess ađ ţetta efni sé sterkt andoxunarefni og geti veitt betri vörn gegn hjartasjúkdómum og krabbameinum (sjá grein eftir Ólaf Reykdal á doktor.is). Í lýkópen-tómötum er meira af ţessu efni, ţeir voru ţróađir af hollenskum garđyrkjubćndum og eina landiđ fyrir utan Holland sem fćr ađ framleiđa ţá er Ísland (ţeir óttast greinilega ekki samkeppni héđan!). Tómatarnir hafa veriđ kallađir „heilsutómatar“ en fyrir utan ađ vera heilsusamlegir eru ţeir bragđmeiri og safaríkari en venjulegir tómatar.

 

Ţćr tegundir sem fást frá íslenskum garđyrkjubćndum eru:

-         venjulegir tómatar

-         konfekttómatar, sćtari í bragđi

-         kirsuberjatómatar, sćtari og ađeins sterkari í bragđi

-         lýkópen-heilsutómatar, dökkrauđir, ađeins sćtir og bragđmeiri

-         lýkópen litlir heilsutómatar

-         plómutómatar, kjötmeiri

 

Gott ađ vita um tómata:

* geymiđ ekki tómatana í ísskáp, ţeir missa bragđ

* ţeir halda áfram ađ taka lit á sólríkum stöđum, t.d. í gluggakistunni

lýkópen í tómötum eykst viđ eldun; í sósum, á grilli og á pönnunni

hafiđ tómatplöntuna sér í gluggakistunni eđa gróđurhúsinu, hún drepur blómin viđ hliđina ? og flugurnar

 

 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla međ sesamosti

Hrefnukjöt fćst núorđiđ í stórmörkuđum áriđ um kring en ţađ er sannkallađ sćlkerafćđi og ekki spillir ađ ţađ er á góđu verđi. Nota má reykta villibráđ eđa hangikjöt í stađ reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Ţegar gengiđ er um dönsku beykiskógana tekur mađur eftir ţví ađ sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stađ. Ţau tré eru kölluđ „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa ţćr í jörđu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óţekktu Bordeaux-svćđi hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hćgri bakkanum. Ţar og í Côtes de Bourg sem er viđ hliđina, á sér nefnilega stađ mesta ţróun í Bordeaux hvađ varđar gćđi og verđin eru mjög viđráđanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíţjóđ og Noregi hafa skiliđ ţađ fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Ţessi vefur byggir á Eplica - CMS