Hráefni mánaðarins

Appelsínur

Sól í sinni

 

GE-0507-54-07_3Ferskar og safaríkar appelsínur freista á sumrin þegar sólin skín og hitastigið fer örlítið hækkandi. Fátt er betra en nýkreistur appelsínusafi í morgunsárið en appelsínur er líka hægt að nota í hina ýmsu rétti, bæði kjöt- og fiskrétti og eftirrétti.

Sítrónukjúklingur er klassískur réttur en kjúklingurinn er ekki síðri með appelsínum og appelsínusafa; safinn gerir skinnið yndislega sætt og stökkt. Það er talið hollt að borða appelsínur með reyktum eða söltuðum mat og appelsínusalsa, sem uppskrift er að hér á eftir, er t.d. frábært með reyktum laxi eða reyktu kjöti.

Citrus sinensis
Appelsínur eru taldar upprunnar á Indlandi en nafnið þýðir upprunalega ,,epli frá Kína“.
Til eru mörg afbrigði af appelsínum. Sumar eru með steinum en aðrar eru nær steinlausar. Börkurinn er einnig misjafn, ýmist þykkur eða þunnur og ræðst það nokkuð af aðstæðum á vaxtarstað.

Algengastar eru trúlega Valencia-appelsínur sem hafa þunnan, fastan börk og naflaappelsínur sem hafa þykkan og lausan börk. Heiti eins og Sunkist er einungis vörumerki, ekki tegund og Jaffa þýðir aðeins að appelsínan hefur verið ræktuð í Ísrael.

Guðrún Hrund

 

 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - CMS