Hráefni mánaðarins

GE-0609-24-02

Spergilblómkál

Romanescoblómkál

Spergilblómkál Spergilblómkál eða romanesco-blómkál er oft talið vera kynblendingur spergilkáls (brokkólís) og blómkáls, sem eru náskyldar tegundir, en reyndar er það blómkálsafbrigði, upprunnið í Hollandi. Kálið er reyndar mun líkara blómkáli en spergilkáli í útliti, nema hvað varðar límónugrænan litinn og nokkuð reglulega toppana sem það myndar. Bragðið er milt en minnir meira á spergilkál en blómkál. Ef spergilblómkál er látið vaxa og ná fullum þroska lýsist liturinn mjög uns kálið hefur fengið sama lit og blómkál. Hægt er að nota spergilblómkál í stað blómkáls í alls kyns rétti og raunar einnig í stað spergilkáls. Það er líka mjög gott eitt sér, e.t.v. með ídýfu. Best er að skipta því í litla kvisti og sjóða það, gufusjóða eða snöggsteikja. Það er einnig gott í súpur og sósur eða sem fylling í grænmetisbökur og fleira slíkt. Best er að velja kál sem er með þétt höfuð með jöfnum, grænum lit sem hvergi er farinn að lýsast eða verða brúnn á yfirborði. Kálið geymist í nokkra daga í poka í ísskáp. Það er vítamínauðugt og hitaeiningasnautt.

 

 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - CMS