Hráefni mánaðarins
Butternut-kúrbítur
Butternut-kúrbíturinn, sem sést æ oftar í verslunum hér, telst til vetrarkúrbíta, sem eru harðir og hafa mun lengra geymsluþol en sumarkúrbítar. Stundum er hann kallaður butternut-grasker.
Hann er yfirleitt um 1 kg að þyngd, harður með ljósgult, þunnt hýði sem auðvelt er að flysja af. Innmaturinn er rauðgulur. Oftast er kúrbíturinn perulega en sumir butternut-kúrbítar eru þó nærri ferhyrndir.
Butternut-kúrbítur inniheldur mun minna af fræjum en margir ættingjar hans og þau eru öll í öðrum endanum (þeim sverari). Auðvelt er að hreinsa þau burtu og best að skera kúrbítinn í helminga og skafa fræin úr með skeið. Einnig má þurrka þau og borða eins og graskersfræ.
Kúrbítinn má nota á margan hátt. Hann hentar sérlega vel til ofnbökunar, þá gjarna skorinn í stóra bita, en einnig má skera hann í þunnar sneiðar og pönnusteikja eða skera hann ít eninga og setja út í pottrétti, kássur og fleira.
Svo má sjóða hann eða gufusjóða og mauka hann síðan. Maukið er gott að nota í súpur en einnig má blanda því saman við kartöflustöppu og bera hana fram með ýmsum réttum.


