Hráefni mánaðarins
Sykurbaunir
Þessar fersku, stökku og bragðgóðu ertur, sem einnig eru kallaðar snjóbaunir eða mangetout, eru tíndar óþroskaðar og einkum ræktaðar vegna belgsins, sem er fagurgrænn, sætur og stökkur. Þær eru upprunnar í Austurlöndum nær og mikið notaðar í mörgum Evrópulöndum. Einnig eru þær sérstaklega vinsælar í Kína, þar sem þær eru yfirleitt veltisteiktar, e.t.v. kryddaðar með engifer og hvítlauk. Það voru Evrópumenn sem fluttu þær þangað.
Sykurbaunir eru bestar nýtíndar og þær sem hér fást eru oft farnar að tapa ferskleika og bragði, enda gjarna konnar hingað alla leið frá Kenýa eða öðrum fjarlægum löndum. Baunirnar njóta sín best einar sér eða með ljósu kjöti eða lambakjöti, helst ásamt góðri sósu, t.d. smjörsósu eða rjómasósu. Þegar þær eru snyrtar þarf aðeins að skera af þeim bláendana. Best er að sjóða þær eða léttsteikja í smjöri í aðeins eina eða tvær mínútur, eða veltisteikja í hálfa mínútu eða svo. Einnig má borða þær hráar en þær njóta sín þó ekki sem skyldi þannig. Ef þær eru eldaðar of lengi tapa þær bragði og ferskleika. Ef þær eru soðnar er gott að hella þeim strax í sigti og bregða snöggvast undir kalda kranann til aö stöðva suðuna.
Sumar sykurbaunir þarf ekki að snyrta en oft getur verið gott að skera af þeim stilkendann.


