Hráefni mánaðarins
Granatepli
Granatepli eru talin upprunnin í Persíu og hafa verið ræktuð í Miðausturlöndum frá örófi alda. Aldinið er hnefastórt og hýðið er eiginlega hörð skurn. Innan við hana er mikið af hárauðum fræjum sem umlukin eru hlaupkenndum safa.
Bæði safi og fræ eru borðuð, stundum saman en stundum sitt í hvoru lagi. Fræin eru t.d. sumstaðar þurrkuð og notuð sem eins konar krydd, t.d. á brauð eða í indverska karrírétti, og safinn er m.a. notaður í grenadine.
Granatepli geymast mjög vel og það ætti að vera í lagi að geyma þau í 2-3 mánuði í ísskápnum, ef þau eru þétt og þung í sér, líta vel út og hýðið er glansandi. Við stofuhita eru ávextirnir hins vegar oftast fljótir að skorpna og þorna. Fræin má líka frysta. Það getur verið dálítið fyrirhafnarsamt að skafa fræin úr aldinunum og rétt er að hafa í huga að safinn getur litað út frá sér. Oft er mælt með því að rista skurði í hýðið og afhýða ávöxtinn svo í fullri skál af vatni.
Granatepli eru m.a. notuð í salöt og eftirrétti en í Miðausturlöndum og víðar eru þau notuð í margs konar matseld, m.a. í kjöt- og fuglakjötsrétti. Mexíkóbúar nota fræin m.a. í chiles en nogada, þar sem þau eiga að minna á rauða litinn í þjóðfánanum, og þau eru notuð í marga aðra suður- og miðameríska rétti.


