Hráefni mánaðarins

GE-0505-63-05_3

Svartir tómatar

- hressandi ...

GE-0505-63-05_3Kannski ekki alveg kolsvartir en mun dekkri en við eigum að venjast. Reyndar eru til mörg afbrigði af svörtum tómötum en það sem sést hefur í verslunum hér að undanförnu kallast Kumato og er ræktað í Aguioas á Spáni út frá tómatategund sem er að finna á Galapagoseyjum í Kyrrahafi.

Sagt er að þeir hafi kynörvandi áhrif og það hafi glögglega sést á risaskjaldbökunum sem átu þá og voru mun fjörugri en þær sem fengu venjulega tómata ...

Hvað sem því líður eru þetta hollir og bragðgóðir tómatar, ívið sætari en flest rauð afbrigði og einkar skemmtileg tilbreyting við hefðbundnari tegundir. Notið þá ferska í salöt og þess háttar, þannig njóta bæði litur og bragð sín best.

 

 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - CMS