Hráefni mánaðarins
Þurrkuð trönuber
- notuð eins og rúsínur
Trönuber (cranberries) eru hárauðu berin sem koma í búðir fyrir jólin og eru notuð í sósur, bökur og margt fleira – reyndar má nota þau í staðinn fyrir rifsber og sólber í næstum hvaða uppskrift sem er. Þau eru amerísk að uppruna og hafa verið ræktuð vestanhafs frá því snemma á 19. öld. Færri þekkja þurrkuð trönuber sem líkjast helst rúsínum en eru dökkrauð að lit.
Fersk trönuber eru frekar súr og sjaldan borðuð eintóm en þurrkuð trönuber hafa yfirleitt verið sykruð við þurrkunina og því er hægt að borða þau eins og þau koma fyrir. Notið þau t.d. í naslblöndur, e.t.v. ásamt hnetum og fræjum, blandið þeim saman við morgunkorn, notið þau í smákökur, múffur, formkökur, kryddmauk og eiginlega í hvaða uppskrift sem er í staðinn fyrir rúsínur. Einn framleiðandi selur meira að segja vöru sína undir heitinu craisins (samsett úr cranberries og raisins). Þurrkuð trönuber eru líka mjög góð í ýmis salöt, t.d. með kjúklingi eða kalkúna.
Best er að geyma berin á fremur svölum stað, jafnvel í ísskáp. Þá geymast þau í allt að 1 1/2 ár.


