Hráefni mánaðarins
Spínat
- vænt og vel grænt
Spínat er vissulega hollt, ríkt af járni, kalki og A- og C-vítamíni og er auk þess fitusnautt, en næringarfræðingar hafa á síðustu áratugum dregið aðeins úr fullyrðingum um hollustu spínats og segja nú að það sé hollt en ekki eins gríðarlega hollt og haldið hefur verið. En hvað um það, spínat er fínt grænmeti í ýmsa matargerð. Spínatplantan er sögð eiga uppruna sinn að rekja til Miðausturlanda en vitað er að hún var ræktuð á Spáni á áttundu öldinni. Spánverjar eru svo sagðir hafa flutt hana út og kynnt fyrir mörgum Vesturlandaþjóðum, eins og Bandaríkjamönnum, Englendingum og Frökkum.
Spínat er auðræktanlegt og þrífst ágætlega í svölu loftslagi eins og hérlendis. Það spínat sem fæst í matvöruverslunum er þó allt innflutt. Áður var eingöngu hægt að fá frosið spínat en nú er það selt ferskt í plastpokum við hliðina á öðru grænmeti og er fáanlegt allan ársins hring. Vert er að athuga að spínatið geymist stutt eða í 2-3 daga í kæliskáp. Það er fljótt að láta á sjá og þá verður það ekki eins spennandi til notkunar. Spínat er mjög gott brakandi ferskt sem uppistaða í góðu salati með réttu salatsósunni. Það má einnig nota sem fyllingu í ýmsa rétti og sjóða eða léttsteikja það sem meðlæti með ýmsum mat. Spínat er oft notað í eggjakökur, enda fer það mjög vel með eggjum og ýmsum tegundum osta, ekki síst feta-, parmesan- og rjómaosti. Alltaf þarf að skola ferskt spínat vel fyrir notkun en láta svo renna vel af því. Þegar það er notað í fyllingar eða annað (sjá uppskriftir) er nauðsynlegt að kreista vatnið vel úr því það vill loða við spínatið. Spínat rýrnar mikið við eldun og þegar það er soðið eða látið malla, t.d. í smjöri og hvítlauk, er galdurinn að elda það ekki um of. Snöggeldun á þar við.
Prófið ykkur endilega áfram með þetta ágæta grænmeti – möguleikarnir eru margir.


