Uppskrift vikunnar
Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti
Gómsætt og ódýrt
Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu.
Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti
300 g reykt hrefnukjöt
30 x 40 cm álpappírsörk
300 g rjómaostur
1 dl þurrristuð sesamfræ
1 msk. sítrónusafi
½ tsk. salt
½ tsk. pipar
3 matarlímsblöð, lögð í kalt vatn í 5 mín.
3 msk. mjólk
Hálffrystið hrefnukjöt, skerið í þunnar, jafnar sneiðar og raðið sneiðunum á álpappírsörk. Setjið rjómaost í matvinnsluvél ásamt sesamfræjum, sítrónusafa, salti og pipar og blandið vel saman. Kreistið vatn af matarlímsblöðum, setjið í skál ásamt mjólk og bræðið yfir vatnsbaði. Hellið matarlíminu í matvinnsluvélina og blandið vel saman. Smyrjið sesamostinum á kjötsneiðarnar og rúllið þeim upp. Vefjið þá álpappír utan um rúlluna og frystið. Geymist vel í frysti í allt að 8 mánuði. Takið rúlluna úr frysti 30 mín. fyrir notkun og setjið í kæli. Takið þá álpappírinn utan af rúllunni og skerið í þunnar sneiðar. Berið fram með salati og góðu brauði. Í staðinn fyrir rúllu má búa til randalínu.


