Uppskrift vikunnar

lambakjot

Langsagað lambalæri með jógúrtkryddlegi

Fljótleg útgáfa af hinu sívinsæla lambalæri

 

 

1 lambalæri, án lykilbeins og sagað eftir endilöngu (biðjið afgreiðslufólk í kjötborði að saga lambalærið eftir endilöngu)

 

Jógúrtkryddlögur:

2 dl jógúrt, hreint

2 hvítlauksgeirar, pressaðir

2 msk. engiferrót, smátt söxuð

3 msk. sítrónusafi

1 tsk. kummin

1 tsk. kóríanderfræ, steytt

½ tsk. kardimommur, steyttar

½ tsk. salt

3 msk. mynta, smátt söxuð

 

Setjið allt í skál og blandið vel saman. Veltið lambinu upp úr kryddleginum og geymið í kæli í 2-12 klst.

 

Strjúkið megnið af kryddleginum af kjötinu og grillið á meðalheitu grilli í 25-30 mín. Snúið kjötinu reglulega. Berið kjötið fram með t.d. grilluðu grænmeti og bökuðum kartöflum.

 

Dominique og Eymar mæla með klassískum vínum, ferskum og ungum – til dæmis frá Bordeaux – Château de Barbe Blanche, Château Teyssier – eða Chile, Casa Lapostolle Cabernet Sauvignon.

 

 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Innranet