Tb forsíða neðri
Gestgjafinn 30 ára
Ný matreiðslubók frá Gestgjafanum er komin út!
Árið 2011 markar merkileg tímamót fyrir Gestgjafann þar sem tímaritið á 30 ára afmæli. Þrjátíu ár er hár aldur fyrir tímarit á Íslandi og því tökum við örlítið forskot á sæluna og fögnum afmælinu með útgáfu nýrrar bókar.
Við sýnum brot af því besta af síðum Gestgjafans undanfarin ár, þó ekki undanfarin 30 ár, það er efni í enn stærra og viðameira verk. Hér höldum við okkur frekar við nútímann.


