Tb forsíða neðri
Smákökusamkeppni Gestgjafans og Kornax
Nú líður að árlegri smákökukeppni Gestgjafans og Kornax en hún fer fram 20. október næstkomandi. Þemað í ár er súkkulaði og skilyrðið er að í smákökunum sé bæði súkkulaði og Kornax hveiti.
Dæmt verður eftir bragði, áferð, lögun og lit og hvort sýnishorn séu einsleit og vel unnin. Senda skal u.þ.b. 15 smákökur í gegnsæju íláti, krukku eða plastpoka merktum með dulnefni. Rétt nafn, símanúmer og uppskriftir skal láta fylgja með í lokuðu umslagi.
Kökunum þarf að skila inn þann 19. október n.k. á milli kl. 8:00 og 16:00 á skrifstofu Kornax að Korngörðum 1.
Verðlaunauppskriftirnar munu birtast í kökublaði Gestgjafans sem kemur út þann 10. nóvember.


