Tb forsíða neðri

avaxtabollur

Ávaxtabollur

Leiðrétt uppskrift

 

Ávaxtabollur

12 stk.

 

2 tsk. þurrger

3 dl mjólk, fingurvolg

1 msk. olía

350 g hveiti

130 g heilhveiti, gjarnan frá Þorvaldseyri

2 msk. hveitiklíð eða hveitikím

½ tsk. salt

60 g þurrkuð trönuber

60 g valhnetur eða pekanhnetur

samanpískað egg eða mjólk til að pensla með

 

Leysið þurrger upp í volgri mjólk og bætið síðan olíu út í. Blandið öllum þurrefnum saman. Hellið vökvanum saman við þurrefnablönduna og hnoðið vel. Látið deigið hefast á hlýjum stað í 40-50 mín. Sláið deigið niður og hnoðið aftur. Skiptið deiginu í 12 bita og mótið bollur. Raðið þeim í smurt form, 24 cm í þvermál, með svolitlu millibili og penslið yfir með eggi að mjólk. Látið hefast aftur á hlýjum stað í u.þ.b. 30 mín. Hitið ofninn í 180°C. Bakið brauðbollurnar í 30-35 mín.

 

 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Heimasíður