Tb forsíða neðri

ggkaka

Tertusamkeppni

fyrir áhugafólk um bakstur á vegum Gestgjafans og Kornax

Kornax, í samstarfi við Gestgjafann, hefur ákveðið að efna enn á ný til samkeppni. Þema keppninnar að þessu sinni verður „veislutertur“. Dæmt verður eftir bragði og útliti og skilyrði er að nota hveiti frá Kornax.

Senda skal eina köku merkta með dulnefni en rétt nafn, símanúmer og uppskrift fylgi svo með í lokuðu umslagi. Kökunni á að skila inn þann 20. febrúar n.k. á milli kl. 13:00 og 14:00 í Iðnó við Tjörnina þar sem keppnin mun fara fram. Sýning á tertunum mun síðan fara fram á sama stað frá kl. 15:30-17:00. Í dómnefnd verða fulltrúar frá Gestgjafanum og Kornax auk Ásgeirs Þórs Tómassonar, kennara í fagskólanum.

Dómnefnd: Ásgeir Þór Tómasson, Sigríður Björk Bragadóttir og Sigrún Guðjónsdóttir.

1. verðlaun
Bosch-hrærivél frá Smith & Norland að verðmæti 69.900 kr. Kransakaka eða marsípanterta að eigin vali fyrir 40 manns frá Kökuhorninu. Gjafabréf frá Krónunni að verðmæti 30.000 kr. Ársáskrift að Gestgjafanum og hveiti í baksturinn frá Kornax.

2. verðlaun
Bosch-töfrasproti frá Smith & Norland að verðmæti 11.900 kr. Gjafabréf frá Krónunni að verðmæti 20.000 kr. Ársáskrift að Gestgjafanum og hveiti í baksturinn frá Kornax.

3. verðlaun
Siemens-handþeytari frá Smith & Norland að verðmæti 7.600 kr. Gjafabréf frá Krónunni að verðmæti 10.000 kr. Ársáskrift að Gestgjafanum og hveiti í baksturinn frá Kornax.

Tilkynnt verður um sigurvegara í 3. tbl. Gestgjafans sem kemur út í byrjun mars.

 

 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Heimasíður