Tb forsíða neðri

Toblerone_alpakaka

Alpakaka

Fyrir mistök birtist uppskriftin að Alpakökunni ekki rétt í síðasta tölublaði. Í henni eiga að vera 3 egg sem eiga að hrærast saman við sykurinn og smjörið sem hefur verið hrært saman þar til það er létt og kremkennd. Við biðjumst velvirðingar á þessum mistökum. Sjáið uppskriftina hér eins og hún á að vera.

 

Alpakaka

8-10 sneiðar

 

200 g smjör, mjúkt

100 g sykur

100 g púðursykur

3 egg

200 g hveiti

1 tsk. lyftiduft

200 g Toblerone, saxað

 

Hitið ofninn í 175°C. Hrærið saman smjör og báðar tegundir af sykri þar til blandan er orðin létt og kremkennd. Bætið þá eggjum út í, einu í einu. Blandið saman hveiti og lyftidufti og sigtið út í eggjablönduna, hrærið vel. Bætið söxuðu Toblerone út í og hrærið vel saman. Setjið bökunarpappír í botn og hliðar á jólakökuformi eða öðru formkökuformi og penslið endana á forminu með olíu. Bakið kökuna 60-70 mín.

 

 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Heimasíður