Tb forsíða neðri
Kornflakes-kökurnar hennar mömmu
Þau leiðu mistök áttu sér stað að í uppskrift að vinningsuppskrift í Kornax smákökusamkeppni prentaðist saltmagn í tvígang. Hið rétta er að magnið á að vera ¼ tsk.
Uppskriftin er rétt svona:
Kornflakes-kökurnar hennar mömmu
eftir Huldu Maríu Magnúsdóttur
100 g smjörlíki eða smjör
1 dl sykur
1 dl púðursykur
1 egg
1 tsk. vanilludropar
2 dl Kornax-hveiti
2 dl haframjöl
2 dl kornflakes, lítillega mulið
1 dl kókosmjöl
½ tsk. matarsódi
¼ tsk. salt
Hrærið smjör og sykur vel saman í hrærivél. Bætið eggi út í og hrærið vel saman. Setjið vanilludropa saman við og hrærið áfram. Blandið öllum þurrefnum saman og setjið síðan út í, hrærið varlega þar til deigið er orðið samfellt. Geymið deigið í kæli í a.m.k. klukkustund, má vera yfir nótt. Mótið litlar kúlur úr deiginu og raðið á smjörpappírsklædda bökunarplötu, kökurnar renna aðeins út á plötunni. Bakið við 190°C í 10-15 mínútur. Kökurnar verða yfirleitt aðeins dökkar á köntunum. Þegar kökurnar eru komnar úr ofninum er súkkulaðidropi settur ofan á hverja köku. Einnig má pensla þær með bræddu súkkulaði þegar þær jafa kólnað aðeins eða setja hálfa möndlu á hverja köku áður en þær fara í ofninn.


