Tb forsíða neðri

smakokur

Kornax og Gestgjafinn efna til smákökusamkeppni

Lumar þú á gömlu fjölskylduleyndarmáli

 

Kornax, í samstarfi við Gestgjafann, hefur ákveðið að halda smákökusamkeppni. Þema keppninnar verður „gamla fjölskylduleyndarmálið“. Dæmt verður eftir bragði, áferð, lögun og lit og hvort sýnishorn séu einsleit og vel unnin. Skilyrði er að nota Kornax hveiti.

Senda skal u.þ.b. 15 smákökur í gegnsæju íláti, krukku eða plastpoka merktum með dulnefni. Rétt nafn, símanúmer og uppskriftir fylgi svo með í lokuðu umslagi. Þessu á að skila inn þann 26. október n.k. á milli kl. 08:00 og 16:00 að Korngörðum 5 á skrifstofu Kornax.

Vinningar eru eftirtaldir:

1.  vinningur.  Glæsileg Kitchen Aid hrærivél frá Einari Farestveit & Co. að verðmæti u.þ.b. 80.000 kr., 40.000 kr. úttekt í Hagkaupum, árs áskrift að Gestgjafanum og hveiti í baksturinn frá Kornax.

2. vinningur. 20.000. kr. úttekt í Hagkaupum, Severin handþeytari frá Einari Farestveit & Co., út að borða fyrir 2 á Pottinum og pönnunni, ársáskrift að Gestgjafanum og hveiti frá Kornax.

3. vinningur. 10.000 kr. úttekt í Hagkaupum, Severin handþeytari frá Einari Farestveit & Co., ársáskrift að Gestgjafanum og hveiti frá Kornax.

 

Tilkynnt verður um sigurvegara í Kökublaði Gestgjafans sem kemur út í nóvember.

 

 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Heimasíður