Tb forsíða neðri

Suneva

Uppskrift að tabenade

Í síðasta tölublaði féll uppskriftin að tabenade niður í viðtali við Sigríði Sunnevu Vigfúsdóttur. Við biðjumst velvirðingar á þessum mistökum en uppskriftin birtist hér:

Grænt tabenade á hvítan fisk

fyrir 4-6

1 kg þorskur (má líka vera hvaða fiskur sem er)

1 sítróna, safinn úr henni

ólífuolía, til að dreypa yfir

Maldon-salt

 

Skerið þorskinn í stóra bita og setjið í eldfast mót. Kreistið safa úr sítrónunni

 yfir og dreypið síðan ólífuolíu yfir. Einnig má sáldra örlitlu Maldon-salti

 á fiskinn, ef fólk vill. Hitið ofninn í 200°C og bakið fiskinn í 5-7 mín.

 

Grænt tabenade

500 g grænar ólífur

hnefafylli af ítalskri steinselju

4 msk. furuhnetur

1 stk. sítróna, safinn úr henni og rifinn börkur

2 hvítlauksgeirar, marðir

½ tsk. þurrkaðar chili-flögur

2 msk. kapers

1 dl ólífuolía

 

Setjið allt hráefnið sem á að fara í tabenade í matvinnsluvél og maukið. Passið samt að mauka ekki of mikið. Smyrjið frekar þunnu lagi af tapenade á fiskinn. Berið fram með nýjum soðnum kartöflum (ekki ofsoðnum), afganginum af tabenade-inu og mozzarella-salati.

 

 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Heimasíður