Tb forsíða neðri

Draumakvöld fyrir klúbbinn þinn

Í vetur ætla Gestgjafinn og Þjóðleikhúsið rugla saman reitum og bjóða lesendum í leik. Heppinn klúbbur, allt að 12 manns, er hristur hressilega saman með dýrindis matarveislu og frábærri leiksýningu. Þjóðleikhúsið býður klúbbnum á vel valda sýningu í leikhúsinu og Gestgjafinn sér um veitingarnar áður en farið er á sýninguna. Gestur frá leikhúsinu mun síðan koma í heimsókn í klúbbinn til að fræða og ræða um allt sem viðkemur leiksýningunni. Sendu okkur tölvupóst á netfangið klubburinn@gestgjafinn.is og taktu fram hvernig klúbb þú ert með og hversu margir eru honum.

 

 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Heimasíður