Tb forsíða neðri

Villibráð - meðferð og meðhöndlun

S B A 0 9 / 2 0 0 9
Matís, Skotveiðifélag Íslands, Matvælastofnun og Úlfar Finnbjörnsson hjá Gestgjafanum bjóða til opins fræðslufundar þriðjudaginn 22. september nk. frá kl. 8:30-9:45 á Hótel Nordica, Suðurlandsbraut 2. Þar munu fremstu sérfræðingar landsins í meðferð og meðhöndlun villibráðar flytja erindi um þetta áhugaverða efni.

Dagskrá
08:30-08:35 – Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra – Fundur settur
08:35-08:45 – Ívar Erlendsson, leiðsögumaður/hreindýraguide – Eftir skotið, hvað þá?
08:45-08:55 – Sigmar B. Hauksson, Skotvís – Betri nýting villibráðar - meiri ánægja, _eiri minningar?
08:55-09:05 – Kjartan Hreinsson, MAST – Löggjöf um meðferð og meðhöndlun villibráðar
09:05-09:15 – Guðjón Þorkelsson, Matís – Um meðferð og meðhöndlun villibráðar; tækifæri í vöruþróun?
09:15-09:25 – Úlfar Finnbjörnsson, Gestgjainn – Fullnýting afurðanna ásamt kryddun, eldun og meðlæti!
09:25-09:45 – Spurningar, svör, umræður

Heitt á könnunni!

www.matis.is

 

 

 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Heimasíður