Tb forsíða neðri
Áskrifendatilboð í Grillbúðinni
Áskrifendum Gestgjafans býðst 10% afsláttur á grillum og garðhúsgögnum í Grillbúðinni við Hlíðarsmára 13 og 20% afsláttur af öllum aukahlutum.
Grillbúðin er eina sérverslunin fyrir grill og grillvörur á Íslandi. Verslunin er umboðsaðili fyrir þýska fyrirtækið Landmann sem er stærsti framleiðandi á grillum og garðhúsgögnum í Evrópu. Landmann hefur framleitt gasgrill í 50 ár og kolagrill mun lengur.
Í Grillbúðinni er sérstök áhersla lögð á að bjóða upp tvær línur gasgrilla frá Landmann sem henta íslenskum aðstæðum. Þar fást þó yfir 20 gerðir gasgrilla og 5 gerðir kolagrilla en verslunin er að Hlíðasmára 13. Hægt er að fá sérpantaðar vörur úr gríðarlegu úrvali Landmann- vara.
Í Grillbúðinni fást varahlutir í öll Landmann-grill, jafnvel þótt þau séu yfir 15 ára gömul. Varahlutir eru einnig útvegaðir fyrir ýmsar gerðir grilla þótt þau séu ekki frá Landmann.
Vefsíða Grillbúðarinnar er www.grillbudin.is



