Tb forsíða neðri

ostakaka

Ostakökur frá MS!

Ostakökur frá MS lækka í verði !

„MS Eftirlæti er heiti á Ostakökum í nýjum umbúðum sem eru nú komnar í verslanir. Þær eru framleiddar með nýrri framleiðslutækni sem leiðir til verðlækkunar og enn meiri bragðgæða. Í gegnum glugga á umbúðunum blasa við girnilegar kökurnar sem auðveldar neytendum að velja sína eftirlætisostaköku.

Ostakökur hafa lengi verið eftirlæti Íslendinga og nú er um að velja sjö girnilegar tegundir í glæsilegum umbúðum á viðráðanlegu verði.

 Tegundirnar eru: Bláberja-, Heslihnetu-, Mandarínu-, Blóðappelsínu-, Súkkulaði- og Hindberjaostakaka, Sælkerakaffi og súkkulaðiflögur sem er nýjung í flokknum.

ostakokur-bordi

 

 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Heimasíður