Tb forsíða neðri

Kokteillinn_hristur.

Kokteilakeppni Finlandia Vodka Cup

Lounge_FinlandiaHin árlega alþjóðlega kokteilakeppni, Finlandia Vodka Cup, var haldin nýlega í Kittila í Finnlandi. Þar komu saman heimsins bestu kokteilbarþjónar sem hafa unnið undankeppni í sínu heimalandi, samtals 30 keppendur. Stærsta undankeppni til þessa var haldin hér á landi í nóvember sl. og fór sigurvegari hennar, Þorlákur Sveinsson, veitingastjóri á Kringlukránni, til Finnlands í sjálfa Finlandia Vodka Cup-keppnina. Hann náði frábærum árangri og lenti í 11. sæti, enda hæfileikaríkur barþjónn þar á ferð.

Sigurvegari keppninnar var Raditya Dimas frá Dubai.

 

DrykDrykkurkirnir sem Þorlákur var með í keppninni:

Queen Finna

3 cl Finlandia Cranberry

12 cl hvítvín

Sprite

 

Hellið Finlandia og hvítvíni í glas. Fyllið upp með Sprite og skreytið með ávöxtum.

King Finni

3 cl Finlandia Lime

2 cl Pisang ambion

1,5 cl bananalíkjör

3 cl ananassafi

greipsafi

Setjið Finlandia, Pisang, bananalíkjör og ananassafa í kokteilhristara. Hristið vel saman. Hellið í hátt glas og fyllið upp með greipsafa. Skreytið með ávöxtum.

Þorlákur Sveinsson, veitingastjóri á Kringlukránni, tók þátt í Finlandia Vodka Cup fyrir Íslands hönd.

 

 

 

 

 

Innskráning


Uppskrift vikunnar

Reykt hrefnurúlla Úlla með sesamosti

Hrefnukjöt fæst núorðið í stórmörkuðum árið um kring en það er sannkallað sælkerafæði og ekki spillir að það er á góðu verði. Nota má reykta villibráð eða hangikjöt í stað reyktrar hrefnu. Lesa meira
 

Hráefni vikunnar

Hnetur

Þegar gengið er um dönsku beykiskógana tekur maður eftir því að sum beykitré, sem eru annars bein og hávaxin, eru í kippum, 3-4 sem vaxa saman á sama stað. Þau tré eru kölluð „musebög“ og skýringin er einföld og falleg: mýsnar safna saman hnetunum af beykitrjánum og grafa þær í jörðu fyrir veturinn. Lesa meira
 


Vín vikunnar

Château Haut Bourcier ****1/2

Skemmtilega persónugert Bordeaux frá óþekktu Bordeaux-svæði hér á landi – AOC Côtes de Blaye, á hægri bakkanum. Þar og í Côtes de Bourg sem er við hliðina, á sér nefnilega stað mesta þróun í Bordeaux hvað varðar gæði og verðin eru mjög viðráðanleg. Nágrannar okkar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa skilið það fyrir löngu.

Lesa meira

 

 
 
Þessi vefur byggir á Eplica - Heimasíður