Tb forsíða neðri
bolla, bolla ...
Alls kyns gómsætar bollur fyrir bolludaginn, saltkjöt og baunir matreidd á nýjan máta og matarmiklar súpur. Þá er sýnt skref fyrir skref hvernig risotto er búið til og hvernig á að halda sér heitum í kuldanum með indverskum og pakistönskum mat. Valentínusarkakan og hvernig á að koma elskunni á óvart og svo margt margt fleira!
Fullt blað með uppskriftum sem falla undir skilgreininguna ódýrt en gott. Svo eru það gömlu hefðirnar eins og bolludagurinn og sprengidagurinn. Allir þeir sem hafa áhuga á matargerð vita að ein besta leið sem til er til að slaka á er stund í eldhúsinu. Ef farið er eftir uppskriftunum okkar, lofum við ykkur að uppskeran verður ríkuleg. Takið frá tíma, skipuleggið matseldina og uppskeran verður ríkuleg.
Lengi hefur tilhneigingin verið sú að finna uppskriftir sem tekur nógu lítinn tíma að fara eftir en maturinn á samt að vera rosalega bragðgóður. Það eru hins vegar gömul sannindi og ný að maturinn er hollari eftir því sem meiri natni er lögð við að elda hann.
Árstíðir á markaðnum :: Dominique fjallar að þessu sinni um lauk.
Valentínusarkakan :: Sirrý kemur hér með tillögu að köku sem er við hæfi á Valentínusardaginn og nú er um að gera að koma elskunni á óvart!
Freistandi og fallegar bollur :: Bolludagurinn er ómissandi og bollur í ýmsum myndum eru ómissandi á borðum landsmanna þennan dag. Sirrý bakaði nokkrar gerðir, gerbollur, vatnsdeigsbollur o.fl. og kemur með tillögur að alls konar fyllingum.
Hátíðarkvöldverður Klúbbs matreiðslumeistara :: Þessi árlegi glæsilegi viðburður er ein mikilvægasta fjáröflunarleið Klúbbs matreiðslumeistara. Fjöldi fagaðila koma að kvöldinu og gefa allir vinnu sína til styrktar kokkalandsliðinu okkar.
Saltkjöt og baunir túkall ... :: Saltkjöt og baunir á hefðbundinn máta er ómissandi á sprengidaginn en Úlli kemur hér með tillögur að óhefðbundnum baunasúpum og hvernig við getum nýtt afganginn af saltkjötinu í aðra rétti.
Risotto – notalegi maturinn :: Úlli sýnir okkur hér þrep fyrir þrep hvernig á að laga risotto og gefur nokkrar uppskriftir að þessum vinsæla rétti.
Súpur sem ylja :: Matarmiklar súpur frá ýmsum löndum og kjúklingasúpur þar sem afgangur af kjúklingnum er uppistaðan.
Heitt og framandi :: Sirrý og Gerður eru hrifnar af indverskum mat og kynntu sér jafnframt pakistanska matargerð.
Grænmetisrétturinn :: Sirrý eldaði að þessu sinni blómkálsbuff með spínatsósu sem er bæði ódýr og mettandi matur.
Sunnudagskakan :: Skonsur eru æðislegar nýbakaðar með smjöri og osti eða hvaða áleggi sem er, t.d. reyktum laxi, hangikjöti eða salati.
Stefnur og straumar árið 2009 :: Gerður gerðist spákona um stund og segir okkur frá nýjustu stefnum og straumum í mat og lífsstíl á þessu ári.
Eitt vín – einn réttur :: Dominique hitti Gunnar Karl Gíslason sem hefur nýlega hafið störf á Norræna húsinu og fjallaði einnig um íslenskan bjór.
Veitingahúsarýni :: Kokkurinn og Kjartan heimsóttu veitingahúsið Basil og Lime.
Hönnunarsíðan :: Gerður segir okkur frá hvernig Vipp – ruslatunnan varð til.
SKOÐA ÁSKRIFTARTILBOÐ!


