Tb forsíða neðri
Sælkerakvöldverður Gestgjafans í Þjóðleikhúskjallaranum
laugardaginn 7. mars
Gestgjafinn mun í samstarfi við matreiðslumeistarann Sigga Hall standa fyrir glæsilegum sælkerakvöldverði í Þjóðleikhúskjallaranum laugardaginn 7. mars nk. Boðið verður upp á 5 rétta máltíð að hætti Úlfars Finnbjörnssonar og Sigríðar Bjarkar Bragadóttur, meistarakokka Gestgjafans.
Áskrifendur Gestgjafans fá sælkerakvöldverðinn á sérstökum kjörum en verð fyrir 5 rétta glæsilega máltíð er aðeins 5.900 kr. Sérvalin vín, á hófstilltu verði fyrir áskrifendur, verða í boði og mun Dominique Plédel Jónsson segja stuttlega frá þeim.
Í veislublaði Gestgjafans munu síðan birtast uppskriftir að réttunum sem í boði verða þetta kvöld.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir áskrifendur að koma saman á notalegum veitingastað og bragða brot af því besta frá meistarakokkum Gestgjafans.
Þjóðleikhúskjallarinn er að vakna til lífsins aftur sem skemmtilegur og notalegur veitingastaður en síðan Siggi Hall tók við rekstri hans á síðasta ári hafa verið uppákomur, veislur og hlaðborð og ýmislegt spennandi er á döfinni.
Borðapantanir á sælkerakvöldið eru á kjallarinn@kjallarinn.is eða í síma: 585 1295.


