Tb forsíða neðri
Glæsilegur árangur íslenska kokkalandsliðsins
Íslenska kokkalandsliðið keppti á Ólympíuleikunum í Erfurn
Íslenska kokkalandsliðið náði sínum besta árangri á Ólympíuleikunum í matreiðslu til þessa en liðið náði 10. sæti af 32. Stigagjöf á Ólympíuleikunum er nokkuð flókin en kokkalandsliðið hlaut gull fyrir heita borðið sitt og eitt gull og tvö silfur fyrir kalda borðið en fyrir það er dæmt í þremur liðum. Ákveðinn stigafjöldi liggur að baki þessu medalíum, þegar stigin ná ákveðnum fjölda er talað um brons, silfur eða gull en þeir sem ná ekki upp í brons-stigagjöf fá svokallað „diploma“ fyrir þann lið sem verið er að dæma. Til samanburðar má geta þess að lið Dana hlaut þrenn gullverðlaun fyrir kalda borðið sitt sem dugði þó ekki til að skáka Norðmönnum sem náðu 1. sæti á leikunum og voru með hærri stigafjölda að baki hverju gulli.
Mikill undirbúningur liggur að baki keppninni og íslenska kokkalandsliðið lagði á sig þrotlausar æfingar sem skiluðu sér svo sannarlega í glæsilegum réttum bæði á heita og kalda borðinu. Kalda borðið var hannað af landsliðinu í samvinnu við Marel og var stílhreint og fallegt.
Við á Gestgjafanum erum stolt af landsliðinu okkar og óskum þeim innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur.
Fleiri fréttir og myndir má nálgast á vef Freistingar, www.freisting.is.
Landsliðið skipa:
Bjarni Gunnar Kristinsson, Grillið RadissonSAS Hótel Saga
Ragnar Ómarsson, Domo
Alfreð Ómar Alfreðsson, Kaupþing banki
Gunnar Karl Gíslasson, Vox Hilton Nordica
Eyþór Rúnarsson, Veitingastaðurinn Ó
Hrefna Rós Jóhannsdóttir Sætran, Fiskmarkaðurinn
Þórarinn Eggertsson, Orange
Þráinn Freyr Vigfússon, Grillið RadissonSAS Hótel Saga
Örvar Birgisson, Nýja Kökuhúsið
Karl Viggó Vigfússon, GV Heildverslun
Aðstoðarmenn:
Vigdís Ylfa Hreinsdóttir, Sjávarkjallarinn
Guðlaugur Frímannsson, Fiskmarkaðurinn
Óli Ágústsson, Vox Hilton Nordica
Þórður Matthías Þórðarson, Salthúsið Restaurant
Daníel Cochran Jónsson, Fiskmarkaðurinn
Niðurröðun í fyrstu 10 sætin var eftirfarandi:
1. Noregur
2. Þýskaland
3. Svíþjóð
4. Singapúr
5. Kanada
6. Danmörk
7. Bandaríkin
8. Sviss
9. Ástralía
10. Ísland
Heiti maturinn:
Kalda borðið:
Upplýsingar eru fengnar úr fréttum á www.freisting.is og af opinberum vef keppninnar. Myndirnar tók Guðjón Steinsson, matreiðslumeistari.


